Fréttablaðið - 17.01.2017, Side 4
Leiðrétting
Á síðu 12 í Fréttablaðinu á
laugardag er mynd sögð úr
auglýsingaherferð Ghostlamp fyrir
Víking jólabjór. Hið rétta er að
myndin er úr herferð fyrirtækisins
Takumi.
Öfl ug 3.6 lítra 290 hestafl a bensínvél, Quadratrac II
fjórhjóldrif með háu og lágu drifi , ESC stöðugleikastýring,
20” álfelgur, kæling í framsætum, lykillaust aðgengi,
Alpine hljómkerfi , leðurinnrétting, rafstillanlegt og upphitað
stýrishjól, rafdrifi n framsæti, hiti í fram- og aftursætum,
8,4” upplýsingaskjár, íslenskt leiðsögukerfi , útvarpstæki
með Bluetooth raddstýringu, loftþrýstingsmælir fyrir
hjólbarða, sjálfvirk tveggja svæða miðstöð með
loftkælingu, hleðslujafnari, Bi-Xenon og LED framljós
með þvottakerfi o.fl .
32” breyting kr 380.000 - Bíll á mynd með 32” breytingu.
Tilboð: 9.990.000 kr.
32” breyting að verðmæti 380.000
kr. fylgir með. Takmarkað magn.
Umboðsaðili Jeep á Íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.jeep.is - www.isband.is - isband@isband.is
Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 11-15
ferðaþjónusta Ylströnd við Urr-
iðavatn, aðeins steinsnar frá Egils-
stöðum, verður opnuð árið 2019.
Tekist hafa samningar um uppbygg-
ingu og fjármögnun baðstaðarins og
er hönnunarvinna í fullum gangi.
Jarðböðin Mývatnssveit ehf. verða
stærsti hluthafi ylstrandarinnar, en
aðrir hluthafar eru einstaklingar og
fyrirtæki á Austurlandi sem í dag
eru ellefu talsins. Verkefnið er að
fullu fjármagnað og gera áætlanir
ráð fyrir heildarfjárfestingu upp á
um 500 milljónir, þar af hafa fengist
skuldbindandi loforð fyrir um 280
milljón króna hlutafé. Deiliskipu-
lag hefur verið samþykkt auk þess
sem samið hefur verið við landeig-
anda um lóð og rammasamningur
gerður við Hitaveitu Egilsstaða og
Fella ehf., en aðstaðan verður byggð
upp við uppsprettu hitaveitunnar
sem er aðeins í fjögurra kílómetra
fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum á
Egilsstöðum og þjónustumiðstöð
Austurlands.
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segir sveitarstjórn
fagna því að verkefnið verði að veru-
leika. Verkefnið sé mikilvægt fyrir
áframhaldandi uppbyggingu Egils-
staða og Austurlands sem áfanga-
staðar fyrir innlenda sem erlenda
ferðamenn, auk þess sem verkefnið
muni örugglega efla mjög atvinnu-
líf á svæðinu. Þá sé gleðiefni að bæði
séu heimamenn stórir hluthafar
í verkefninu og að reyndustu og
hæfustu rekstraraðilar á sviði heilsu-
ferðaþjónustu komi myndarlega að
því.
Hér vísar Björn til þess að í stjórn
verkefnisins situr meðal annarra
Steingrímur Birgisson sem stjórnar-
formaður, en hann er forstjóri Bíla-
leigu Akureyrar og stjórnarformaður
Jarðbaðanna í Mývatnssveit. Eins
Grímur Sæmundsen, varaformaður
stjórnar, en hann er formaður Sam-
taka ferðaþjónustunnar og forstjóri
Bláa lónsins sem er stór eigandi í
Jarðböðunum. Hann segist hafa verið
mjög áhugasamur um að taka þátt í
uppbyggingunni við Urriðavatn
sem hafi alla burði til að verða að
öflugum segli á Austurlandi. Magnús
Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa
Fjarðaáls, er einnig nýr stjórnar-
maður félagsins. Magnús ákvað að
taka persónulega þátt í þessu verk-
efni og segir ástæðu þess þá, að um
mjög spennandi verkefni sé að ræða
sem geti gert Austurland að enn fjöl-
breyttari stað til búsetu og heim-
sóknar.
