Fréttablaðið - 17.01.2017, Page 13
Ágæti Guðni.Ég fluttist hingað heim, eftir 27 ára dvöl erlendis, sl.
haust. Ég hef því verið að skoða og
setja mig inn í mál hér síðustu 3-4
mánuði, en á sama tíma hefur þú
verið að byggja upp þinn forsetastíl,
sem mér líkar afar vel.
Ég segi ekki, að máltækið „Glöggt
er gests augað“ eigi við um mig, en
ég sé ýmislegt, alla vega til að byrja
með – sem aðkomumaður – öðru-
vísi en heimamenn.
Á sama hátt og margt kemur
mér hér jákvætt og vel fyrir sjónir,
er sumt, sem mér finnst miður
fara. Ég á hér einkum við viðhorf
þjóðfélagsins til dýra, lífríkisins í
kringum okkur og náttúrunnar.
Í nýliðnum kosningum talaði
enginn stjórnmálaflokkur fyrir
þessum málefnum í mín eyru. Ekki
einu sinni Vinstri grænir. Fyrir
hvað skyldi „grænir“ standa í þeirra
flokksheiti?
Nú er það svo að menn eru bara
lítill hluti af lífverum jarðar, lítill
hluti af sköpunarverkinu. Margir
virðast samt vera þeirrar skoðunar,
að lífið á jörðunni snúist bara um
mannfólkið; öll dýr, allar aðrar líf-
verur, náttúran og sköpunarverkið
í heild sinni skipti hér litlu máli.
Augljóst er auðvitað, að án heildar-
sköpunarverksins væri mannfólkið
ekki til.
Kristindómurinn, með sínum
annmörkum, ber að nokkru leyti
ábyrgð á þessari dýrkun manns-
ins. Kristindómurinn nær bara til
mannfólksins, aðrar lífverur eru
ekki teknar inn í myndina. Það er
mikil fátækt í því. Í þessu er búdd-
ismi miklu fullkomnari og ríkari
trúarbrögð. Hann nær til alls lífs á
jörðu og setur það í rétt samhengi.
Í nýársávarpi þínu, sem mér
fannst með ágætum, saknaði ég þó
þess að þú nefndir dýrin, lífríkið
og náttúru Íslands. Þegar þú sagðir
„Forseti Íslands á að vera fulltrúi og
málsvari allra Íslendinga, allra sem
búa á þessu landi“, hefði ég kosið að
heyra þig skírskota til hins íslenzka
lífríkis í heild sinni svo og til
hinnar íslenzku náttúru líka. Væru
Íslendingar eitthvað, væri Ísland
eitthvað án þessa!?
Þú ert nýr og ferskur í þínu háa
starfi, og það leynir sér ekki, að þú
vilt vel og munt gera vel. Ég bið þig
í allri vinsemd að hugleiða, hvort
að það væri ekki við hæfi, að for-
seti Íslands beitti sér fyrir öryggi,
lífskjörum og velferð allra lífvera
og alls, sem lifir og hrærist, í þessu
landi við þetta land og yfir þessu
landi.
Þú talar réttilega um, að það
þurfi að hlúa að sjúkum, fötluðum
og öðrum, sem eiga undir högg að
sækja í lífinu. En hverjir eru mest
umkomulausir og mestu smælingj-
arnir, sem enga hönd geta borið
fyrir höfuð sér, en eru samt í grund-
vallaratriðum mörg hver sköpuð
eins og við, hafa vitund eins og við
og skynja og finna til eins og við, þó
að líkamsformið sé annað?
Ég bið þig að verða forseti og
málsvari þessara smælingja líka!
Guð blessi forseta Íslands,
Íslendinga og allt lífríki Íslands!
Með vinsemd og virðingu.
Flestir íslenskir fjölmiðlar halda úti fréttaveitu á netinu, og flestir íslenskir fjölmiðlar
lifa á auglýsingatekjum. Í hvert
sinn sem við smellum á frétt á
vefnum bætist við tala á teljara í
bakgrunninum; fjölmiðilinn telur
smellina og notar upplýsingarnar
til að laða að sér auglýsendur;
svona margir heimsækja okkur á
dag, á viku, svona margir smella að
meðaltali á fréttirnar okkar – þú
ættir að auglýsa hjá okkur!
Þetta þýðir að fréttaveiturnar
eru í samkeppni um lesendur og
því skiptir máli að koma reglulega
með nýjar fréttir, og helst eitthvað
sem við lesendur smellum á.
Svona varð smellbeitan til (e.
clickbait), þ.e. við erum ginnt til
að smella á frétt með krassandi
eða misvísandi fyrirsögn og/eða
innihaldi sem stuðar, hneykslar
eða fær okkur til að gráta, hlæja
eða hoppa hæð okkar af reiði.
