Fréttablaðið - 17.01.2017, Qupperneq 2
Standa með sjómönnum og vélstjórum
Áfram var fundað í gær í kjaradeilu útgerðarinnar við sjómenn. Hópur manns kom saman á Austurvelli til að sýna sjómönnum stuðning í verki. Verkfall
þeirra hefur nú staðið yfir í rúman mánuð. Boðað hefur verið til nýs fundar í deilunni klukkan ellefu í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Veður
Í fyrramálið verður áfram stíf suðvestan
átt á landinu með éljum, en það lægir
smám saman og styttir upp þegar kemur
fram á morgundaginn. sjá síðu 18
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
Vörurnar fást í Lyf og heilsu, Lyfjaveri, Apótekaranum, Hraunbergsapóteki,
Lyfsalanum Glæsibæ,Akureyrarapóteki, Apóteki Mos og Apóteki Ólafsvíkur.
Nánari upplýsingar
fást á www.wh.is.
Ferðalög Ferð Úrvals Útsýnar og
vefsíðunnar Kop.is til Liverpool um
helgina seldist upp á rúmum sólar
hring. Þeir aukamiðar sem fóru í
sölu skömmu síðar seldust upp á
nokkrum klukkustundum. Ferða
skrifstofurnar Vita ferðir, Gaman
ferðir og TransAtlantic buðu einn
ig upp á skipulagða ferð á leikinn
og er uppselt hjá þeim öllum. Það
má því búast við nokkur hundruð
Íslendingum á heimavelli Liverpool,
Anfield, þegar Gylfi Sigurðsson og
lið hans, Swansea, koma í heimsókn
um helgina.
Ferðin var ódýrust hjá Gaman
ferðum þar sem hún kostaði
109 þúsund en dýrust hjá
Úrvali Útsýn á 135 þús
und. Misjafnt er hvað er
innifalið í miðaverðinu. Í
kop.is ferð Úrvals Útsýn
ar er flogið til Birming
ham og ekið með rútu til
Liverpool. Farið er utan
á fimmtudegi og lent á
Íslandi á mánudag. Trans
Atlantic flýgur til Man
chester eins og Vita ferðir
en aðeins fyrrnefnda félagið
býður upp á ferðalag til og frá
flugvelli. Hjá Gaman ferðum er
flogið til London og þurfa ferða
langar að koma sér sjálfir til Liver
pool.
Kristján Atli
Ragnarsson,
einn af rit
s t j ó r u m
v e f s í ð
unnar kop.is,
segir að eftirspurnin eftir miðum á
Anfield sé mjög mikil og auðveld
lega hefði verið hægt að ferja fleiri
Íslendinga til borgarinnar um
helgina. „Það verður haugur af
Íslendingum þarna. Við stækkuðum
ferðina okkar og það seldist upp á
nokkrum klukkutímum.“
Alls fékk
vefsíðan 70
miða á leik
inn og segir
Kristján að
áhuginn á
l e i k j u m
L i v e r
pool sé mjög
mikill, ekki aðeins frá
íslenskum stuðnings
mönnum heldur einnig
frá stuðningsmönnum
annars staðar í heim
inum. „Við erum
búnir að skipuleggja
svona ferðir í fjögur
ár og ætluðum að fara
tvær ferðir, eina fyrir
jól og eina eftir jól.
En aðsóknin er svo
mikil og uppselt í
flestar aðrar ferðir
sem eru í boði
að það er
kominn
t ö l u
v e r ð u r
þrýstingur á að fara í aðra ferð. Trú
lega verða því farnar þrjár ferðir yfir
þetta tímabil.“
Um hverja helgi fara fjölmargir
Íslendingar utan til að horfa á leiki
í enska boltanum, bæði í skipu
lögðum ferðum ferðaskrifstofa og
á eigin vegum. „Ég hef aldrei farið
í fótboltaferð án þess að hitta ein
hvern sem er líka að fara á leik í
enska boltanum. Það er hluti af því
að vera Íslendingur á veturna – að
styðja sitt lið í Englandi,“ segir hann
og hlær. benediktboas@365.is
Loftbrú til Liverpool
Mörg hundruð Íslendingar ætla að horfa á viðureign Liverpool og Swansea um
helgina. Fjórar ferðaskrifstofur eru með skipulagðar ferðir og seldist upp í þær
allar á mjög skömmum tíma. Áhuginn á enska boltann sjaldan verið meiri.
