Víkurfréttir - 19.04.1995, Page 4
4
19. APRÍL 1995
VllfUIÍFRÉTTIR
Sýnishorn úr söluskrá
Fasteignaþjónusta
buöurnesjaiif. swpasaia
.'■CX' í
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 13722 - Fax 13900
(lónhóll 22, Njarðvík
Nýlegt vandað parhús ásamt bílskúr. 3
svefnherbergi, tvöföld stofa. Húsið er
hannað af innanhússarkitekt. Hagstætt
áhvílandi. Skipti möguleg á minni eign.
13.000.000.-
Vesturgata 15A, Keflavík
3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjórbýli
ásamt bflskúr. Allar innréttingar sérsmíð-
aðar. Mjög hagstætt áhvflandi. Skipti
möguleg á raðhúsi á einni hæð.
8.(KW.0(K).-
Smáratún 27, Keílavík
4ra herbergja neðri hæð í tvíbýli með sér-
inngangi. Mikið endumýjuð. Hagstætt
áhvflandi.
6500.000.-
Háaleiti 5C, Keflavík
5 herbergja efri hæð í þríbýli ásamt bfl-
skúr með gryfju. Sérinngangur. Endur-
nýjað skólp og jám á þaki, gluggar og
gler að hluta. Hagstætt áhvflandi. Skipti
möguleaáminni eistn.
8.800.(KKk-
Klapparbraut 6, Garði Heiðarholt 5, Keflavík
123 ferm. nýlegt einbýlishús. 4 svefnher- 100 ferm. raðhús ásamt 20 fenn. sólstofu
bergi. Hagstætt áhvflandi. Skipti möguleg og fullbúnum 28 ferm. bflskúr. 3 svefn-
áminnieigníKeflavíkeðaGarði. herbergi. Hagstætt áhvílandi. Skipti
93(K).(KKk- mögulegáminnieign.
9.900.000.-
Heiðarlk)l 6, Keflavík.
3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Hagstætt áhvflandi...................5300.(KKk-
Hringbraut 59, Keflavík.
3ja herbergja risíbúð. Hagstætt áhvflandi. Mikið endumýjuð........5.000.000,-
Heiðarhvammur 7, Keilavík.
3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Hagstætt áhvflandi...................5500.000.-
Áðalgata 13, Kellavík.
3ja herbergja parhús. Hagstætt áhvflandi..........................TILBOt).
Mávabraut 11, Keflavík.
3ja herbergja íbúð á 3. hæð.......................................3.900.000.-
Ásabraut 11, Keflavík.
2ja herbergja íbúð. Lagnir endum. Hagst. áhvfl. Skipti á stærri eign.3500.000,-
Ásabraut 5, Keflavík.
2ja herbergja íbúð. Lagnir endumýjaðar. Hagstæð áhvflandi........3.600.000.-
Einholt 3, Garði
Rúmgott einbýlishús ásamt fullbúnum
bflskúr og sólstofu. 4 svefnherbergi,
tvöfóld stofa. Hagstætt áhvflandi. Skipti
möguleg á minni eign í Keflavík eða
Garði. ’ ’ 11.000.000.-
Bjamavellir 5, Keflavík
124 ferm. raðhús ásamt bílskýli. 4 svefn-
herbergi. Mjög hagstætt áhvflandi.
8.700.000,-
Blikabraut 15, Kellavík
127 ferm. neðri hæð í tvíbýli, 3 svefnher-
bergi. Hagstættáhvflandi. Skipti möguleg
á minni eign.
8.400.000.-
Vallargata 16, Keflarík
3ja herbergja kjallaraíbúð t tvíbýli með
sérinngangi. Hagstætt áhvflandi. Skipti
mögulegástærri eign.
3.700.000,-
♦ Það var spilað afmiklum eldmóði þegar Vikurfréttamaðurinn
leit við hjá öldruðum að Suðurgötu 12-14 í síðustu viku.
Spilafför hjá
öiáruö um
A SUÐUFtNESJUM
FRÉTTIR
Á sumardaginn fyrsta verður
aðalfundur Félags eldri borg-
ara á Suðurnesjum. Á laugar-
daginn er svo vorfagnaður í
Grindavík og lýkur |rar með
annasamri vetrardagskrá fé-
lagsins.
Þorrablótið í Stapa 12. feb.
var fjölmennt og vel heppnað.
26. febrúar var leikhúsferð. Þar
sáum við Kabarett, léttan og
léttúðarfullan leik með alvar-
legum undirtóni um uppgangs-
tíma nasista. Opið hús í Garði
11. rnars var sænrilega sótt,
enda þótt mikill fjöldi eldra
fólks væri á sama tíma að
kveðja Rebekku Friðbjarnar-
dóttur hinstu kveðju.
