Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.04.1995, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 19.04.1995, Blaðsíða 7
VlKUPFRÉTTIR 19. APRIL 1995 7 það linar verkina. Nudd getur reynst mörgunr konum notalegt á útvíkk- unartímabilinu. Gott er að liggja í heitu baði, fara í slökun, sjálfssefjun og lilusta á tónlist. Þetta getur allt bætt líðan konunnar á þessari stundu. í dag eru feður betur undirbúnir fyrir föðurhlutverkið. Þeim er gefinn kostur á að vera virkir þátttakendur í mæðravemd og á foreldranámskeið- um. í fæðingunni sjálfri þykir það sjálfsagður hlutur að þeir séu við- staddir og virkir þátttakendur í um- önnun barnsins eftir fæðingu. Þar höfum við lagt áherslu á að fella niður sérstaka pabbatíma, þess í stað hefur hann aðgengi að deildinni frá klukkan 10-22. Þessa leið förum við vegna þess að við höfum vís- bendingu um að sá faðir sem hefur tækifæri til að annast barnið sitt fyrstu þrjá sólarhringana er líklegri til að mynda varanleg tilfinninga- ekur athygli MARTA EIRÍKSDÓTTIR SKRIFAR 29.þáttur Vegna öryggisþátta hefur aukin áhersla verið lögð á að fæðing eigi sér stað innan veggja sjúkrahúsa. Þar er allt fyrir hendi sem til þatf ef út af bregður. Við hér á Suðumesjum höfum þó þurft að búa við það öryggisleysi að skurðstofan hér er lokuð um helgar, um hásumartímann og á stórhátíð- um. Vanfærar konur hafa þurft að fara til Reykjavíkur vegna þessa og stundum hefur það haft sorglegar af- leiðingar í för með sér. Sá tími sem • 1 ^ fer í að keyra hér á milli getur skipt sköpum. Við höfunr margoft lagt áherslu á að skurðstofan þarf að vera opin allan ársins hring en yfir- völd eru greinilega ekki á sama máli. Þetta er baráttumál okkar Suð- umesjamanna og verðugt efni fyrir verðandi þingmenn Reyknesinga. Nútíminn er nianneskjulegri I fæðingarhjálp nútímans eru áherslumar allt aðrar. A fæðingar- deildinni okkar höfum við viljað fá foreldrana virkari í allri meðferð- inni. Það er val hverrar konu livem- ig hún vill fæða og hvemig hún vill annast bamið eftir fæðingu. Þetta er hennar fæðing fyrst og frentst. Okk- ar hlutverk er að sjálfsögðu að vera ráðleggjandi og styðjandi, allt eftir vilja konunnar. Foreldrarnir taka jafnan þátt í undirbúningi fæðingarinnar. Konan ræður hvort hún vill deyftngu eða ekki. Við mælum með því að hún sé á hreyfingu því það hefur sýnt sig að tengsl og sinna |x)rfum bamsins. Ertu ófrísk? Ef til mín kæmi stúlka sem segði mér að hún ætti von á barni þá myndi ég ráðleggja henni eftirfar- andi. Hugsaðu vel um heilsu þína, borðaðu hollt og gott fæði, hreyfðu þig hæfilega, ekki reykja eða neyta áfengis og fáðu nægan svefn. Lærðu að slaka á og anda djúpt. Talaðu við hið ófædda barn, syngdu fyrir það og leyfðu því að hlusta á tónlist. Undirbúðu þig fyrir fæðinguna sjálfa með lestri fræðiefnis um fæð- ingu og sængurlegu. Svo skaltu fara eftir ráðleggingum mæðravemdar. Meðgangan tekur 38 - 42 vikur. Margar verðandi mæður finna til mikillar óþreyju þegar líða fer að 40.viku en flestar konur fæða