Fréttablaðið - 17.01.2017, Blaðsíða 30
Kia frumsýnir nýjan og glæsilegan bíl á bíla-sýningunni í Detroit sem nú er að hefjast. Bíllinn hefur fengið heitið Kia Stinger og
er fjögurra dyra, sportlegur bíll og
með honum setur Kia ný viðmið í
hönnunar- og framleiðslusögu fyrir-
tækisins. Kia Stinger er bíll sem fær
hjartað til að slá hraðar bæði hvað
varðar hönnun og aksturseiginleika.
Bíllinn var kynntur sem hugmynda-
bíll á bílasýningunni í Frankfurt árið
2011 og vakti þá strax mikla athygli.
Bílsins hefur verið beðið með mikilli
eftirvæntingu og nú er hann loks
kominn fullmótaður fram á sjónar-
sviðið og í framleiðslu. Útkoman
veldur ekki vonbrigðum. Bíllinn er
hinn glæsilegasti í hönnun bæði að
utan og innan og sportlegar línur
bílsins eru áberandi. Innanrýmið
er mjög vandað og vel hannað og
þar er hvergi til sparað. Hönnunin
á Kia Stinger var í höndum Peters
Schreyer, yfirhönnuðar og eins af
forstjórum Kia Motors, sem hefur
undanfarin ár unnið til fjölda eftir-
sóttra hönnunarverðlauna fyrir bíla
Kia.
Býðst með allt að 365 hestafla vél
Mikið er lagt í hinn nýja Stinger
bæði varðandi búnað og þægindi.
Stór snertiskjár er áberandi í innan-
rýminu sem býður upp á öll helstu
þægindi sem völ er á. Kia hefur einnig
lagt mikinn metnað í að gera aksturs-
eiginleika bílsins sem allra besta og
er bíllinn búinn fullkomnu MacP-
herson-fjöðrunarkerfi að framan
og aftan. Bíllinn er í boði bæði með
afturhjóla- og fjórhjóladrifi. Kia
Stinger er búinn fimm akstursstill-
ingum, Personal, Eco, Sport, Comfort
og Smart og ökumaður getur þann-
ig valið um hvernig hann vill hafa
aksturinn. Bíllinn er búinn nýrri og
afar fullkominni 8 gíra sjálfskiptingu.
Kia Stinger er mjög aflmikill og hrað-
skreiðasti bíll sem Kia hefur nokkru
sinni framleitt. Bíllinn er með 2 lítra
bensínvél sem skilar 255 hestöflum
og togið er 253 Nm. Einnig er í boði 2
lítra dísilvél sem skilar 200 hestöflum.
Í GT útfærslunni er 3,3 lítra bensínvél
með tvöfaldri forþjöppu sem skilar
365 hestöflum og togið er 510 Nm.
Aðeins 5,1 sekúndu í 100
Kia Stinger GT er aðeins 5,1 sekúndu
úr kyrrstöðu í hundraðið. Hámarks-
hraði bílsins er 269 km/klst. Bíllinn
er búinn öllum nýjustu aksturs- og
öryggiskerfum frá Kia. Stinger fer í
sölu í Evrópu næsta haust. ,,Þetta er
einstakur bíll fyrir Kia bæði hvað
varðar útlitið, aflið og aksturseigin-
leikana,“ segir Albert Biermann, sem
sá um aksturseiginleikahluta bílsins.
Biermann kom frá BMW árið 2014
eftir 30 ár í starfi þar og er mjög virtur
í bílaheiminum.
Hraðskreiðasti
bíll Kia er Stinger
Kia frumsýndi nýjan Stinger-sportbíl á bílasýningunni í Detroit fyrir
skömmu. Mikið er lagt í hinn nýja Stinger bæði varðandi búnað og
þægindi. Kia hefur einnig lagt mikinn metnað í aksturseiginleika.
Ítalski sport-
b í l a f r a m -
leiðandinn
L a m b o r g -
hini, sem
er í eigu
Vo l k s w a g e n
bílasamstæðunn-
ar, hefur aldrei selt fleiri
bíla en á árinu sem var að líða. Alls
seldi Lamborghini 3.457 bíla í fyrra
og er það í fyrsta skipti sem sala fyrir-
tækisins fer yfir 3.400 bíla. Stöðugur
vöxtur hefur verið í sölu Lamborgh-
ini síðustu 6 ár og hefur salan til að
mynda aukist um 160% frá árinu
2010. Það endurspeglar reyndar
mikinn vöxt í sölu rándýrra lúxus-
bíla í heiminum á undanförnum
árum og gengur flestum þeim bíla-
framleiðendum sem framleiða þess
konar bíla vel og eru að auka sölu sína
mikið. McLaren hefur tilkynnt um
tvöföldun í sölu á síðasta ári og Rolls
Royce átti til dæmis sitt næstbesta
ár frá upphafi. Framleiðslubílgerðir
Lamborghini eru aðeins tvær og mest
seldist af Huracan, eða 2.353 bílar og
af Aventador 1.104 eintök. Afar jöfn
dreifing er á sölu bíla Lamborghini
á milli Ameríku, Asíu og Evrópu
ásamt Miðausturlöndum og Afríku
og skipta þessi þrjú heimssvæði með
sér sölunni nánast í þrennt. Spenn-
andi tímar eru fram undan hjá Lamb-
orghini en styttast fer í kynningu á
fyrsta jeppa fyrirtækisins og hefur
hann fengið nafnið Urus.
Nýr Mercedes-Benz E-Class Coupé
var frumsýndur í Þýskalandi fyrir
skömmu en hans var beðið með
talsverðri eftirvæntingu eins og
flests sem kemur frá lúxusbíla-
framleiðandanum í Stuttgart. Þessi
tveggja dyra sportbíll er glæsileg
viðbót við nýja kynslóð E-Class
línunnar sem frumsýnd var fyrr á
árinu. E-Class Coupé verður fáan-
legur með fjórum vélarstærðum.
Í E220d útfærslunni er hin nýja
og hagkvæma 2,0 lítra dísilvél frá
Mercedes-Benz sem er í hefðbundn-
um E-Class. Þrátt fyrir mikið afl og
skilvirkni þá er hún eyðslugrennri
og umhverfismildari en fyrri vélar
sem í boði hafa verið. Þessi vél
skilar sportbílnum 195 hestöflum
og kemur honum í hundraðið á 7,4
sekúndum. Þá verða þrjár bensín-
vélar í boði í E-Class Coupé, sú
kraftmesta er 3 lítra, 328 hestafla
V6 vél í E400 bílnum sem skilar
honum í hundraðið á aðeins 5,3
sekúndum. Bíllinn er með þremur
aksturskerfum, Comfort, Sport og
Sport + þannig að ökumaður getur
ráðið hvernig tilfinningu hann vill
hafa í akstrinum. Sportbíllinn er
fallega hannaður bæði að innan og
utan og mikið er lagt upp úr lúxus.
Nýr E-Class Coupé
frumsýndur
Bílar
Mercedes-Benz E-Class Coupé.
Lamborghini
með sölumet
í fyrra
Kia Stinger fæst með allt að 365 hestafla vél
1 7 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r22 F r É T T a B L a Ð I Ð
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
...fyrir alla muni
SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR
Tilboðsdagar í
Verslun Guðsteins
Valdar vörur með óheyrilega miklum afslætti
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
7
-3
1
1
8
1
B
F
7
-2
F
D
C
1
B
F
7
-2
E
A
0
1
B
F
7
-2
D
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K