Víkurfréttir - 02.11.1995, Síða 12
12
2. NÓVEMBER 1995
VllfllRFRÉTTIR
Foreldrafélag Holtaskóla:
Aðalfundur
á miðvikudag
Aðalfundur Foreldrafélags
Holtaskóla verður haldinn í
sal skólans 8. nóv. nk. kl.
20:30.
Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa verður kosið í for-
eldraráð Holtaskóla.
Fulltrúi lögreglu verður
gestur fundarins og mun
ræða útivistarmál í Reykja-
nesbæ.
í grunnskólalögum sem
samþykkt voru á Alþingi sl.
vor er nýtt ákvæði um að for-
eldraráð skuli starfa við
hvem grunnskóla. I foreldra-
ráði sitja þrír foreldrar sem
ekki eru starfsmenn skólans.
Forldrar við grunnskólann
velja fulltrúa í ráðið til 2ja
ára í senn.
Stjórnin vonast til að sjá
sem flesta foreldra á fundin-
um.
Stjórn Foreldraf.
Holtaskóla.
iipniiaiií
BACK-TO-BflSÍCS 20% afsláttur
G U C C I
30% afsláttui
20% afsláttui
Bdlo^RalphLauren 20% afsláttur
Mwir
EYEWEAR
GLGRRUGNRV6R5LUN K6FLRVÍKUR
Hafnargötu 45 - Keflavík - sími 421 3811
Fjárfestingar og skattsvik
Hugleiðingar vegna greinarinnar
„Bæjarfulltrúar á villigötum?"
Nýlega hringdi til mín kona
og sagði mér merkilega sögu.
Hún sagðist reka lítið fyrirtæki
sem m.a. framleiddi vörur
samkvæmt pöntunum. Til þess
að meta stöðu síns fyrirtækis á
markaðinum hringdi hún í sam-
bærilegt fyrirtæki á höfuðbor-
garsvæðinu til að forvitnast um
verð. Ekki var langt liðið á
samtalið þegar henni var bent á
að hún gæti að sjálfsögðu
fengið verkið ódyrara ef það
yrði ekki gefið upp og þar af
leiðandi ekki greiddir skattar af
því.
Hún ákvað að kanna þetta
nánar og hringdi í annað
fyrirtæki og spurðist fyrir um
samskonar pöntun. Eftir
nokkra stund sagði hún hvað
hefði staðið til boða á fyrri
staðnum. Þá kom stutt hlé en
síðan fékk hún það svar að
fyrst keppinauturinn gerði það
yrði þetta fyrirtæki að gera það
líka, frekar en að missa verkið.
Svo spurði þessi ágæta kona,
hvernig á ég að keppa við
þetta?
Þetta litla dæmi, sem því
miður er ekki einsdæmi vekur
okkur til umhugsunar um það
hvert stefni í svona rekstri?
Sem betur fer á þessi lýsing þó
oftast aðeins við lítil fyrirtæki
og alls ekki öll.
Það er þó ekki úr vegi að
velta því fyrir sér hvemig þetta
breytir samkeppnisstöðu
fyrirtækja. Ef eitt fyrirtæki
tekur uppá skattsvikum má
búast við því að keppinautamir
geri það líka. Eftir standa
fyrirtæki með sömu innbyrðis
samkeppnisaðstæður og áður
en einu siðgæðisþrepi neðar.
HAUSTDAOAR
G0TT URVAL
HEIMILISTÆKJA
Mikið úrval af íþróttavörum - Kuldaskór ó börn!
VERSLUN
nnyv
«TÍ'/aR
HEIÐARTUNI 2 - GARÐI - SIMI 422 71 03
♦ Jóhann Geirdal,
bæjarfulltrúi
skrifar
Slík þróun getur aldrei orðið til
heilla og því mikilvægt að
spornað sé við henni.
Rekstrarumhverfi sem ekki
styðst við lög eða gildandi
reglur er heiðarlegum atvin-
nurekendum erfitt. þeir geta
ekki treyst því að aðrir fari að
settum leikreglum. Rekstrar-
umhverfi er samt það sem
svokallaðir fjárfestar hafa mes-
tan áhuga á þegar þeir taka
sínar ákvarðanir.