á því tímabili. Sumar konur vilja að fæð- ingin sé sett af stað en reynslan sýnir okkur að það er ekki æskilegt, nema í einstaka tilfellum. Meðganga og fæðing er eins og ávöxtur sem þarf sinn þroskunartíma. Líkami kon- unnar skilar ávextinum frá sér þegar hann er tilbúinn og fullþroska. Njóttu því allrar meðgöngunnar og hugsaðu jákvæðar hugsanir. Framtíðardraumar Miðað við allan niðurskurð í þjóðfélaginu í heilbrigðismálum þá er mikilvægt að hafa fyrsta draum- inn í |>cim anda. Áfram sem hingað til gefist fæð- andi konu og fjölskyldu hennar kostur á ókeypis þjónustu á með- göngu, fæðingu og ungbamavemd. Fæðingardeildinni okkar Suður- nesjamanna gefist áfram kostur á vel hæfu fagfólki til lækningar og um- önnunar. Svo eigum við draum, starfsfólk fæðingardeildar og áhugafólk, að byggt verði út frá bamastofu. Með því skapaðist aðstaða til að koma fyrir baðkari og hjónarúmi. Það er einstaklega þægilegt fyrir fæðandi konu að hvflast í vatni á útvíkkunar- tímabilinu. Hjónarúmið gefur verð- andi foreldrum tækifæri á að hvflast saman. Þetta er þekkt erlendis og þykir mjög vistlegt og heimilislegt. Ef fólk upplifir sig sem heima hjá sér, með engin tæki í kringum sig, þá ftnnur það til meiri afslöppunar. Þetta hefur jákvæð áhrif á framgang fæðingarinnar. Síðast en ekki síst viljum við benda á nauðsyn |)ess að skurðstof- an sé opin allan ársins hring. Það er takmark okkar allra. J ♦ Eitt bnmnbarim Rúnars og Maríu beitir María Rún og er dóttir Baldurs Þóris sem hér spilar undir með henni þegar hún syngur lagið Jesú bróðir besti. Fjör hjá fimmtugum Rúnna Júll! Rúnar Júlíusson ástsælasti dægurlagasöngvari og poppari landsins átti fimmtugsafmæli á skfrdag, 13. apríl sl. Af því til- efni bauð hann í rokk og ról partý á Hótel Islandi á afmæl- isdaginn. Fjöldi fólks fagnaði kappan- um og fjölskyldu hans. Vegleg tónlistardagskrá var á boðstól- um þar sem helstu tónlistar- menn og söngvarar tróðu upp með afmælisbarninu. Hljóm- sveitir sem Rúnar hefur verið í eða átt þátt í tóku lagið og má þar t.d. nefna Hljóma í öllum útfærslum, Trúbrot, Geimstein, ðe lónlý blú bojs, GCD ofl. Þá fluttu ýmsir ættingjar og vinir Rúnars honum nokkur orð í til- efni áfangans, s.s. séra Björn Jónsson, Páll Bjarnason, Magnús Kjartansson og fleiri en kynnir var Hermann Gunn- arsson. Víkurfréttir fylgdust að sjálfsögðu með afmælishaldinu og voru meðfylgjandi myndir teknar við þetta tækifæri. ♦ Elstu Hljómaniir voru með söngvurunum Einari Júl. og Karli Hermanns. A myndinni cru f.v. þeir Erlingur Bjömsson, Eggert Kristjánsson á trommum, Gunnar Þórðarson, Einar Júlíusson, Karl Hermannsson og Rúnar Júltusson. ♦ Rúnar tók lagið ineð liljómsveitinni Unutt. ♦ Magniís Kjartanson tók lag- ið með Rúnna og Co og hélt honutn einnig góða ræðu. ♦ Séra Björn Jónsson rifjaði upp gamla tíma með góðiim Hljómastrákum. ♦ Synimir Júlt'us og Baldur Þórir tóku Rúnna-syrpu. Þeir sögðust ekkigeta farið t fötföðttr síns ogfóru þess vegna úrað ofan.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.