Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.04.1995, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 19.04.1995, Blaðsíða 6
6 19. APRIL 1995 VlKUPFRÉTTIR Kolrassa krókríðandi - í sína fyrstu erlendu tónleikaferð Hljómsveitin Kolrassa krókríðandi er á Ieið utan til að spila fyrir frændur vora í Danmörku og Finnlandi. Sveitin ntun spila tvisvar í Kaup- mannahöfn, annars vegar með dönsku sveitinni „Thau“ í hinuni þekkta klúbbi „Loppen" 20. apríl nk. og hins vegar á „Stengade 30“ þann 24. í millitíðinni mun sveitin svo bruna til Finnlands og koma þar fram á Senii- final Club í höfuðborg- inni Helsinki, ásamt finnsku sveitinni „Candy Darlings." Ferðin er upphaflega komin til vegna styrks sem samtök íslendinga á Norðurlöndunum veittu sveitinni með það í huga að hún kæmi og spilaði fyrir landann á einum tónleikum í Skandinavíu. Vegna áhuga á sveitinni víða og tengsla í tónlistar- geiranum þar ytra varð þó meira úr ferðinni og tón- leikarnir orðnir þrennir. Fjöldi aðila hefur stutt við bakið á sveitinni til þess að af ferðinni geti orðið, m.a. Kópavogsbær, Keflavík-Njarðvík-Hafn- ir. Hitaveita Suðurnesja og Smirnoff umboðið. Af sveitinni er annars það að frétta að þau hafa nýlega sent frá sér lagið „Sætasta Þyrnirósin í bænum“ sem finna má í kvikmyndinni „Ein stór fjölskylda“ og er niynd- band með laginu væntan- legt á skjáinn á næstu dögum. Einnig hefur sveitin lokið upptökum á sex lögum á ensku og mun útgáfufyrirtæki þeirra, Smekkleysa Sm.hf. gefa út geisladisk með þeim lögum og fleira efni, á Bandaríkjamarkað í byrj- un sumars. Fleiri tónleikaferðir eru fyrirhugaðar á árinu, en eins og áður segir verða það frændur okkar í Dan- ntörku sem fyrstir berja sveitina augum erlendis. Þess má einnig geta að hljómsveitin mun kalla sig BELLATRIX á er- lendum mörkuðum. Hljómsveitin Kolrassa krókríðandi heldur hljóm- leika nk. fimmtudags- kvöld á veitingastaðnum Tveimur vinum í Reykja- vík. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 22 og standa til 24 og aðgangs- eyrir er kr. 300.- ♦ Kolrassa krókríðandi eða BELLATRIX eins og hún heitir upp á útlensku! Tónleikar í Grindavík Júlíana Rún Indriða- dóttir, píanóleikari heldur tónleika í Grindavíkur- kirkju fimmtudaginn 20. apríl kl. 20:30. Á tón- leikunum verða flutt verk eftir Bach, Beethoven, Chopin, Skrjabin, Pro- kofiev og Þorkel Sigur- bjömsson. Aðgangur er kr. 500 fyrir fullorðna en frítt fyrir börn. ♦ Það var rólegt á fæðingardeildinni þessa vikuna. Sængurkontimar voru tvær, þær Erla og Linda. Þær sögðu fæðingar- deildina vera eins og 7 stjörnu hótel! Fæðingardeild Einn stærsti viðburður í lífi hverrar manneskju er að eignast afkvæmi. Á þeirri stundu þegar barnið kemur í heiminn eru allir viðstaddir sannfærðir um kraftaverk. Pað er auðvitað kraftaverk að eign- ast barn og enn frekar ef það er heilbrigt á sál og líkama. Margir líkja fæðingunni við stór- kostlegustu stund lífsins, það sé ekkert sem jafnist á við það að verða foreldri. Eg er lijart- anlega sammála þessu því ég er svo lánsöm að eiga barn, sem eftir kúnstarinnar reglum leit dagsins Ijós fvrir tæpum fímm árum. Þá var ég einnig svo heppin að búa hér í bæ og geta því notið þess að upplifa fæðingardeild sem þykir með þeim betri á landinu. Pær koma jafnvel innan úr Reykjavík hingað suður með sjó til þess að fá að fæða á fæðingardeild Suðurnesja- manna. Það segir okkur eitthvað um ágæti fæðingarþjónustunnar hér. Auövitað eru skipt- ar skoðanir um alla hluti en þó tel ég víst að flestar konur séu ánægðar með |)að að fá að fæða á vinalegu fæðingardeildinni okkar. Því hún er einmitt mjög vinaleg í alla staði. Svona var þetta ígamladaga L Mér lék forvitni á