Víkurfréttir - 02.11.1995, Page 10
10
2. NÓVEMBER 1995
VlKURFRÉTTIR
♦ Bíllinn affermdur á Bíldudal í Vesturbyggð.
♦ Húsnæði Rækjiwers hf. á Btldudal.
Með rækjuflutningabíl frá Sandgerði til Bíldudals:
Texti og
í sumar hafa um 650 tonn af
rækju verið flutt frá Sandgerði
og vestur á Bíldudal til vinnslu
hjá Rækjuveri hf. Vertíðinni
hjá Eldeyjarrækjubátunum er
nú lokið. Blaðamaður Víkur-
frétta fylgdi næst síðasta
rækjufarminum úr Sandgerði
til Bíldudals. Um er að ræða
1000 kílómetra ferðalag sem
farið var á 22 klukkustundum
sunnudag einn í október.
RÆKJAN ÍSUÐ í
SANDGARÐI
Eftir að lokið var við að ísa
rækjuna í kör hjá Fiskmark-
aðnum hf. í Sandgerði og
koma henni inn í flutningabíl-
inn var lagt af stað. Starfsmenn
Fiskmarkaðarins hf. hafa í
sumar séð um að ganga frá
rækjunni til flutnings. Rækju-
bátarnir Þorsteinn KE, Guð-
finnur KE og Kári GK hafa
landað meginþorranum af
rækjuaflanum sem farið hefur
vestur. Hluta af aflanum er
landað í kössum en einnig er
rækjunni landað í körum. Öll
rækjan er umísuð í Sandgerði
áður en hún fer í flutningabíl.
PULSA MEÐ ÖLLU
í ferðinni vestur voru um 40
kör af rækju. Lagt var af stað
kl. 01:00. Framundan var þrett-
án tíma ferðalag sent átti eftir
að verða mikið ævintýri. Bíl-
stjóri er Valur Andrésson,
starfsmaður Fiskmarkaðarins
hf. í Sandgerði. Fyrsti við-
komustaður var á pulsuvagnin-
um hjá Villa. Það var ekki
hægt að leggja upp í svona
langferð án þess að fá sér eina
♦ Þegar hér var kotnið við
sögu var bíllinn pikkfastur í
Kletthálsinum og útlitið
„svart" í hvítu kófinu. Myndir:
Hilmar Bragi
smá santan að mjaka honum
upp eftir fjallveginum þó hægt
hafi gengið. Bændur frá bæn-
um Brekku við Klettháls
fylgdu í kjölfarið og voru í
sambandi við lögregluna á Pat-
reksfirði þar sem við vorum
orðnir „sambandslausir við
umheiminn" þar sem farsíminn
var dauður í augnablikinu.
Löggan hughreysti okkur og
sagði að við hefðum verið fast-
ir í erfiðasta skaflinum.
Framundan væru smá troðn-
ingar og síðan bara skafrenn-
ingur. Það reyndist rétt og
handan við tjallið var auð jörð
og rigning. Síðan lentum við
meira að segja í sól og ryki.
SKAFLINN
Á SÍNUM STAÐ
í Kjálkafirði var stoppað til
að skoða skaflinn hans Ómars
Ragnarssonar. Skaflinn var
fyrr í suntar rúmir 20 metrar á
hæð alveg við veginn. Núna
þegar vetur er að skella á að
nýju fyrir vestan er skaflinn
litlu minni.
Á ÁFANGASTAÐ
Það voru liðnir þrettán tímar
frá því lagt var í ferðina þegar
flutningabfllinn renndi í hlaðið
hjá Ævari Guðmundssyni og
félögum hjá Rækjuveri hf. á
Bíldudal. Rækjunni var þegar
komið í hús en hana átti að
pilla strax daginn eftir.
Það eru 17 heilsdagsstörf
sem Eldeyjarrækjan skapaði á
Bíldudal í sumar en einnig
skapaði hún fleiri störf hjá
Fiskmarkaðnum hf. í Sand-
gerði því þar unnu menn allar
nætur við löndun og frágang á
rækjunni fyrir flutning. Nú er
hins vegar að koma sá tími að
fjallvegir fyrir vestan fara að
lokast og þá ntunu landflutnig-
myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
með öllu og kókómjólk í nesti.
