Fréttablaðið - 17.01.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 4 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 7 . J a n ú a r 2 0 1 7
FrÍtt
MÍN AÐ SKRÁ SIG
DAGAR FRÍTT3
2now.is
lögregluMál Tengsl síma Birnu
Brjánsdóttur, sem týnd hefur verið
síðan á laugardagsmorgun, við
símamöstur í miðbænum benda til
þess að hún hafi ekki farið inn í bíl
á Laugavegi heldur frekar á Hverfis-
götu. Mikil leit stendur yfir að rauð-
um Kia Rio fólksbíl en það hvernig
síminn tengist símamöstrum mið-
bæjarins bendir til þess að sími Birnu
hafi ferðast í öfuga átt við bílinn.
Lögreglan hefur birt myndband
af Birnu þar sem hún gengur upp
Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur. Í
lok myndbandsins, þegar Birna er
stödd við Klapparstíg, er sími hennar
tengdur við símamastur í húsnæði
Máls og menningar við Laugaveg.
Skömmu síðar tengist sími Birnu
símamastri við Lindargötu, sem
getur bent til þess að Birna beygi
niður af Laugavegi og á Hverfisgötu.
Ekki löngu síðar tengist síminn síma-
mastri á gamla Landsbankahúsinu á
horni Barónsstígs og Laugavegar.
Þremur til fjórum mínútum síðar
tengist sími Birnu símamastri við
Listaháskólann á horni Sæbrautar
og Laugarnesvegar, en talið er full-
víst að þegar þangað sé komið, frá
því að síminn tengist við Baróns-
stíg, sé Birna komin í ökutæki á ferð.
Rúmum tuttugu mínútum síðar er
slökkt á símanum handvirkt þegar
hann tengist símamastri á gömlu
slökkvistöðinni við Flatahraun í
Hafnarfirði.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er mun minna myndavélaeftir-
lit á Hverfisgötu en á Laugavegi. Sam-
kvæmt ofangreindum upplýsingum
kemur sterklega til greina, að mati
lögreglu, að myndavél við Laugaveg
31, sem kviknar á við hreyfingu, hafi
ekki numið hæga hreyfingu Birnu og
hún gengið niður eftir Vatnsstíg.
Rauði bíllinn sem lögreglan leitar
nú, í þeirri von að ökumaður bílsins
reynist mikilvægt vitni, sést í mynda-
vél keyra í öfuga átt við Birnu. Akstur
hans kveikir á myndavél við Lauga-
veg 31 hjá Kirkjuhúsinu og verk-
færaverslunina Brynju. Fimmtán
til sextán sekúndum síðar sést sami
bíll á næsta horni aka yfir gatnamót
Laugavegar og Klapparstígs. Mynda-
vélar lögreglu missa sjónar á bílnum
við Ingólfsstræti en tímaramminn og
tenging símans gerir það að verkum
að lögreglu finnst afar ólíklegt að
Birna hafi farið upp í bílinn. Þó er
það ekki útilokað. – snæ / sjá síðu 10
Fór ekki upp í bíl við Laugaveg
Fjarskiptagögn sem lögregla hefur rannsakað benda til þess að Birna Brjánsdóttir hafi gengið frá Laugavegi
niður á Hverfisgötu. Þá er talið nánast útilokað að hún hafi getað verið tekin upp í hinn rauða Kia Rio.
Síðustu myndirnar sem náðust af Birnu Brjánsdóttur sýna hana ganga áleiðis upp Laugaveg. Skömmu síðar er eins og hún hverfi og ekkert hefur spurst til hennar síðan. Mynd/LögregLa
Þeir sem hafa upplýs-
ingar um ferðir Birnu eru
hvattir til að hafa samband
við lögreglu í síma 444 1000
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
7
-2
7
3
8
1
B
F
7
-2
5
F
C
1
B
F
7
-2
4
C
0
1
B
F
7
-2
3
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K