Þetta veldur því að fjölmiðlar
verða sífellt útþynntari, innihalds-
rýrari og óábyrgari í fréttamati og
umfjöllun.
Það sem vekur mest viðbrögð er
í forgangi. Það sem er skynsamlegt
eða rétt er aukaatriði. Þeir sem rífa
mest kjaft fá mesta umfjöllun, og
enda svo kannski sem forsetar í
mesta stórveldi á Vesturlöndum.
Þessi smellbeitumennska er
skiljanleg en óþolandi, og hún
skemmir þessa sömu vefi sem og alla
umræðu og þar með þjóðfélagið.
Þetta mun væntanlega ekkert
breytast, því miður. Æsifrétta-
mennskan er komin til að vera.
Það sem við sem lesum getum gert
er að hætta að smella á æsifréttir,
og/eða taka frekar skjáskot og deila
því heldur en að deila netslóðinni
sjálfri. Fækkum smellunum!
En svo eru það kommentakerfin
við fréttirnar. Hvers vegna í ósköp-
unum er þetta fyrirbæri til? Hver
er tilgangurinn með því að hafa
opinn aðgang að jafnstórum vett-
vangi og þessir fréttamiðlar eru?
Staðreyndin er sú að það er
háværasta, frekasta, sjálfum-
glaðasta, þröngsýnasta og verst
innrætta fólkið sem hefur ríkustu
tjáningarþörfina og hefur sig mest
í frammi.
Á þessum blessuðu þráðum er
lítið annað að finna en rógburð,
alhæfingar, rangfærslur, ærumeið-
ingar, lygar, misskilning, hatur og
heimsku.
Og þó að allir séu ekki svona
ömurlegir, hvaða tilgangi þjóna
einhver komment frá Jóni og
Gunnu um að viðkomandi sé sam-
mála eða ósammála eða finnist
að þetta sé „ekki frétt“? Ef Jón og
Gunna vilja tjá sig þá geta þau bara
deilt fréttinni á sinni Facebook-
síðu og sagt eitthvað þar. Að loka
kommentakerfinu væri ekki árás
á tjáningarfrelsi. Það væri eins og
að skrúfa fyrir krana sem dælir
mengun og sora í annars þokka-
lega hreint stöðuvatn.
Ég veit vel að ég þarf ekki að lesa
þessi komment. En þau meiða og
særa fólk á hverjum degi. Og fjöl-
miðlar birta þau og það finnst mér
óábyrgt. Fjölmiðlar ættu að axla
ábyrgð og loka fyrir hatrið og við-
bjóðinn á sínum svæðum. Hvers
vegna ættu þeir ekki að gera það?
„No comment“
Til forseta Íslands: Skilgreining á Íslendingum,
Íslandi og þínu forsetahlutverki
Ole Anton
Bieltvedt
alþjóðlegur
kaupsýslumaður
og stjórnmála
rýnir
Stefán Máni
rithöfundur
Skráning á www.deloitte.is, netfanginu skraning@deloitte.is og í síma 580-3000.
Gullteigur, Grand Hótel Reykjavík léttur morgunverður frá kl. 8.00 verð kr. 3.900.
Fundarstjórn
Katrín Olga Jóhannesdóttir,
formaður Viðskiptaráðs Íslands
Skattadagurinn
2017
Morgunverðarfundur
Fimmtudaginn 19. janúar kl. 8.30 - 10.00
á Grand Hótel Reykjavík
Breytingar á ársreikningalögum - einföldun og aukið ækjustig
Signý Magnúsdóttir,
endurskoðandi hjá Deloitte
Alþjóðageirinn: Blásið til sóknar
Salóme Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandic Startups
Skattabreytingar - alþjóðleg aðlögun og skattalegir hvatar
Bjarni Þór Bjarnason,
sviðsstjóri Skatta- og lögfræðisviðs Deloitte
Tékklisti fyrir fjármálaráðherra
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Opnunarávarp
Benedikt Jóhannesson,
fjármálaráðherra
Fréttablaðið eykur þjónustu sína
við lesendur á landsbyggðinni.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á
eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið:
Ég veit vel að ég þarf ekki að
lesa þessi komment. En þau
meiða og særa fólk á hverjum
degi. Og fjölmiðlar birta þau,
og það finnst mér óábyrgt.
Fjölmiðlar ættu að axla
ábyrgð og loka fyrir hatrið
og viðbjóðinn á sínum
svæðum. Hvers vegna ættu
þeir ekki að gera það?
Í nýársávarpi þínu, sem mér
fannst með ágætum, saknaði
ég þó þess, að þú nefndir
dýrin, lífríkið og náttúru
Íslands.
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 7 . J A n ú A R 2 0 1 7
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
7
-4
4
D
8
1
B
F
7
-4
3
9
C
1
B
F
7
-4
2
6
0
1
B
F
7
-4
1
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K