Víkurfréttir - 19.04.1995, Síða 9
Nýr skemmtistaður
„Staðurinn"
opnar í kvöld
-að Hafnargötu 30 í Keflavik
„Við verðum með aðeins
öðruvísi áherslur en aðrir
staðir hafa gert hér á svæðinu.
Tónlistin verður til að mynda
spiluð af þeim styrk að liægt
verði bæði að dansa og tala
saman í staðnum. Eg var búin
að bíða lengi eftir svona
skemmtistað og úr því enginn
kom með Itann, ákvað ég að
slá til og opna einn slíkan",
segir Guðrún Gunnarsdóttir
sem fékk systkini sín með sér
í lið, þau Jón, Kristþór og
Guðmund Gunnarsbörn. Þau
Staðurinn,
nýr
skemmti-
staður að
Hafnargötu 30 í
Keflavík opnar í
kvöld, miðvikudag.
Eigendur eru fjögur
systkini á Suðurnesj-
uni.
19. APRÍL 1995
stofnuðu hlutafélagið i
Gunnarsson hf. um i
reksturinn.
Staðurinn verður op-
inn fimmtudaga og I
sunnudaga kl. 21-01 og I
föstudaga og laugar- |
daga kl. 21-03. Guð- |
rún, sem verður fram- i
kvæmdastjóri i
skemmtistaðarins sagði
að boðið yrðii upp á 1
góða lifandi tónlist við I
allra hæfi. Hún sagðist I
ntyndi reyna nota |
hljómsveitir af Suðurnesjum |
en á opnunardaginn verður þó i
hljómsveit Eddu Borg sem ,
mun leika fyrir dansi.
Suðurnesjabandið Grænir '
vinir úr Garðinum mun síðan I
leika á Staðnum nk. föstu- I
dags- og laugardagskvöld. |
A Staðnum verður boðið i
upp á létta rétti allan tímann i
sem hann er opinn. Guðrún .
sagði t.a.m. að fólk gæti pant-
að mat til að taka með sér I
heim af skemmtistaðnum. I
„Hver kannast ekki við það |
að vera svangur á heimleið |
frá skemmtistað. Okkur lang- i
ar að bjóða upp á þessa þjón- ,
ustu“, sagði Guðrún og bætti .
því við að aldurstakmark yrði 1
20 ár. „Það verður pöbba- I
stemmning fimmtudaga og I
sunnudaga en meira fjör |
föstudags- og laugardags- |
kvöld“.
Aðgangseyrir verður eng- ,
inn nema í sérstökum tilfell-
um, og þá einungis ef boðið '
verður upp á einhverjar „stór- I
grúbbur".
L
J
Landsbankinn flytur um set í Kjarna
Landsbanki Islands sem staðsettur hefur verið
í Kjarna, Hafnargötu 57 í Keflavík tlytur í nýtt
húsnæði í Kjarna nk. mánudag 24. apríl. Bankinn
flytur sig því aðeins um set í sömu húsakynnum,
nánar tiltekið nyrst í bygginguna.
í tilefni flutningsins verða kafftveitingar fyrir
viðskiptavini. gesti og gangandi allan daginn.
Málverkasýning á verkum úr safni Landsbanka
Islands verður opnuð á sama stað og verður opin
til 7. maí. Sýningin verður dreifð um bankann,
göngugötuna og fyrirtækin við hana. Þá mun álf-
urinn Mókollur, sparibaukur Landsbankans
koma og heilsa upp á yngstu kynslóðina þriðju-
daginn 25. maí kl. 14-16.
TILBOÐ
dagana 19.-26. apríl
ayui m KRlUUs
HAGKAUP
fyrir fjölskylduna