í Víkurfréttum 26. okt. lætur
„rekstrar- og stjórnunarfræð-
ingur“ að því liggja að fjárfest-
ar séu frekar að leita að aðstöðu
til að svíkja undan skatti en
eðlilegu rekstrarumhverfi þar
sem segir m.a. „Þess vegna
eigum við ekki að setja upp
einskunar „lögreglu" sem
hræðir fjárfesta og eigna-
menn burtu frá bæjarfélag-
inu“. Eg fullyrði að þessir
aðilar eru ekki að leita eftir
aðstöðu til að svíkja undan
skatti. Þvert á móti meta þeir
meira að vita af heilbrigðu
rekstrarumhverfi, þar sem væn-
tanlegir samkeppnisaðilar sitja
skattalega við sama borð.
Vitneskjan um að aðhald sé til
staðar, sem heldur mönnum frá
þvf að misnota opinbert fé til
að skekkja samkeppnisstöðuna
sér í hag, stuðlar frekar að því
að menn þori að fjárfesta hér en
að þeir forðist svæðið.
Eg er hins vegar hissa á því
áliti sem „rekstrar og stjórn-
unarfræðingurinn“ virðist hafa
á fjárfestum og eignamönnum,
það er engu líkara en að hann
telji þá skattsvikara upp til
hópa sem forðist svæðið ef þeir
þurfa að sitja við sama borð og
aðrir þegnar þessa lands hvað
skattgreiðslur varðar.
Síðar í greininni telur
„rekstrar og stjómunarfræðing-
urinn“ upp kröfur sem hann
geri til bæjarfulltrúa og segir
m.a „I fyrsta lagi að þeir geri
umhverfið hér vinalegt
eignamönnum og fjárfestum,“.
Eg er þeirrar skoðunar að
hlutverk okkar sé að gera
umhverfið vinalegt öllum
íbúum svæðisins og við eigum
ekkert sérstaklega að hafa
áhyggjur af eignamönnum,
sérstaklega ekki ef í því felst
krafa um að loka augunum
fyrir hugsanlegum lögbrotum
þeirra.
Að lokum fellur hann í þá
lágkúrulegu gryfju, að flokka
alla viðleitni manna til að auka
réttlæti, undir öfund. Er það
einungis öfund sem knýr menn
til að hindra það að sumir geti
hrifsað óeðlilega mikið til sín á
meðan aðra vantar sárlega til
að komast af. Þannig flokkar
hann baráttu gegn skattsvikum
undir öfund. Það hefur e.t.v.
bara verið vegna öfundar sem
viðskiptavinur banka stöðvaði
bankaræningja um daginn,
hann hefur sennilega ekki getað
unnt honum að njóta þyfisins?
Ekki veit ég hvar þú hefur
lesið fræði þín.
Jóhann Geirdal
Tónlist:
Helgi og Kristinn
í víking
Tveir ungir tónlistarmenn
frá Suðurnesjum, þeir Helgi
Víkingsson trommari og
Kristinn Gallagher, bassa-
leikari eru á leið í víking til
Englands.
Þeir Helgi og Kristinn hafa
leikið með enska söngvaran-
um og gítarleikaranum Eric
Luis í hljómsveitinni Speed-
well blue að undanförnu hér
á landi. Þeir þremenningar
ætla að fara saman og spila
næstu mánuðina á heima-
slóðum Erics í Newcastle í
Englandi. Þar ætla þeir að
troða upp á krám og klúbb-
um.
„Það er gaman að prófa
eitthvað nýtt. Það er búið að
bóka okkur vel frani eftir
vetri í Newcastle enda er Eric
vel kynntur þar. Við munum
nýta tímann vel þarna ytra og
stefnum á útgáfu plötu með
vorinu", sagði Helgi.
Þeir félagar breyttu nafni
hljómsveitarinnar til að ná
betur til enskra. Nú heitir
grúbban „Eric and the vik-
ings“.
„Við ætlum Ifka að ná til
fjölntargra íslendinga sem
munu heimsækja Newcastle
nú í haust og eruni með
nokkur íslensk lög í
prógramminu", sagði Helgi
sem hefur spila með hljóm-
sveitunum Ofris, Blúsbroti,
Örkinni hans Nóa og sfðast
en ekki síst Léttsveit Tónlist-
arskóla Keflavíkur. Félagi
hans, Kristinn hefur einnig
leikið með Örkinni og báðir
hafa þeir tekið þá í tónlistar-
flutningi á söngleikjum sem
hafa verið fluttir á Suðurnesj-
um undanfarin ár.