Fréttablaðið - 17.01.2017, Síða 8
BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI
ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
RENAULT Megane Expression.
Nýskr. 05/16, ekinn 33 þ.km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ 2.690 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
PEUGEOT 5008.
Nýskr. 03/15, ekinn 53 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 2.990 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
OPEL Adam.
Nýskr. 11/15, ekinn 9 þ.km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ 2.290 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
HYUNDAI Santa Fe III Style.
Nýskr. 01/15, ekinn 52 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 5.990 þús. kr.
Staðsetning: Hyundai, Kauptúni 1
HYUNDAI i10 Comfort.
Nýskr. 11/15, ekinn 17 þ.km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ 1.750 þús. kr.
Staðsetning: Hyundai, Kauptúni 1
TOYOTA Auris Active.
Nýskr. 05/15, ekinn 18 þ.km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ 2.990 þús. kr.
Staðsetning: Hyundai, Kauptúni 1
Rnr. 152632
Rnr. 284147
Rnr. 152643
Rnr. 121164
Rnr. 121179
Rnr. 143768
www.bilaland.is
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
9
5
8
3
B
íl
a
la
n
d
A
lm
e
n
n
2
x
3
8
1
7
ja
n
SviSS Meðal gesta á efnahagsráð-
stefnunni í Davos í Sviss þetta árið er
Xi Jinping, forseti Kína. Þar hittast á
hverju ári margir helstu forystusauðir
viðskipta og stjórnmála í heiminum.
Enginn kínverskur forseti hefur
áður mætt þar til leiks og þess vegna
hefur athygli fjölmiðla beinst mjög að
honum, ekki síst reyndar í von um að
hann gefi kannski einhverjar vísbend-
ingar um það hvernig hann muni tak-
ast á við nýjan forseta Bandaríkjanna.
Donald Trump tekur við á föstu-
daginn og hefur ekkert hikað við að
ögra Kínverjum, þótt fyrri Banda-
ríkjaforsetar og aðrir þjóðarleiðtogar
hafi flestir hverjir forðast slíkt eins og
heitan eldinn.
Xi flytur opnunarávarp ráð-
stefnunnar í dag og mun að sögn
kínverskra fjölmiðla leggja áherslu
á mikilvægi alþjóðavæðingar við-
skiptalífsins, sem er þveröfugt við þá
einangrunarhyggju sem Trump hefur
boðað.
Trump verður hins vegar fjarri
góðu gamni og Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti mætir ekki, en Theresa
May, forsætisráðherra Bretlands,
kemur til Davos síðar í dag eftir
að hafa flutt ræðu heima fyrir um
útgöngu Bretlands úr Evrópusam-
bandinu.
Í tengslum við ráðstefnuna eru
jafnan gefnar út miklar skýrslur um
ástand efnahagsmála í heiminum. Þar
á meðal senda alþjóðlegu góðgerðar-
samtökin Oxfam frá sér samantekt
um ójöfnuð, sem þetta árið leiðir í ljós
að átta ríkustu menn heims eiga jafn
mikið og fátækari helmingur mann-
kyns.
Oxfam bendir á að einungis um
fjórðungur þeirra 1.800 manna sem
talist geta milljarðamæringar í doll-
urum talið hafi eignast auð sinn með
dugnaði og heiðarlegri vinnu. Þriðj-
ungur hafi erft féð en um 43 prósent
þeirra hafi komist yfir peninga vegna
aðstöðu sinnar.
Ráðstefnunni í Davos lýkur á föstu-
daginn.
gudsteinn@frettabladid.is
Forystusauðir funda
Forseti Kína opnar og ávarpar Davos-ráðstefnuna í dag en kínverskur forseti
hefur aldrei áður sótt þessa árlegu samkomu valdamestu manna heims.
Mikil öryggisgæsla er að venju í svissneska fjallaþorpinu Davos þegar helstu valdamenn heims safnast þar saman. Þarna eru
lögreglumenn á þaki ráðstefnuhallarinnar að fara yfir öryggisatriði. Fréttablaðið/EPa
menningarmál „Af sögulegum
og umhverfislegum ástæðum er
ekki æskilegt að ylrækt flytjist
alfarið burt úr miðbænum,“ segir í
bókun fulltrúa Samfylkingarinnar
í Hveragerði sem leggja til að gert
verði varðveislumat gróðurhúsa í
bænum. Það verði notað við vernd-
un einstakra gróðurhúsa.
„Þegar mest var voru um 50.000
fermetrar af gróðurhúsum í bænum.
Í lok árs 2010 voru 24.000 fer-
metrar og hefur þeim fækkað enn
meira síðan. Má þar nefna niðurrif
gróðurhúsa Grímsstaða, Edens og
gróðurhúsa við Bröttuhlíð. Gróður-
hús í Hveragerði eru því fá eftir og í
miðbæ Hveragerðis hafa þau horfið
hratt undanfarin ár.“
„Gróðurhúsin hafa verið hluti af
Hveragerði frá upphafi byggðar árið
1929 og eru þar af leiðandi órjúfan-
legur hluti af ímynd bæjarins og eitt
meginsérkenni hans ásamt hvera-
svæðinu í miðju bæjarins,“ segir
áfram í tillögu Samfylkingar. „Það
má þó ljóst vera að miðbær Hvera-
gerðis án þeirra yrði vart svipur hjá
sjón.“
Afgreiðslu tillögunnar var frestað
fram að næsta bæjarstjórnarfundi.
Í millitíðinni verður sérstakur
vinnufundur bæjarfulltrúa um
málið. – gar
Áhyggjur af gróðurhúsum í Hveragerði
Mörg gróðurhús í Hveragerði eru í
niðurníðslu. Fréttablaðið/PjEtur
KirgiStan Tyrknesk flutningaflugvél
hrapaði í Kirgistan í gærmorgun með
þeim afleiðingum að um 40 manns
fórust.
Flestir hinna látnu voru íbúar í
litlu þorpi þar sem vélin hrapaði.
Vélin var af gerðinni Boeing 747
og var á leiðinni frá Hong Kong
til Istanbúl, en átti að millilenda á
Manas-flugvelli í Kirgistan, nálægt
höfuðborginni Bishkek.
Mikil þoka var þegar vélin lækk-
aði flug til lendingar. Hún brotlenti
skammt frá þorpinu Dachi Suu og
þaut áfram nokkur hundruð metra
í gegnum þorpið, með þeim afleið-
ingum að mörg hús eyðilögðust
algerlega og tugir íbúa fórust.
Fyrstu upplýsingar bentu til þess
að 37 manns hafi látið lífið. Forseti
Kirgistans, lýsti því yfir að þjóðarsorg
muni ríkja í landinu í dag. – gb
Flutningavél hrapaði niður á lítið þorp
björgunarmenn að störfum í flaki vélarinn sem fórst. Fréttablaðið/EPa
Enginn kínverskur
forseti hefur áður mætt þar
til leiks og þess vegna hefur
athygli fjölmiðla beinst mjög
að honum
1 7 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r i Ð j U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
7
-4
E
B
8
1
B
F
7
-4
D
7
C
1
B
F
7
-4
C
4
0
1
B
F
7
-4
B
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K