LÖGGANí GÓÐU
SAMBANDI
Ferðin var tíðindalaus fram
eftir nóttu. Við Króksfjarðar-
nes hringdi síminn. Það var
lögreglan á Patreksfirði sem
var að athuga hvernig ferðin
gengi. Patrólöggan er í góðu
j sambandi við alla flutningabíla
á sunnanverðum Vestfjörðum
og í þessu tilfelli var hún að
láta okkur vita af þungfærum
fjallvegi. Þar þyrfti að bregða
keðjum undir biíinn ef við ætl-
uðum að komast upp. Ennþá
var töluverður spotti að þess-
um fjallvegi en áður var komið
við hjá Jóni á Bæ og tekin olía.
Flutningabíllinn okkar fer með
olíu fyrir um 15.000 krónur og
ríkið fær um 25.000 krónur í
þungaskatt af svona ferðalagi.
KOLFASTIR Á
FJALLVEGI
Það kom að því að fjallveg-
urinn þungfæri væri framun-
ana. Klettháls heitir vegurinn
og þar ríkti sannkallað vetrar-
veður. Við stoppuðum við ræt-
ur fjallsins og Valur stökk út
og setti keðjurnar undir. Blaða-
maður beið í bílnum og heyrði
nokkur blótsyrði fjúka fyrir
utan bílinn. Það var víst orðið
eitthvað síðan Valur hafði sett
flutningabíl á keðjur síðast
þannig að það gekk víst ekki
eins og í sögu. Bíllinn komst
þó fyrir rest á keðjur og lagt
var á fjallveginn. Þar fengum
við að kynnast því svakaleg-
asta í ferðinni. Bíllinn kolfest-
ist ofarlega í fjallinu og komast
hvorki afturábak né áfram. Það
eina sem bíllinn hreyfðist var
að hann rann alltaf nær veg-
kantinum þar sem það var nær
hengiflug niður.
HANDMOKAÐUR
FJALLVEGUR
Það var ekki um neitt annað
að ræða en að bregða skóflu á
loft og moka helvítis fjallveg-
inn! Eins og snjókallar mokuð-
um við frá bílnunt og tókst
♦ Svo erum við að kvarta yfir
Reykjanesbrautinni. Þetta er
þjóðvegurinn vestur.
ar að rækju ekki ganga eins og
í sumar.
HALDIÐ HEIM
Þegar rækjunni hafði verið
komið í hús á Bíldudal var
strax haldið til baka til að ná
ferð með flóabátnum Baldri
yfir Breiðafjörð. Þar gafst tími
til að slaka á í þrjá tíma meðan
siglt var til Stykkishólms. Það-
an var síðan ekið sem leið lá til
Sandgerðis.
AF HVERJU EKKI
UNNIN HÉR?
En af hverju er allri þessari
rækju ekið vestur á firði til
vinnslu meðan það eru rækju-
verksmiðjur til staðar hér á
Suðurnesjum. Þorsteinn Er-
lingsson rekur rækjuvinnslu í
Saltveri hf. í Njarðvík. Hann
sagðist í samtali við Víkurfrétt-
ir geta unnið nær alla þá rækju
sem kemur á land á Suðurnesj-
um en verksmiðjan hafi ekki
getað boðið eins vel og verk-
smiðjan á Bíldudal. Sam-
kvæmt heimildum Víkurfrétta
er Rækjuver hf. á Bíldudal að
borga 127 krónur á kílóið af
rækju. Þá leggur vinnslan til
kvóta að hluta.
20% ÚTFLUTNINGS-
VERMÆTA í SJÁV-
ARFANGI
Þetta er fyrsta árið þar sem
útgerðarmönnum rækjubáta er
frjálst að selja aflann hvert á
land sem er og til hæstbjóð-
anda, þ.e. að verslað er með
rækju á fiskmarkaði. Rækjan
er verðmætt sjávarfang því á
síðasta ári skapaði hún um
20% verðmæta í útflutningi
sjávarfangs. Það er því kapps-
mál fyrir rækjuvinnslur hér að
fá sem mesta rækju til vinnslu
og skapa verðmæti og tekjur á
svæðinu.
5jónvarpstaski
LUXOR - SHARP - SIEMENS
LUXOR 28
sjonvarp
Hafnargötu 25 - Keflavík
SÍMI 421 1535
ÞÚSUND KÍLÓMETRA
RÆKJURAUNIR
.