Víkurfréttir - 19.04.1995, Blaðsíða 5
VffíUflFRÉTTIR
19. APRÍL 1995
5
Skar sundur
slagæð
Ölvaður maður sló í gegnum
glugga á veitingahúsinu Strik-
inu um páskahelgina og skar í
sundur slagæð á hendi. Maður-
inn var flutlur á Sjúkrahús Suð-
urnesja og síðan á sjúkrahús í
Reykjavík til frekari aðgerðar
þar sern áverkarnir voru alvar-
legs eðlis.
Ædarfugl skot•
/nn með illa
fenginni byssu
Lögreglan í Keflavík handtók
um helgina tvo byssumenn sem
voru að dunda sér við það að
skjóta æðarfugl við Fitjatún í
Sandgerði. Lögreglan fékk til-
kynningu um það um kvöldmal-
arleytið á páskadag að byssu-
menn væru á ferli og voru þeir
gómaðir á vettvangi. Þarna
reyndust góðkunningjar lögregl-
unnar á ferð og byssan sem þeir
höfðu um hönd var illa fengin
og að sjálfsögðu ekkert skot-
vopnaleyfi til staðar.
Bláa lónið:
200 monna tjold og
miklor endurbætur
ó boðströndinni
Framkvæmdutn við pall und-
ir 200 manna tjald á ströndinni
við Bláa lónið er að Ijúka. Pall-
urinn er 220 fermetrar að stærð
og á næstu dögum verður risa-
stóru heilsárstjaldi tjaldað við
lónið. Með tjaldinu verður rign-
ingin lokuð úti og fjörið verður
í tjaldinu þegar veislur eða aðr-
ar uppákontur eru annars vegar
við lónið.
Kristinn Benediktsson hjá
Bláa lóninu sagði í samtali við
Víkurfréttir að með tjaldinu
opnist fjölbreyttir möguleikar.
Auk þess að geta verið með
veislur í tjaldinu verður hægt
að vera með ýmsar uppákomur
þar eins og t.d. tónleika, tísku-
Frá Gerðaskóla
Skráning nýrra nemenda
skólaárið 1995-96
Foreldrar vinsamlegast tilkynnið skólavist
barna sem fædd eru 1989.
Skráning fer fram föstudaginn 21. apríl
milli kl. 13-17 í skólanum eða í síma
27020.
Skólastjóri.
sýningar eða mannfagnaði ým-
iskonar.
Kristinn sagði að það færðist
í vöxt að stórir starfsma'nna-
hópar fari í fjölskylduferðir þar
sent hápunktur ferðarinnar sé
útigrillveisla í skemmtilegu
umhverfi. Oft hafa menn sett
fyrir sig rigningarsudda og oft-
ar en ekki hefur leiðinlegt veð-
ur sett grillveisluna úr skorðun.
Nú er veðrið hins vegar ekki
vandamál í Bláa lóninu því þar
er tjaldað yfir veisluna og rign-
ingin lokuð úti.
Bláa lónið býður hópum upp
á veitingar og í kynningarbæk-
♦ Frá framkvæmdum við mjja 220 fermetra pallinn þar sem tjaldað
verður 200 manna Ueilsárstjaldi. Mcð tilkomu tjaldsins opnast
miklir möguleikar fyrir ýmsar uppákomur við Bláa lónið.
VF-mynd: hbb
lingi sem nýverið hefur verið hópar fengið í símum 92-68800
gefinn út eru sýnishorn af mat- og 92-68888.
seðli. Nánari upplýsingar geta
Bifreiða-
® eigendur/
Þeir bifreiðaeigendur sem enn skulda bifreiðagjöld eða þunga-
skatt skal bent á að verði ekki gengið frá greiðslum fyrir 25. apríl
nk. mun lögreglunni verða falið að taka skráningarnúmer af bif-
reiðum án frekari fyrirvara.
Þá mun koma til fjárnáms og þá jafnvel í öðrum eignum en við-
komandi bifreið, og í framhaldi krafist uppboðs verði ekki full skil
gerð.
Kostnaður við fjárnám er frá kr. 3.000.- til kr. 10.000.- en upp-
boðskostnaður er frá kr. 3.000.-
Sýslumaðurinn í Keflavík
INNHEIMTUDEILD
$ ffp#
Hljómsveit Eddu Borg leikurfyrir dansi
iJjnmMaguBð
Fögnum sumri med
sumarmatseðli og
pöbb astemmniugu
OpiÖ kl. 21-01
íxirnrmílagrii^
Pöbbastemmning
Opið kl 21-01
Góð danstónlist. Opiö kl. 21-03
1 * •
mMwmmw
RESTÆIJRANT - PUB
HAFNARGATA 30 - KEFLAFIK
SIMI 13421