Víkurfréttir - 26.09.1996, Side 13
Það getur verió
skemmtilegt að Ijá
bréfaskriftunum vissan
glæsileik með því að
nota innsigli. Nú fástí
bókabúðinni úrval inn-
sigla og erhægtað
velja á milli innsigla
með upphafsstöfum eða
skrautmynstri. Vaxið
fylgir með og er einfald-
lega kveikt á því eins
og kerti og það látið
drjúpa yfir umslagið.
Síðan er innsiglinu
þrýst í vaxið og bréfið
er tilbúið í póst.
♦ Ýmsar skreytingar eru á innsiglun-
um og má nefna bangsa, klukkur,
blóm og stjörnur. Einnig er hægt að fá
uppliafsstafinn sinn.
Bæjarstjórn Sandgerðis fór í skemmtiferð til ísafjarðarbæjar
um síðustu helgi og tók þar þátt í GJUGG í BÆ. Víkurfréttir
áttu útsendara á staðnum sem var Ijósmyndari Bæjarins
besta, vikublaðs á Vestfjörðum. Hann tók meðfylgjandi mynd
af bæjarstjórnarfólki úr Sandgerði ásamt mökum og bæjar-
stjórn ísafjarðarbæjar áður en lialdið var til kvöldverðar á
ísafirði.
VF-mynd: Bæjarins besta, ísafirði
Fiðrildi sem gengur undir nafninu Aðmíráll kom í
heimsókn til okkar á Víkurfréttum í síðustu viku.
Fiðrildið kom með heitum sunnanvindum til landsins
alla leið frá Afríku. Fiðrildisins varð fyrst vart í
Ijósakrónu við Greniteig en var síðan til skrauts á
skrifstofu blaðsins. Þá var myndin tekin af þessum
heiinshornaflakkara...
♦ Aðmírállinn sem heimsótti ritstjórn
Víkurfrétta í síðustu viku. VF-mynd:hbb
12" PIZZA
m/ tveimur áleggstegundum
kr. 650.- Frí heimsending!
LANGBEST • SÍMI4214777
Af aögerðaleysi meirihlutans
í málefnum Vesturbrautar 17
Það er nú einu sinni þannig
að þegar Framsóknarmenn og
Sjálfstæðismenn mætast í
samstarfi,
hvort sem
heldur er í
sveita- eða
ríkisstjórn,
þá er ekki
að sökum
að spyrja,
að það er
eins og
það skelli
á pólitískt alkul. Stöðnunin er
slík, að í staðinn fyrir að
ganga fram á veginn, þá
mætti betur segja að þetta
tvíeyki hlaupi hann afturábak.
Gott dænti um aðgerðarleysi
og óábyrgar skammtímalaus-
nir meirihlutans er málefni
húsnæðisins við Vesturbraut
17. betur þekkt sem Þotan.
Frá því að fyrirtækið Annir sf.
lagði upp laupana fyrir
tæpum tveimur árum, þá
hefur húsnæði þetta staðið að
mestu tómt. Það var þó í vor,
sem hluti þess, eldhúsið, var
leigður Axeli Jónssyni í
Matarlyst og stendur sá samn-
ingur til áramóta. Samkvæmt
samningi þessum er þessi
hluti hússins leigður fyrirtæk-
inu til áramóta og hefur hluti
leigunnar runnið í endurbætur
á húsnæðinu. Þrátt fyrir það
að það sé gott mál að sjá
aukin umsvif fyrirtækis eins
og Matarlystar hér í bæjar-
félaginu, þá er þetta langt ffá
því að kallast einhver fram-
tíðarlausn í málefnum húss-
ins. Það gefur auga leið að
ef/þegar endanleg ákvörðun
um afdrif hússins verður tekin
er það allt eins líklegt að
fyrmefndar breytingar séu til
einskis nýttar og því aðeins
enn einn útgjaldaliður fyrir
bæjarsjóð.
Eins og staðan er í dag er hús
þetta einungis fjárhagsleg
byrði á bæjarfélaginu og þrátt
fyrir ítrekaðar kröfur frá
bæjarfulltrúum minnihlutans
og hinum ýmsu nefndum
innan bæjarins t.a.m. tóm-
stundaráði, þar sem undirrit-
aður situr.
I vetur komu bæjarfúlltrúar
Alþýðuflokksins með þá
tillögu að húsið yrði selt, það
var felit. Tómstundaráð hefur
haft uppi hugmyndir um að í
húsinu yrði rekin félags-
miðstöð fyrir unglinga sem
og alla aðra klúbba- og
félagastarfsemi, en einhven'a
hluta vegna hafa allar tillögur
þess efnis verið þaggaðar
niður af bæjarstjóra einhverra
hluta vegna. Það er einkenni-
legt í ljósi þess að í síðustu
bæjarstjórnarkosningunum
var félagsheimilið Z-ann,
Hafnargötu 30, sem opnuð
var rétt á undan, ein mesta
skrautfjöður sjálfstæðis-
flokksins í kosningabarátt-
unni. Það var þó ekki að
sökum að spyrja að innan
eins árs var félagsheimilinu
lokað án þess að starfmu yrði
haldið áfram.
Sú kyrrstaða, sem einnkennir
þetta mál er meirihlutanum í
Reykjanesbæ til háborinnar
skammar. Að auki er sú
óvissa sem íbúar í nágrenni
við Vesturbraut 17. búa við,
hrein og bein móðgun við þá.
En það er eins og fyrr segir,
að þegar þessi tvö stjórn-
málaöfl taka höndum saman,
er eins og að það skelli á póli-
tísk fsöld.
Gestur Páll Revnisson.
Höfundur stundar nám við
Háskóla Islands.
VESTURBRAUT17
MATAR.l/sT _______......
iiiiiinai.ijirwn KEFLAVIK
SÍMI421 4797
v__________________________________v
MlWgfcM
TAXI
SENDIBÍLAR
4211515
ÓRVALI - MUItlD Hfig^
BILAKRINGLAN
GRÓFiNNI 7-8 KEFLAVÍK SÍMI 421 4242
Víkurfréttir
13