Ívar Ingimarsson, einn aðstand-
enda verkefnisins ásamt þeim
Hilmari Gunnlaugssyni, lögmanni á
Lögmannastofunni Sókn á Egilsstöð-
um, og Hafliða H. Hafliðasyni, segist
mjög spenntur fyrir verkefninu.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessari
framkvæmd. Ég held að ylströndin
eigi eftir að hafa mikið að segja með
áframhaldandi vöxt ferðaþjónustu
hér á svæðinu – en það hefur lengi
vantað segul; stað sem hægt er að
ganga að sumar, vetur, vor og haust
– sama hvernig viðrar,“ segir Ívar.
svavar@frettabladid.is
Það hefur lengi
vantað segul; stað
sem hægt er að ganga að
sumar, vetur, vor og haust –
sama hvernig viðrar.
Ívar Ingimarsson,
gistihússeigandi á
Egilsstöðum
Ylströnd verður opnuð á Héraði
Eigendur Jarðbaðanna í Mývatnssveit og Bláa lónsins ætla að byggja upp ylströnd nálægt Egilsstöðum
Vonir bundnar við að aðstaðan verði vítamínsprauta í ferðaþjónustu. Búist við 38.000 gestum fyrsta árið.
Áætlanir gera ráð fyrir 38.000 gestum á ylströndina á fyrsta heila rekstrarári hennar. Mynd/Soffía Tinna
LandheLgisgæsLan TF-SIF, flugvél
Landhelgisgæslunnar, var flogið til
Grikklands um liðna helgi vegna
óvæntra verkefna á vegum Frontex,
Landamæragæslu Evrópusambands-
ins.
„Til að byrja með verður flugvélin í
Miðjarðarhafsverkefnum til 20. febrú-
ar en til skoðunar er að þau verði fram-
lengd þar til í lok mars. Þá kemur til
greina að vélin sinni aftur verkefnum á
svæðinu fyrir Frontex með haustinu,“
segir í tilkynningu frá Landhelgis-
gæslunni, sem kveðst hafa sent flug-
vélina utan í ljósi fjárhagsstöðu sinnar.
„Beðið verður með frekari aðhaldsað-
gerðir í rekstri stofnunarinnar uns
endanleg niðurstaða um erlend verk-
efni á árinu liggur fyrir.“ – gar
Gæsluflugvél í
Miðjarðarhafið
stjórnsýsLa Umboðsmaður Alþing-
is telur ekki tilefni til að rannasaka
hvort Bjarni Benediktsson hafi brotið
siðareglur ráðherra með því að birta
ekki upplýsingar um skýrslu nefndar
um aflandsfélög fyrr en eftir áramót.
Skýrslan var tilbúin fyrir kosningar.
Ástæðan er sú að ráðherrann hefur
lýst því yfir í fjölmiðlum að hann hafi
talið það vera mistök af sinni hálfu
að birta ekki skýrsluna fyrr. Þetta
kemur fram í bréfi sem umboðs-
maður Alþingis sendi þingmann-
inum Svandísi Svavarsdóttur, sem
hafði óskað eftir rannsókn á málinu.
Umboðsmaður er hins vegar að fjalla
með almennum hætti um skyldu
stjórnvalda til að veita aðgang að
upplýsingum. – jhh
Umbi bregst
ekki við beiðni
Tryggvi Gunnarsson. fréTTablaðið/Villi
landhelgisgæslan fékk Tf-Sif árið
2009. Mynd/lHG
1 7 . j a n ú a r 2 0 1 7 þ r i ð j u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
7
-3
F
E
8
1
B
F
7
-3
E
A
C
1
B
F
7
-3
D
7
0
1
B
F
7
-3
C
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K