Gömlu dansarnir í Stapa 24.
mars voru vel sóttir og setti
samstarf okkar við eldri borg-
ara í Hafnarfirði mikinn svip á
skemmtunina, enda er það ætl-
un okkar að endurgjalda heim-
sókn þeirra í kvöld.
Næstu þrjá mánuði förum
við í eins dags ferðir, en þær
eru vinsælar og hafa 220
manns notfært sér þær á starfs-
árinu. Þá vil ég minna á ferðir
til lengri dvalar, en þátttaka í
þeim varð 80 manns sl. sumar.
Núna þann 24. apríl fara 20 fé-
lagsmenn til Mallorca og
dvelja þar í 4 vikur. Eins og
áður hefur komið frarn er hús-
næðisvandi okkar mikill í sam-
einaða sveitarfélaginu. Okkar
félagsfólk fagnaði því, þegar
tekin var ákvörðun um að
breyta Þotunni í tómstundahús.
Tekið var til umræðu á stjóm-
arfundi hugsanlegt vinnufram-
lag eldri borgara við breyting-
arnar. Síðan hefur langur tími
liðið án þess að mikið hafi
gerst. Ef þessi framkvæmda-
hraði helst tel ég litlar líkur á
að Þotan komist í gagnið fyrir
aldamót.
Sigfús Krist jánsson.
„Aðsóknin í spilamennskuna
hefur aukist jafnt og þétt. Nú er
yfirleitt spilað á 11 til 12 borð-
urn á hverjum miðvikudegi",
segir Kristrún Helgadóttir, um-
sjónarmaður með spiladegi hjá
Félagi eldri borgara.
Kristrún tók að sér að liafa
umsjón með spilamennsku hjá
FEB fyrir nokkrum árum og
hún segir að í byrjun hafi ekki
verið spilað á mörgum borðum,
kannski þremur til fjórum. Að-
sóknin hefur aukist jafnt og
|rétt og nú er spiluð félagsvist
að jafnaði á ellefu til tólf borð-
um, og hefur farið upp í þrettán
borð. Kristrún fékk bónda sinn,
Jóhann Pétursson, fljótlega í lið
með sér og er hann spilastjóri
og sér jafnframt um „rekstur-
inn“, en spilagjald er kr. 200
fyrir manninn. Það gjald fer í
vinninga og kaffibrauð sem
Kristrún útbýr yfirleitt en hún
hefur fengið góða hjálp hjá
nokkrum konum við það. Yfir-
leitt er spilað í unt tvo tíma en
gefin er stutt reykingapása en
þeim fækkar sífellt sem „fá sér
smók“. Kristrún og konurnar
mæta um klukkan hálf þrjú og
leggja þá á borð en fólkið fær
kaffi og brauð áður en það
byrjar að spila um klukkan
fjögur.
Kristrún sagði að það eina
sem háði starfseminni væri
plássleysi en spilað er í litlum
sal í dagdvöl aldraðra. „Við
fáum kannski aðeins stærra
pláss á Vesturbraut 17 í haust",
sagði hún að lokunt.
♦ Jóhann Pctursson og Kristrún Helgdóttir lialda utan um spila-
mennsku eldri borgara. VF-mynd/pket.
OPIÐ
í Festi í Grindavík laugardaginn
22. apríl kl. 15:00.
Kaffiveitingar - Glens - Grín - Dans
Farið verður með rútu kl. 14:30.
Vinsamlega pantið far á SBK.
Mætum öll!
Skemmtinefndin.
•f rtlAO fLORI DOROARA
SUOUANtSJUM
'H&FEB AÐALFUNDUR
SUOURNBSJUM
Félags eldri borgara á Suðurnesjum verður
haldinn í Stapa fimmtudaginn 20. apríl kl. 14:00.
Fundarefni:
Skýrsla stjórnar.
Ársreikningur.
Húsnæðismál félagsins.
Önnur mál til afgreiðslu aðalfundar.
Stjórnin.
Fréttir
Fjöldafundur
Sálarrannsóknarfélag Suður-
nesja heldur tjöldafund í liúsi
félagsins að Víkurbraut 13,
Keflavík, fimmtudaginn 4. maí
n.k. kl. 20:30.
Þar verða skyggnilýsinga-
miðillinn Marfa Sigurðardóttir
og Bjarni Kristjánsson trans-
ntiðill. Síðast komust færri að
en vildu. og viljum við biðja
fólk að tryggja sér miða í tíma.
Miðasala er þegar hafin og
skuldlausir félagar hafa for-
gang.
Helgina 28.-30. apríl n.k.
mun Sálarrannsóknarfélagið
bjóða fólki. án endurgjalds, að
kynnast heilun og kristalheilun.
Hefst kynningin föstudaginn
28. aprílkl. 13:00.
Transmiðillinn Bjarni Krist-
jánsson ntun starfa hjá félaginu
frá 1. maí. Tímapantanir í síma
13348.