Víkurfréttir - 26.09.1996, Page 15
Beitningartr
ektúr
Vogumvará
sýningunni
Suðurnesjum
vöktu athygli
Nokkur fyrirtæki af
Suðumesjum tóku þátt í sjá-
varútvegssýningunni sem
haldin var í Laugar-
dalshöllinni í síðustu viku.
Vöktu fyrirtækin héðan
athygli. Stærst var fyrirtækið
Brunnar úr Grindavík sem
sýndi ýmsar nýjungar tengd-
ar sjávarútvegi. Má þar
nefna viðhaldstromlu fyrir
nótaskip, blakkir og ísvatns-
keifi.
Reiknistofa fiskmarkaðana
kynnti starfsemi sína og það
gerði einnig Sandgerðishöfn.
Á útisvæði var síðan fyrir-
tækið Beitir úr Vogum með
nýja beitningartrekt fyrir
smábáta.
Eitt athyglisvert fyrirtæki úr
Garðinum, JA International
Saless Co Ltd, var á
sýningunni. Þar var Jóhann-
es Arason mættur með
undralög sem hann hefur
þróað. Lögurinn eykur
geymsluþol og viðheldur
hvíta litinum á fiskholdinu
og kallast Natural White.
Hér er um að ræða hreina
náttúruafurð unna úr Ros-
marin. Hér á landi hefur hún
bæði verði reynd við fersk-
♦ Jóhannes Arason með
undralöginn sem viðheldur
hvítum lit á fiskholdi.
an, frystan og saltaðan fisk,
með mjög góðum árangri.
Að auki þyngdist ftrkurinn
að meðaltali um 2%, þannig
að um verðmætaaukningu er
að ræða. Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins er nú í stóru
verkefni við að athuga áhrif
Natural White á ferskan og
frystan karfa. Þegar liggja
fyrir þær niðurstöður að
ferskur karfí hefur 2ja daga
lengra geymsluþol. Við
kynnumst þessari nýjung
betur síðar.
Að handan!
Mér tinnst að tími sé kominn að
klára veginn að kirkjugarðinum
og með góða lýsingu í
þokkabót. Nú ef ég nefni ekki
merkinguna á staðnum. þá finnst
mér hún til skammar.
Nú ef einhver fer að sveitungast
út af þessu, þá var það bara svo
að þeir framliðnu borguðu
útsvar og skatta, eins og við
þurfum að gera. Svona rétt í
lokin, þarf maður að Ijárfesta í
luktum eða öðrum búnaði til að
vita hvort maður gangi á ieiði
eða ekki.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Friðrik
Friðriksson.
Fjölmenni var við jarðarför Guðna Magnússonar
sem fór fram frá Keflavíkurkirkju á þriðjudaginn. Á
meðfylgjandi mynd má sjá hvar kista Guðna er borin
úr kirkju.
VF-mynd: Dagný Gisladóttir
Felagshyggjumenn funda
Um 25 manns úr hinum ýmsu stjómmálaflokkum hittust á
óauglýstum fundi si. þriðjudagskvöld á Flug Hótcli. Var
tilefni fundarins sameiginlegur áhugi fundarmanna á
samvinnu félagshyggjumanna í Reykjanesbæ.
Virðist því vera nokkuð líf í grasrótinni þessa dagana auk
þess scm að minnihlutinn starfar nú saman í ýmsum málurn í
bæjíirstjóm Reykjanesbæjttr.
Kvennakór Suðurnesja
Kvennakór Suðurnesja er nú að hefja
vetrarstarf sitt og lýsir hann eftir þeim
sem hafa gaman af söng og vilja ganga
til liðs við kórinn.
Æftngar em á mánudögum og miðviku-
dögum frá kl. 20.00 - 22.00.
Aðrar upplýsingar gefa Mallý 421-3489
ogHeiða 421-3941.
FISKVINNSLUHUSNÆÐI
IÐNAÐARHÚSNÆÐI
Til sölu eða leigu 330 fermetra hús-
næði að Njarðvíkurbraut 66 í
Njarðvík. Hentugttil fiskvinnslu
eða iðnaðar.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Fasteignaþjónusta
Suðurnesja
VN'” P*"
NVJ/1B|£>
KEFLAVÍK - SÍMI 421 1170
FIMMTUDAGSKlfÖLD KJL. 9
FRUMSÝNING
SVND ALLA HELGINA
SUNNUDAGUR KL. 9
FORSÝNING
TIVU1E TO KILL
með Söndru Bullock og Samuel L. Jackson
Þetta er nýjasta mynd John Grisham.
Aðeins þessi eina sýning.
Á NÆSTUNNI:
ÍSLENSKA MYNDIN DJÖFLAEYJAN...
10% afsláttur
af öllum peysum
dagana 29.9-6.10
Mikid úrval - gott verð
HEIÐARTÚNI 3 - GARÐI • SÍMI 37135
Loftið opið alla daga nema sunnudaga 13-18
10% aukaafsláttur af útsöluvörum
Víkurfréttir
15