Fréttablaðið - 17.01.2017, Side 14
Danskur sigur í íslenDinga-
slagnum á Hm í frakklanDi
guðmundur guðmundsson hafði
betur gegn kristjáni andréssyni
þegar Danmörk og svíþjóð áttust
við í D-riðli Hm 2017 í handbolta
í gærkvöldi. eftir spennandi leik
voru það Danir sem höfðu tveggja
marka sigur, 27-25, en íslenski
Daninn í hægra horninu, Hans
Óttar lindberg, innsiglaði sigurinn
þegar nokkrar sekúndur voru eftir.
Ólympíumeistarar Dana eru með
tveggja stiga forskot á toppi D-
riðilsins eftir sigurinn en þetta var
fyrsti leikurinn sem kristján andr-
ésson tapar sem þjálfari sænska
landsliðsins eftir að hann tók við
því í haust. Hann kom með fimm
sigra í fimm leikjum inn á mótið og
vann fyrstu tvo leikina á Hm áður
en kom að leiknum í gærkvöldi.
Nýjast
Höttur - KR 87-92
Stigahæstir: Aaron Moss 28/12-10, Mirko
Stefán Virijevic 26/17, Ragnar Gerald
Albertsson 13, Viðar Örn Hafsteinsson 9 –
Jón Arnór Stefánsson 27, Brynjar Þór Björns-
son 16/7/6, Pavel Ermolinskij 10/13/5.
Þór Þorl. - FSu 104-68
Stigahæstir: Ragnar Örn Bragason 20,
Halldór Garðar Hermannsson 16/4 fráköst,
Ólafur Helgi Jónsson 13 – Terrence Motley
15/8 fráköst, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson
11, Jón Jökull Þráinsson 10.
Valur - Haukar 81-70
Stigahæstir: Austin Magnus Bracey 33/8
fráköst, Urald King 25/22 fráköst, Benedikt
Blöndal 11/7 – Finnur Atli Magnússon 18/5
fráköst/5 varin skot.
Í undanúrslitum karla eru: Grindavík, KR,
Þór Þ. og Valur.
Maltbikar karla, 8 liða úrslit
Skallagrímur - KR 78-42
Stigahæstar: Tavelyn Tillman 24, Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir 20, Kristrún Sigurjóns-
dóttir 9 – Perla Jóhannsdóttir 14, Ásta Júlía
Grímsdóttir 7, Margrét Blöndal 6.
Í undanúrslitum kvenna eru: Keflavík, Snæ-
fell, Haukar og Skallagrímur.
Maltbikar kvenna, 8 liða úrslit
1 7 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r14 s p o r t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð
✿ Vítin sem Björgvin páll hefur fengið á sig á HM í Frakklandi
Björgvin Páll Gústavsson hefur varið 6 af þeim
11 vítaköstum sem hann hefur reynt við á HM í
handbolta í Frakklandi en enginn markvörður á
mótinu varði fleiri víti fyrstu fimm daga keppninnar.
3/4 2/4 1/3
HM 2017 - 6 af 11 55%
EM 2016 - 3 af 9 33%
HM 2015 - 6 af 20 30%
EM 2014 - 5af 17 29%
HM 2013 -3 af13 23%
ÓL 2012 - 4 af 13 31%
EM 2012 - 8 af 24 33%
HM 2011 - 5 af 20 25%
EM 2010 - 3 af 27 11%
ÓL 2008 - 3 af 18 17%
HanDBoLtI Björgvin Páll gústavs-
son hefur farið mjög vel af stað á
Hm. Varið eins og berserkur á köfl-
um og hjálpað liðinu mikið í erfiðri
baráttu. aron rafn leysti Björgvin
síðan vel af hólmi í síðasta leik
þannig að markvarðaparið er sátt
við sína vinnu það sem af er móti.
„Tölurnar tala sínu máli. Ég held
við séum að fá á okkur 25 mörk
að meðaltali í leik. Það er frekar
óvenjulegt miðað við íslenska
handboltalandsliðið. Við erum að
standa góða vörn en erum að fá á
okkur mörk úr hraðaupphlaupum
út af tæknifeilum í sókninni,“ segir
hinn viðkunnanlegi Björgvin Páll er
við setjumst niður á hóteli lands-
liðsins í metz.
Varnarleikurinn frábær
„Varnarleikurinn hefur verið frábær
og strákarnir eiga hrós skilið fyrir
sitt framlag þar. Bjarki kom til að
mynda frábærlega inn í leikinn gegn
Túnis sem var skemmtilegt. svo var
geggjað að sjá aron koma í markið
fyrir mig og skila svona góðum leik.“
Það eru engin læti og stress í Björg-
vini. Hann er búinn að gera þetta
allt saman áður og það leynir sér
aldrei hvað hann hefur gaman af
því að spila á stórmótum. mark-
verðirnir vinna mikið saman milli
leikja við að kortleggja andstæð-
inga. Það er ekki eitthvað eitt sem
þeir hafa áhyggjur af því mörkin
koma víða að.
„Þetta er búið að vera mjög mis-
munandi milli leikja. Ég lenti til
að mynda í veseni með örvhentu
skyttuna hjá Túnis. Hann hélt þeim
inni í leiknum. Það hefur verið eini
veiki bletturinn hjá mér í leikjunum
hingað til. annars hefur það verið
dreift hvaðan mörkin eru að koma.
