Fréttablaðið - 17.01.2017, Page 20
Ef við værum ekki
að spá í afleiðing-
arnar þá værum við
eflaust að borða nammi
alla daga því nammi er
gott. Í okkar lífsstíl er ekki
pláss fyrir nammi og
myndum við ekki ná
okkar markmiðum ef það
væri nammi á boðstólum
alla daga.
Hrönn og Hafdís
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Þær Hrönn og Hafdís hafa báðar verið í einhvers konar íþróttum alla tíð en keppa báðar í fitness í dag. Hrönn byrjaði að lyfta
árið 2005 og Hafdís 2007, eftir það hafa tekið við daglegar æfingar í lyftingasalnum. MYND/ANTON BRINK
Hafdís Björg Kristjánsdóttir og
Hrönn Sigurðardóttir eiga sam-
eiginlegt áhugamál sem er hreyf-
ing, en þær hafa hvor um sig
unnið nokkra Íslands- og bikar-
meistaratitla í fitness. Aðspurð-
ar um á hvað þær leggi mesta
áherslu þegar kemur að heil-
brigði eru þær sammála um að
mataræði sé númer eitt, tvö og
þrjú og svo komi skemmtileg
hreyfing á eftir því. Þær hafa
alltaf verið í einhvers konar
íþróttum en Hrönn byrjaði að
lyfta árið 2005 og Hafdís 2007,
eftir það hafa tekið við daglegar
æfingar í lyftingasalnum.
Hvað fáið þið ykkur í morgun
mat? Við erum frekar vanafastar
á morgnana og alla morgna fáum
við okkur hafragraut og Syntha
6 Salted Caramel prótein út á frá
perform.is. Það er eins og veisla
í munni!
Uppáhaldsæfingin? Okkur
þykir mjög gaman að æfa og
finnst mjög erfitt að velja eina
uppáhalds enda með frábæran
þjálfara fyrir mót, hann Konna
Iceland fitness, sem gerir þær
spennandi og öðruvísi. En
fótaæfingar og axlir eru í miklu
uppáhaldi þessa dagana.
Hvernig er dæmigerður dagur?
Þeir eru mjög misjafnir hjá
okkur. Það er einhvern veginn
alltaf brjálað að gera og finnst
okkur það best þannig. Við æfum
alla daga og getum ráðið því svo-
lítið hvenær þar, sem við vinnum
báðar sjálfstætt. Svo rekum við
báðar heimili og það er í nógu að
snúast sem tengist því.
Hvað finnst ykkur gott að fá í
kvöldmat? Kjúklingur, sætar og
steikt grænmeti er alltaf vinsælt
og svo lax úr Fiskbúðinni Hafinu
er eitthvað sem við elskum að
borða.
Hvað er best í millimál? Egg og
möndlur en líka bananar og grísk
jógúrt. Heimatilbúið túnfisksalat
er líka æði og inniheldur einstak-
lega lítið annað en hollustu eins
og við gerum það.
Hvað fáið þið ykkur þegar þið
gerið vel við ykkur? Hafdís: Ég
elska hnetusmjör svo ég á það
til að detta ofan í dolluna og svo
elska ég sushi.
Hrönn: Góða steik og sósu,
takk! Annað þarf ég ekki enda
elska ég gott kjöt. Ekki skemmir
fyrir að fá mjúka súkkulaðiköku
eða ís í desert.
Eru þið morgunhanar eða finnst
ykkur gott að sofa út? Hér erum
við svart og hvítt.
Hafdís: Ég er mikill morgun-
hani enda byrja ég að æfa klukk-
an sex alla morgna og reyni oft-
ast að vera sofnuð fyrir klukkan
tíu öll kvöld.
Hrönn: Ég held ég sé nátthrafn
ef það ætti að kalla mig eitthvað
enda hressust á kvöldin og nótt-
unni. Annars sef ég eflaust of
lítið yfirhöfuð því það þarf jú
að koma öllum á sinn stað fyrir
klukkan átta. En ég kýs frekar að
vinna fram á nótt í friði og sofa
aðeins lengur ef mögulegt er.
Drekkið þið kaffi eða koffín
drykki? Við drekkum ekki kaffi
en við fáum okkur reglulega
amino þegar við þurfum að rífa
upp orkuna!
Eru þið nammigrísir? Sko, ef við
værum ekkert að spá í afleið-
ingarnar þá værum við eflaust
að borða nammi alla daga því
nammi er gott. Í okkar lífsstíl
er ekki pláss fyrir nammi og við
myndum ekki ná okkar mark-
miðum ef það væri nammi á
boðstólum alla daga. Hins vegar
finnst okkur gott að fá okkur
eitthvað sætt á laugardögum og
höfum við alltaf haft þá reglu.
Það gengur bara vel og engar
kvartanir yfir því.
Hvernig er dæmigerð helgi hjá
ykkur? Hrönn: Við fjölskyldan
gerum laugardagana alltaf spes
og skemmtilega til að brjóta upp
vikuna. Þá eru fáar reglur um
nammi og förum við og veljum
eitthvað dásamlegt í poka og
nauðsynlegt að fá sér borgara
eða pitsu á Íslensku flatbökunni
og helst taka ísrúnt um kvöldið.
Ég æfi alltaf um helgar og finnst
það alveg nauðsynlegt og því eru
helgarnar hjá mér eins og venju-
legir dagar enda líður mér best í
rútínunni.
Hafdís: Ég byrja oftast daginn
á að kenna spinning, fer svo heim
að vekja kallinn og pjakkana
mína. Þá taka við fótboltaæfing-
ar og alls konar sprell. Við reyn-
um að vera mjög aktíf um helgar
og finnum okkur alltaf eitthvað
skemmtilegt að bralla. Á kvöld-
in er svo oftast pöntuð pitsa frá
Flatbökunni enda einu pitsurnar
sem fara ekki illa í magann.
önnUr morgUnHani
og Hin náttHrafn
Íþróttakonurnar Hafdís Björg og Hrönn æfa alla daga en þær eiga
erfitt með að velja eina uppáhaldsæfingu. Dagarnir þeirra eru misjafnir
en það er alltaf nóg að gera hjá þeim, bæði virka daga og um helgar.
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
Lesa bara FBL
68%
Lesa bæði
FBL OG MBL
21%
Lesa bara MBL
11%
Allt sem þú þarft ...
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sep. 2016
1 7 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a
1
7
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
7
-4
4
D
8
1
B
F
7
-4
3
9
C
1
B
F
7
-4
2
6
0
1
B
F
7
-4
1
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K