Einstök stemning er á Anfield og eru fjölmargir íslenskir
stuðningsmenn að fara um helgina að sjá leik gegn Swansea.
MyNd/GETTy
Gylfi Þór
Sigurðsson,
leikmaður
Swansea.
Aðsóknin er svo
mikil og uppselt í
flestar aðrar ferðir sem eru í
boði að það er kominn
töluverður þrýst-
ingur að fara í
aðra ferð.
Kristján Atli
Ragnarsson,
ritstjóri kop.is
Verslun Neyslumynstrið í jóla
versluninni hefur breyst nokkuð og
fór fyrr af stað fyrir nýliðin jól en áður.
Hærra hlutfall jólaverslunar fór fram
í nóvember en áður hefur sést. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá Rann
sóknarsetri verslunarinnar.
Íslendingar keyptu meira á netinu
fyrir þessi jól en áður. Í desember
jókst fjöldi þeirra pakkasendinga
sem Íslandspóstur sá um dreifingu á
frá útlöndum, og ætla má að sé vegna
netverslunar, um 64 prósent frá
sama mánuði árið áður. Í nóvember
og desember samanlagt nam þessi
ársaukning pakkasendinga 61 pró
senti. Mest aukning sendinga var frá
Kína og öðrum Asíulöndum.
Flestir virðast kaupa sér föt og skó
en þannig varð 1,7% samdráttur í
veltu fataverslana og 2,8% samdráttur
í skóverslun frá árinu á undan. Á sama
tíma jókst velta í húsgögnum um
31,9%, velta stórra raftækja jókst um
12,6% og í byggingavöruverslunum
var aukningin 21,8%.
Íslendingar ferðuðust einnig mun
meira en áður fyrir þessi jól. Mikil
aukning var í ferðir til útlanda síð
ustu tvo mánuði ársins. Brottfarir
Íslendinga til útlanda gegnum Flug
stöð Leifs Eiríkssonar, samkvæmt
talningu Ferðamálastofu, voru alls
86.424 í nóvember og desember,
sem er 26% aukning í fjölda farþega
frá sömu mánuðum árið áður.
Ferðamenn greiddu í desember
með greiðslukortum sínum í íslensk
um verslunum fyrir liðlega tvo millj
arða króna. Það er fjórðungsaukning
frá desember árið áður. Stærstur hluti
erlendrar kortaveltu í verslunum í
desember var til kaupa á dagvöru,
eða 467 milljónir. – bb
Jólin komu
snemma í
þetta skiptið
Íslendingar ferðuðust mikið, versluðu
fyrr en áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANToN
Trúmál Tæplega 2.500 einstakling
ar gengu úr þjóðkirkjunni í fyrra á
meðan tæplega 700 manns gengu
í hana. Þetta kemur fram í nýjum
tölum Þjóðskrár um trú og lífsskoð
unarfélagsaðild Íslendinga í fyrra.
Árið 2015 var slegið met í úrsögn
um úr þjóðkirkjunni en þá sögðu
tæplega 5.000 fleiri sig úr kirkjunni
en gengu í þjóðkirkjuna. Í ár er
fækkunin um það bil
1.700 Íslendingar.
Er svo komið núna
að um 70 prósent
Íslendinga eru skráð
í þjóðkirkjuna sem
fær um tvo milljarða á
fjárlögum ársins
í ár. Þrátt fyrir
stöðuga fækkun
aukast fram
lögin í ár um
rúmar hundr
að milljónir
frá árinu í
fyrra. – sa
Enn fækkar í
þjóðkirkjunni
1 7 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I ð j u D a g u r2 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
7
-2
C
2
8
1
B
F
7
-2
A
E
C
1
B
F
7
-2
9
B
0
1
B
F
7
-2
8
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K