Það er enginn einn stór hausverkur
núna,“ segir Björgvin en íslenskir
markverðir hafa oft átt í vand-
ræðum með að verja úr hornum en
það hefur aðeins breyst.
Vinna sálfræðistríðið
Björgvin hefur verið frábær í víta-
köstum á mótinu og er búinn
að verja sex víti nú þegar. Það er
áhugavert að hann sé að bæta sig
í þeim tölfræðiflokki fjórða stór-
mótið í röð.
„Það er hluti af undirbúningnum
að skoða vítaköstin. svo er það geð-
veikin á punktinum og að vinna sál-
fræðistríðið. Það er alltaf gaman að
verja víti en það telur jafn mikið og
hinir boltarnir. Það er þó betra fyrir
egóið að verja víti og þetta hefur
verið að ganga vel hjá mér núna,“
segir Björgvin og brosir nokkuð
yfir þessari umræðu. Honum
finnst greinilega fátt skemmtilegra
en að verja víti og vítaskyttur and-
stæðinganna eru klárlega orðnar
hræddar við hann.
„Ég held að það sé alveg klárt. Það
er svo margt við vítaköstin. kannski
er maður kaldur en ef maður nær að
verja víti þá kviknar aftur á manni.
Gott fyrir egóið að verja víti
Björgvin Páll Gústavsson er búinn að hræða vítaskyttur andstæðinga Íslands á HM enda hefur hann varið
meira en helming vítanna sem hann hefur fengið á sig. Hann er sífellt að bæta sig í þessum tölfræðiflokki.
A-riðill
HM-dagskráin
13.00 Noregur - Brasilía A-riðill
16.45 Pólland - Japan A-riðill
19.45 Rússland - Frakkland A-riðill
16.45 Slóvenía - Túnis B-riðill
19.45 Ísland - Angóla B-riðill
16.45 Þýskaland - S. Arabía C-riðill
16.45 Katar - Argentína D-riðill
Pólland - Rússland 20-24
Stig þjóða: Frakkland 6, Rússland 4,
Noregur 4, Brasilía 4, Pólland 0, Japan 0.
HM 2017
B-riðill
Slóvenía - Makedónía 29-22
Spánn - Angóla 42-22
Stig þjóða: Spánn 6, Slóvenía 6, Makedónía
4, Ísland 1, Túnis 1, Angóla 0.
Ungverjaland - Síle 34-29
Króatía - Hv.-Rússland 31-25
Stig þjóða: Króatía 6, Þýskaland 4, Ungverja-
land 2, Hvíta-Rúss., 2, Síle 2, Sádi-Arabía 2.
Egyptaland - Barein 31-29
Danmörk - Svíþjóð 27-25
Stig þjóða: Danmörk 6, Svíþjóð 4, Egypta-
land 4, Katar 2, Barein 0, Argentína 0.
D-riðill
C-riðill
Henry B. Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Svo er það geðveikin
á punktinum og að
vinna sálfræðistríðið. Það er
alltaf gaman að verja víti en
það telur jafn mikið og hinir
boltarnir.
Björgvin Páll Gústavsson
Björgvin Páll Gústavs-
son er núna á sínu
tíunda stórmóti með íslenska
landsliðinu en hann hefur
tekið þátt í fjórum HM,
fjórum EM og tvennum
Ólympíuleikum.
Við erum sáttir við hvernig hefur
gengið og við aron ætlum að halda
áfram á sömu braut.“
Mæta lakasta liði riðilsins í dag
í dag spila strákarnir við
angóla sem er klárlega lakasta
liðið í riðlinum. Þennan leik
á ísland að vinna en það þarf
þó vissulega að hafa fyrir því.
„Það er á stefnuskránni að verja
fleiri bolta þar. Þetta eru leikir sem
eru áskorun fyrir markverði. Þetta
eru óútreiknanlegir leikmenn. Þeir
eru villtir og það er oft erfitt fyrir
okkur og leikgreiningin okkar er
erfiðari fyrir svona leik. Þeir gera
ýmislegt sem manni dettur ekki í
hug að þeir geri. Það verður áskorun
að verjast þeim,“ segir Björgvin og
bætir við að liðið stilli dagskránni
upp þannig að þeir séu að keppa
í bikarkeppni. Þeir séu staddir í
64-liða úrslitum gegn angóla.
„svo förum við í 32-liða úrslit og
svo framvegis. Við verðum að vinna
þessa leiki og ætlum að gera það. Þá
verðum við að vera með hausinn í
lagi. mótið er búið að vera lengra
en það lítur úr fyrir að vera þar
sem leikirnir hafa verið hrikalega
erfiðir.“
Varið víti Mark á sig úr víti
Varin víti eftir leikjum á HM 2017
✿ Björgvin páll og víta-
markvarslan hans á stór-
mótum 2008-2017
46
Björgvin Páll hefur alls varið
46 af 172 vítum sem hann
hefur reynt við eða 27 pró-
sent víta í boði.
SPort
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
7
-4
9
C
8
1
B
F
7
-4
8
8
C
1
B
F
7
-4
7
5
0
1
B
F
7
-4
6
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K