Víkurfréttir - 19.04.1995, Síða 11
VÍIfURFRÉTTIR
19. APRIL 1995
11
Erílsamt
um páska
Erilsamt var hjá lögreglunni í
Ketlavfk um páskana. Töluvert
var um ölvunarútköll og einnig
voru margir ökuþórar sem fóru
helst til og geyst, enda vor í
lofti. Tveir voru sviptir ökurétt-
indum fyrir að aka of hratt.
Annar var 19 ára unglingur á
103 km. hraða innanbæjar en
hinn var vamarliðsmaður á 154
knt. hraða á Reykjanesbraut.
Annar varnarliðsmaður var tek-
inn á 135 km. hraða á brautinni
og sagði Karl Hermannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn það
vera að færast í vöxt að dátarnir
úr heiðinni væru gómaðir á of
miklum hraða.
Dælt úr báti
ápáskadag
Slökkvilið Brunavarna Suð-
urnesja dældi sjó úr Svani BA
við Njarðvíkurhöfn á páskadag.
Sjór var kominn í lest bátsins
og tók um eina og hálfa
klukkustund að dæla úr bátn-
Siggi Bergmann Islands■
meistari í sjöunda sinn
Sigurður Bergmann varð Is-
landsmeistari í júdó í þunga-
vigt í sjöunda sinn þegar hann
lagði Gísla J. Magnússon, KA
í úrslitum en Islandsmótið fór
fram 8. aprfl sl. f Seljaskóla í
Reykjavík.
Sigurður lagði Gísla á „ipp-
on“ en hann varð síðan að
sætta sig við 3. sætið í opnum
flokki eftir að hafa tapað fyrir
harðasta ándstæðingi sínum í
áraraðir, engum öðrum en
Bjarna Friðrikssyni. Þeir átt-
ust við í undanúrslitum og
vann Bjarni á stigum.
Sigurður var sáttur við sína
frammistöðu á mótinu. Hann
kvaðst hafa glímt vel en sagði
að í glímunni við Bjarna hefði
hann gerst sekur um augna-
Sigurður Bcrgmatm ur
Griniiavtk varði Islandsmcist-
aratitil simt.
bliks-kæruleysi og það hefði
kostað hann sigurinn. Siggi
sagðist hafa reiknað með því
að glíma við Vernharð Þor-
leifsson frá Akureyri í úr-
slitaglímu í opna flokknum og
ætlað að „tappa af lofti“ úr
norðanmanninum.Sigurður
Kristmundsson, UMFG, kom
nokkuð á óvart en hann er bú-
settur í Svíðþjóð. Hann kont
gagngert til að keppa á mótinu
og gerði það að sjálfsögðu
undir merkjum síns garnla fé-
lags. Hann varð í 2. sæti í 95
kg. flokki. í undankeppninni
sigraði Sigurður alla andstæð-
inga sína á „ippon" en tapaði
síðan fyrir Akureyrarjaxlinum
Vernharði Þorleifssyni í úr-
slitum.
Islandsmeistarar
í 2. deild körfuknattleiks kvenna.
Þjalfari liðsins crHelga
Eiríksdóttir.
VF-mynd: Hilmar Bragi.
2. deild kvenna í körfuknattleik:
VÍDISSTÚLKUR
ÍSLA NDSMEIS TA RA R
Stúlkurnar í meistaraflokki kvenna í Víði urðu Islandsmeistarar
í 2. deild kvenna á Islandsmótinu í körfuknattleik sem nýverið er
lokið. Með titlinum hafa þær jafnframt tryggt sér sæti í 1. deild á
næsta keppnistímabili.
Arangur Víðiskvenna var ntjög góður í vetur en þær unnu alla
sína leiki sem er 100% árangur. Þjálfari Víðis er Helga Eiríksdótt-
ir en systir hennar, Katrín, er aðstoðarþjálfari. Liðsstjóri er Karvel
Hreiðarsson.
Félagslíf I Vogum!
15. febrúar sl. fóru nemendur
8., 9. og 10. bekkjar Stóru-
Vogaskóla í skíðaferð. Gist var
í Breiðabliksskála í Bláfjöllum.
Allflestir nemendur fóru á
skíði. A kvöldin voru sagðar
draugasögur, horft á video og
ýmislegt fleira. Nemendur
skemmtu sér mjög vel í ferða-
laginu. Haldið var heim á upp-
hafsdegi verkfalls kennara
þann 17. febrúar.
Félagslíf hefur verið með
meira móti í verkfallinu. M.a.
var farið á SAMFÉS BALL
þann 3. mars sl. í Hafnarfirði
en mæting ver frekar léleg en
16 nemendur fóru héðan.
A mánudögunt hittumst við
alltaf í Glaðheimum og spilum j
félagsvist eða bingó. Einnig
höfum við verið með þá ný-
breytni að hafa spiladag fyrir
yngri bekkinga og mæltist það
mjög vel fyrir í verkfalli kenn-
ara.
Einnig vorum við með vid-
eokvöld og voru nemendur
misjafnlega ánægðir vegna
þess að ekki náðist samkomu-
iag um val á mynd.
Fyrirhugað var að halda árs-
hátíð í Stóru-Vogaskóla þann
6. apríl en vegna verkfallsins er
óvissa um hvenær hún verður.
