Fréttablaðið - 17.01.2017, Qupperneq 10
LögregLumáL Ein af stóru spurn-
ingunum sem lögreglan reynir
að fá svör við í rannsókn á hvarfi
Birnu Brjánsdóttur er hvert ferð
hennar var heitið eftir að skemmti-
stöðum miðbæjarins var lokað. Í
myndbandi sem lögreglan birti í
gær sést hvernig Birna gengur upp
Laugaveg en hverfur sjónum ein-
hvers staðar frá Klapparstíg að
Vatnsstíg. Lögregla segir þrjá mögu-
leika í stöðunni, að Birna hafi farið
inn í húsasund á leiðinni, en þau
eru tvö, að Birna hafi farið upp í bíl
eða Birna hafi beygt niður Vatnsstíg
án þess að hreyfiskynjari á eftirlits-
myndavél lögreglunnar hafi numið
ferðir hennar.
„Ef við berum saman við það
hvað fjölskylda hennar segir, að
ekki sé líklegt að hún hafi verið að
labba heim til sín, þá veltir maður
fyrir sér hvert leið hennar getur
legið. Var hún að fara eitthvert
ákveðið eða búin að mæla sér mót?
Þetta er eitt af því sem við erum að
reyna að varpa ljósi á,“ segir Grímur
Grímsson yfirlögregluþjónn og sá
sem fer fyrir rannsókn á hvarfi
Birnu.
Yfir hundrað björgunarsveitar-
menn leituðu í gær að Birnu án
árangurs. Ekkert hefur spurst til
ferða Birnu síðan á laugardags-
morgun. Á blaðamannafundi í gær
sagði lögreglan engar öruggar upp-
lýsingar benda til þess að nokkuð
saknæmt hafi átt sér stað. Málið er
því rannsakað sem mannshvarf.
Eins og Fréttablaðið greinir ítar-
lega frá í dag má áætla ferðir Birnu
út frá því hvernig sími hennar teng-
ist símamöstrum í miðbænum. Velt
hefur verið upp þeim möguleika að
síma Birnu hafi verið stolið en það
ekki talið líklegt, bæði vegna þess
að sími Birnu virðist fylgja henni
upp Laugaveginn, en einnig vegna
þess að ekki hefur verið reynt að
nota greiðslukort hennar frá því
hún notaði þau sjálf í miðbænum,
sem bendir til þess að veski Birnu
hafi ekki verið stolið. Þá má sjá í
myndbandi sem lögregla birti af
ferðum Birnu að hún hefur heyrn-
artól tengd við tæki í vasa sér sem
leiða má líkur að að sé sími hennar.
Grímur segir að allt hafi virst
eðlilegt þar til Birna hverfur. Meðal
annars hafa verið skoðuð mynd-
bönd af henni frá skemmtistaðnum
Húrra. „Þau samskipti eru ekki á
neinn hátt fjandsamleg. Þar er bara
fólk að skemmta sér og dansa.“
Ekkert bendir til þess að Birna hafi
verið elt upp Laugaveg.
Lögreglumenn leituðu í gær-
morgun fyrir utan skemmtistað-
inn og björgunarsveitarmenn voru
kallaðir út til leitar í miðbænum og
í Flatahrauni í Hafnarfirði. Þá voru
flygildi einnig nýtt til leitar á strand-
lengjunni frá Hörpu að Laugarnesi.
Í gærmorgun lýsti lögreglan eftir
rauðum Kia Rio sem sást á öryggis-
myndavél skammt frá þeim stað þar
sem síðast sást til Birnu á upptökum
úr öryggismyndavél. Bílnúmer öku-
tækisins er ógreinanlegt af mynd-
unum sem lögregla dreifði sökum
lélegra gæða. Lögð er áhersla á að
ná tali af ökumanni bifreiðarinnar
í þeirri von að hann reynist mikil-
vægt vitni.
„Þetta verður ömurlega með
hverri einustu mínútu sem líður og
það er afar alvarlegt þegar svona
langur tími er liðinn. Ég man ekki
eftir svona máli þar sem við erum
jafn grandalaus um hvað hefur
gerst. Það hafa oft orðið manns-
hvörf en þá er á einhverju að byggja.