að vita hvemig starfseminni þar er hátt- að og fékk Sólveigu Þórðardótt- ur, ljósmóður og deildarstjóra fæðingardeildar, til að spjalla við mig. Hún var mjög upptekin að venju en sleppti m.a. matar- tíma sínum til að við gætum hist. Eg þakka henni kærlega fyrir það. I gamla bændasamfélaginu stóð fjölskyldan öll að fæðing- unni. Feður hjálpuðu gjarnan við fæðingu, tóku þá sjálfir á móti. Með aukinni tækni fara konur að fæða á sjúkrahúsum og við tölum gjaman um kalda tímabilið upp úr 1950. Móðir og barn og tjölskylda voru að- skilin vegna ofurtrúar á sýking- arvörnum. í kjölfar mikillar tækniþekkingar var fjölskyld- unni haldið frá fæðingunni. Móðirin fæddi bamið án návist- ar föðurins. Bamið var fljótlega tekið frá móðurinni eftir fæð- ingu og sett á sérstaka barna- stofu og var þar í umsjá starfs- fólks. Móðirin fékk barnið á ákveðnum brjóstagjafatímum á fjögurra tíma fresti. Systkina- heimsóknir voru ekki leyfðar og faðirinn kom bara á hefðbundn- um heimsóknartíma. Hér hefur alltaf verið fæðingardeild Alveg frá upphafi eða frá ár- inu 1954 hefur verið starfrækt fæðingardeild á Sjúkrahúsinu. Fyrst var fæðingarþjónustan á efri hæð, þá var ein sængur- kvennastofa og fæðingarstofa, börnin sváfu á baðinu. Síðan þótti ástæða til að bæta þjónust- una við fæðandi konur og var deildin flutt niður en þá bættist við bamastofa. Heimilislæknar sinntu vanfærum konum eins og öðrum en ekkert reglulegt mæðraeftirlit var á þessum tíma. Þegar konan var komin sex mánuði á leið fór hún í skoðun hjá ljósmóður, einu sinni til tvisvar. Konan ákvað hvaða ljósmóður hún vildi hafa hjá sér á fæðingarstundu og það var reynt að koma því í kring. Þá var það starfsfólksins að ákveða hvernig konan fæddi, hvort hún fengi verkjalyf og hvaða meðhöndlun hún fengi almennt. Algengt var að konan léti sig algjörlega í hendur Ijós- móður og hefði enga skoðun á sem v því hvernig allt ætti að fara fram. Ljósmæður eru fastráðnar við Sjúkrahúsið í kringum 1955. Allt fram undir 1970 eru konur að fæða heima en það er orðið sárasjaldgæft eftir þann tíma. Á þessum árum er bamadauði al- gengur og eitthvað var unt mæðradauða. Þá var tæknin ekki eins mikil og nú er. Með tilkomu Heilsugæslustöðvar Suðumesja árið 1975 var brotið blað í þjónustu við fæðandi konur. Mæðraeftir- lit skiptir máli Það er þakkarvert hvað við fáum mörg heilbrigð böm nú á tímum en það er vegna aukinn- ar velmegunar, tækniþekking er meiri, svo er mikil og góð sér- hæfíng innan læknis- og hjúkr- unarfræðinnar. Ljósmæður hér á landi hafa alltaf verið vel menntaðar miðað við kröfur hverju sinni. Auðvitað hefur barátta Islendinga fyrir góðu velferðarkerfi skilað sér til fólksins. Mæðraeftirlit sem er samræmt á öllu landinu hefur geysilega mikla þýðingu bæði hvað varðar heilsu móður og bams. Fólk með sérhæfða þekk- ingu vinnur í mæðraeftirlitinu og það skiptir sköpum varðandi árangur í fæðingarhjálp. Mæðravemd á meðgöngu gerir það mögulegt að hægt er að greina á milli þess heilbrigða og hins sjúklega. Með þessu móti er hægt að undirbúa fæðinguna á þann hátt sem hentar. Um 90% allra kvenna eiga heil- brigða meðgöngu og geta þær valið hvernig þær vilja fæða bömin sín. Það er réttur hverrar konu að ákveða hvernig hún vill fæða svo fremi að allt sé í lagi. Varðandi þær sem eru í áhættu þá er fylgst mjög náið með þeim og fæðingin undirbúin í tíma. Skurðstofan er ekki alltaf opin Þótt flestar meðgöngur og fæðingar endi vel þá vitum við aldrei nákvæmlega hvernig fæðingin hefur gengið fyrr en henni er lokið og móðir og bam koma vel niður. Fjórum klukku- stundum eftir fæðingu vitum við hvemig hún hefur gengið.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.