Fréttablaðið - 17.01.2017, Side 6
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu með nefinu
Otrivin/Otrivin Junior/Otrivin Comp/Otrivin Menthol nefúði, lausn. Inniheldur Xýlómetazólínhýdróklóríð. Bólgur
og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun
lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Otrivin-Andadu-5x10-2016.indd 1 30.12.2016 11:43
orkumál Stórátak þarf í endurupp-
byggingu flutningakerfis raforku ef
orkuskipti í íslensku samfélagi eiga
að verða að veruleika. Sverrir Jan
Norðfjörð, framkvæmdastjóri
þróunar- og tæknisviðs hjá Lands-
neti, segir kostnaðinn geta hlaupið
á um 40 milljörðum til 2030 ef
dreifikerfið á að geta flutt raforku
skammlaust á milli svæða. Fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs telur
hægt að orkuskipta öllum bílaflota
Íslendinga með þeirri orku sem nú
er fyrir hendi.
Sigurður Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs, segir orku-
skipti í samgöngum möguleg án þess
að virkja þurfi frekar. „Tíu prósent
landsmanna hita hús sín með raf-
magni. Það er hægt að fækka þeim
með varmadælum. Ef við myndum
losa helminginn af því rafmagni
sem fer í húshitun gæti það rafmagn
dugað á um 116 þúsund rafbíla. Einn-
ig má ná miklum sparnaði í raforku
með LED-lýsingu á götum sveitar-
félaga. Rafmagnið er til, við þurfum
að nýta það betur,“ segir Sigurður
Tilgangur samantektarinnar var
að kortleggja þær auknu kröfur sem
orkuskipti munu gera til raforkuinn-
viða landsins. „Í skýrslu VSÓ Ráð-
gjafar og Landsnets um orkuskipti
í íslensku samfélagi stillum við upp
nokkrum sviðsmyndum um fram-
tíðina, sem innihalda mismikil orku-
skipti. Til lengri tíma litið teljum við
að hægt sé að draga enn frekar úr
losun gróðurhúsalofttegunda um allt
að 1,5 milljónir tonna á ári. Til þess
þarf þó að stórbæta flutningskerfið
en markmið okkar er að geta flutt
raforku til allra á sem hagkvæmastan
hátt," segir Sverrir Jan.
Í skýrslu Landsnets er dregið fram
að ef eigi að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda með orkuskiptum
upp á 1,5 milljónir tonna á ári þurfi
um 880 MW af rafmagni til þess.
Tvær líklegri sviðsmyndir snúa að
því að minnka losun um 340 þúsund
tonn á ári en Alþingi samþykkti á
síðasta ári aðgerðaáætlun um raf-
orkuskipti. Markmið áætlunarinnar
er að fimmfalda hlutfall endurnýj-
anlegrar orku í samgöngum á landi
og hundraðfalda hlutfallið fyrir haf-
tengda starfsemi.
Björt Ólafsdóttir, nýr umhverfis-
og auðlindaráðherra, segir mikil-
vægt að áætlunin gangi eftir. „Við
eigum að vera leiðandi á heimsvísu
og sýna öðrum þjóðum hvernig
þetta er gert. Það er rétt hjá Lands-
neti að við verðum að efla flutn-
ingskerfið til að þetta megi verða.
Við ættum að einhenda okkur
í það verk. Hins vegar þurfum
við að gera það rétt og vel með
umhverfissjónarmið að leiðar-
ljósi,“ segir Björt.
sveinn@frettabladid.is
Óþarft að virkja til aukinna orkuskipta
Hægt er að nýta raforku sem til er á Íslandi til að knýja allan bílaflota landsmanna. Raforka er nú að miklu leyti uppseld en að
mati framkvæmdastjóra orkuseturs er hún illa nýtt. Björt Ólafsdóttir, nýr umhverfisráðherra, vill einhenda sér í verkefnið.
Hægt er að minnka losun gróðurhúsa-
lofttegunda um 1,5 milljón tonn á ári
með orkuskiptum. Fréttablaðið/GVa
Sigurreifur lögmaður
Egypski lögmaðurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Khalid Ali var að vonum ánægður eftir að Hæstiréttur landsins komst að þeirri niður-
stöðu að framsal stjórnvalda á landi til Sádi-Arabíu stæðist ekki stjórnarskrá. Málið snerist um eyjarnar Tiran og Sanafir sem eru óbyggðar en hafa
mikið hernaðarlegt mikilvægi. Mikil fagnaðarlæti brutust út í landinu eftir niðurstöðu dómsins. Fréttablaðið/EPa
SVÍÞJÓÐ Fái strákar meiri íþrótta-
kennslu gengur þeim betur í skól-
anum. Þetta eru niðurstöður nýrrar
rannsóknar við Háskólann í Lundi.
Skoðaðar voru lokaeinkunnir í
grunnskóla hjá 630 nemendum á
árunum 2003 til 2012. Nemendur
fengu íþróttakennslu á hverjum degi
alla skólagönguna.
Strákum sem fengu nóga góða ein-
kunn til að komast í framhaldsskóla
fjölgaði um sjö prósentustig, eða úr
88 prósentum í 95 prósent.
Enginn munur var á einkunnum
stelpnanna. Það er að mestu rakið
til þess að strákarnir voru í upphafi
með lægri einkunnir. Stelpurnar
urðu sterkari, að því er sænska sjón-
varpið hefur eftir einum vísinda-
mannanna. – ibs
Betri einkunnir
af meiri leikfimi
Íþróttir hafa jákvæð áhrif á heilsu og
námsárangur. Fréttablaðið/VilHElM
Við eigum að vera
leiðandi á heims-
vísu og sýna öðrum þjóðum
hvernig þetta er gert.
Björt Ólafsdóttir um-
hverfisráðherra
630
nemendur tóku þátt í
rannsókninni
1 7 . J a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J u D a G u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
7
-5
3
A
8
1
B
F
7
-5
2
6
C
1
B
F
7
-5
1
3
0
1
B
F
7
-4
F
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K