Hér er á afar litlu að byggja.“
snaeros@frettabladid.is
Vilja inn á Tinder
Meðal þess sem lögregla reynir
nú er að komast inn á Tinder-
og Snapchat-aðgang Birnu til
að skoða samskipti hennar þar
aðfaranótt laugardagsins.
Á blaðamannafundinum í gær
kom fram að lögreglumenn hefðu
fengið að skoða Facebook-síðu
Birnu og að síðustu samskipti
hennar þar hefðu átt sér stað á
fimmtudag.
„Það er þannig með þessi félög
sem eru flest bandarísk að þau
hafa stefnu um að hjálpa til þegar
um er að ræða týnt fólk. Þá er það
stundum þannig að þeir fallast á
að gefa upplýsingar,“ segir Grímur
Grímsson.
Margar ábendingar
Lögreglunni hafa borist margar
ábendingar vegna hvarfs Birnu.
Þeirra á meðal er ábending frá
konu sem setti sig í samband
við lögreglu í gær og sagði frá
árás sem hún varð fyrir ofarlega í
Bankastræti aðfaranótt 8. janúar.
Í samtali við Fréttablaðið sagði
hún frá því hvernig nokkrir menn
réðust að henni þar sem hún var
á göngu upp Bankastrætið upp úr
klukkan fimm að morgni. Eigin-
maður hennar, sem var aðeins
ofar í götunni, kom konu sinni til
bjargar og lenti í stympingum við
mennina. Þá leitaði önnur kona
aðstoðar lögreglu vegna gruns
um að hafa verið byrlað ólyfjan á
skemmtistaðnum Húrra, kvöldið
sem Birna hvarf. „Sem betur fer
er hægt að halda því fram í þessu
tilfelli að þó það sjáist að Birna
hafi neytt áfengis þá ber hún sig
ekki þannig að henni hafi verið
gefið slíkt deyfiefni,“ segir Grímur
Grímsson yfirlögregluþjónn. – snæ
Þetta verður ömur-
lega með hverri
einustu mínútu sem líður og
það er afar
alvarlegt þegar
svona langur
tími er liðinn
Grímur Grímsson
yfirlögregluþjónn
16 sek.
H v e r f i s g a t a
L a u g a r v e g u r
Kl
ap
pa
rs
tíg
ur
va
tn
ss
tíg
ur
fr
ak
ka
st
íg
ur
fr
ak
ka
st
íg
ur
Ba
ró
ns
st
íg
ur
05.25 Birna sést í myndavél á
horni Klapparstígs og Lauga-
vegs. síminn er tengdur mastri
við Mál og menningu
15–16
sekúndum síðar
sést bíllinn í
næstu myndavél um 05.25 rauður
fólksbíll sést í mynd
keyra vestur Laugaveg.
sími Birnu tengist
mastri á horni Lauga-
vegs og Barónsstígs
sími Birnu tengist
mastri við Lindargötu,
enn á gönguhraða.
05.50 er slökkt
á síma Birnu
þar sem hann er
tengdur mastri
við flatahraun í
Hafnarfirði.
Lindargata
Þremur til fjórum mín-
útum síðar tengist sími
Birnu mastri í Laugarnesi
og er kominn á ökuhraða.
La
ug
arn
es
1
2
3
4
5
6
✿ mikilvægar upplýsingar að finna í fjarskiptagögnum
1 7 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j u D a g u r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a Ð I Ð
Móðir Birnu, sigurlaug Hreinsdóttir, tjáði sig að loknum blaðamannafundi með lögreglu. Hún segir dóttur sína káta og lífs-
glaða stúlku sem lét alltaf vita af sér. Hún geti ekki gert sér í hugarlund að einhver hafi viljað vinna henni mein.
fréttaBLaðið/anton BrinK
Alvarlegt hve langur tími er liðinn
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir að öll samskipti Birnu Brjánsdóttur á skemmtistaðnum Húrra hafi virst eðlileg. Lögregla
hefur nánast útilokað að Birna hafi verið elt upp Laugaveg. Sextán sekúndur liðu þar sem rauði Kia bíllinn var ekki í mynd.
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
7
-3
A
F
8
1
B
F
7
-3
9
B
C
1
B
F
7
-3
8
8
0
1
B
F
7
-3
7
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K