Neniendur og skemmti-
nefnd Stóru-Vogaskóla.
♦ Kristín og Tómas á góðri stund í Glaðheimum.
Nýverið kontu í heiminn
100 snældur sem allar voru
við góða heilsu og vel yfir 15
merkur. Þær innihalda 8
frumsamin lög sem öll eru
við góða heilsu og vel yfir 15
merkur. Eins og allir vita
gáfu Þuslarar út snældur á
síðasta ári sent innihéldu 6
lög, og seldust þær allar upp
á skömmum tíma. Þuslarar
eru nýkomnir úr hljóðveri og
á nýju afurðinni má finna t.d.
lögin: Sól, 1997, Ilikarinn
og Geðveikur Davíð. Eins
og áður var tekið fram, voru
snældurnar aðeins gefnar út í
100 eintökum og eru 60 stk.
eftir, þannig að nú fer hver
að verða síðastur að næla sér
í eintak. Taka skal fram að
snældurnar fást aðeins í
versluninni Hljómval í
Keflavík, en einnig geta
áhugasamir haft samband við
hljómsveitanneðlimi sem all-
ir eru við góða heilsu og vel
yfir 15 merkur. Ath. að
snældan kostar aðeins 599
kr.
ÞUSLARAR
Þessi unga snót verður sex-
tug sunnudaginn 23. apríl.
Elsku mamma, Ágústa, hjart-
anlegar hamingjuóskir með
þennan merka áfanga.
Börn og tengdabörn.
Elsku Karitas til hamingju
með 5 ára afmælið 18. apríl.
Þínar systur Eva Dís, Iris
Edda og Diljá.
Litla bikar
morgun
Litla bikarkeppnin í knattspyrnu
liefst á morgun, sumardaginn
fyrsta. Auk liða á Suöurnesjum og
nágrenni Reykjavíkur taka lið ÍA,
Selfoss og IBV þátt í keppninni.
Meðal leikja á morgun á Suður-
nesjum eru: Grindavík-Víðir í
Grindavík og Keflavík-Grótta f
Keflavík. Nk. sunnudag leika
Keflvíkingar heima gegn HK og
Reynismenn í Sandgerði fá Hauka
í heimsókn.
Átta liða úrslit keppninnar fara
fram 4. maí og undanúrslit 9. maí.
Gert er ráð fyrir því að úrslitaleik-
urinn fari fram 14. maí.
Fimmtudagspútt GS:
Örn Ævar
efstur
Öm Ævar Hjartarson er efstur í
fimmtudagspútti Golfklúbbs Suður-
nesja Hann var þó ekki meðal tíu efstu
sl. fimmtudag. Sigurður Sigurðsson
náði þá bestum árangri, lék á 60 högg-
uin og fékk 13 bingó. Ingvar Ingvars-
son, yngri vaið í 2. sæti mcð 61 högg
og Þorsteinn Geirharðsson þriðji með
62 högg.
Staðan í stigakeppninni er þiuinig að
Öm Ævar er efstur með 60.20 högg að
meðaltali |regar tíu bestu kvöldin em
talin. Sigurður Sigurðsson er annar
með 61,60 og Gerða Halldórsdóttir
þriðja með 62 högg.
Næst síðasta púttkvöldið verður á
morgun sumardaginn fyrsta, það síð-
asta verður fimmtudaginn 27. apnl.
I púttmóti unglinga í gær voru í
llokki 15-18 ára þeir Davíð Viðiu'sson,
Ingvar Ingvarsson og Anuu' Miir Elías-
son á besta skori, 63 höggum. I holu-
keppninni vann Amar Már Davíö 2-1
og Vilhjálmur Vilhjálmsson vann
Ingvar Ingvarsson 1-0. í llokki 14 ára
og yngri var Ævar Pélursson á besta
skorinu 66 höggum en hann lapaöi í úr-
slitum í holukeppninni fyrir Gunnari
Péturssyni 0-2. Haukur Gunnarsson
vann Atla Elíasson í viðureign um 3.
sætið.
Pottagolf
Hún Magdalena Sirrý Þórisdóttir,
listakona og kylfmgur með meim fagn-
ar meikum álánga í líli sínu um þessar
mundir. Hún vaið fertug á fósludaginn
langa, stakk þá af í vetrarveður til Vest-
fjarða en vill fagna tímamótunum með
vinum sínum í blíðunni hér fyrir sunn-
an um helgina. Hún ætlarekki að fylgja
fordæmi eiginmanns sfns og bjóða í
eitthvað lásý partý á 18. flöt í Lcimnni
Iteldur verður pottapartý fyrir alla Suð-
umesjamenn á morgun, sumardaginn
fyrsta. á heimili hennar frá kl. 7 um
morguninn með tilheyrandi veitingum.
Baðfótem óþörf.
Látum af þessu tilefni fylgja ljúfa
sögu af því þegar Sirrý fór holu í höggi
en þá var Jón Bjöm ekki byrjaður í
golfi:
,Ég fór holu í höggi", hrópaði Sirrý,
og réð sér ekki fyrir kæti.
„Er það virkilega?", sagði Jón
Bjöm, sem hafði aldrei fyrr komið á
golfvöll.
„Gerðu það aftur, elskan," bætti
hann við, „því ég var ekki að fylgjast
með.“.. Vinirnir.