Víkurfréttir - 12.12.1996, Page 9
Reykjanesbœr:
Hækkað útsvar og
skattur vegna frá-
veituframkvæmda
Útsvar í Reykjanesbæ hækkar
um 2,7% á næsta ári og verð-
ur 11,70%. Einnig verður
lagður á tímabundinn skattur
vegna fráveituframkvæmda.
Þetta kom fram á bæjarstjóm-
arfundi Reykjanesbæjar þann
3. desember þar sem álagn-
ingarreglur sveitarsjóðsgjalda
fyrir árið 1997 voru ræddar.
Hækkun útsvars stafar af yfrr-
töku sveitarfélaga á grunn-
skólum og lækkar tekjuskatt-
ur að sama skapi um sömu
prósentustig.
Minnihluti bæjarstjómar lagði
fram bókun um málið þar
sem segir:
„Vegna 21. máls 27.11.96 vill
minnihlutinn taka það fram
að þetta eru tillögur meirihlut-
ans og að minnihlutinn tekur
ekki afstöðu til þess, en mun
lýsa afstöðu sinni við gerð
íjárhagsáætlunaf1.
I umræðu um málið tók Jó-
hann Geirdal (G) það fram að
hann væri ekki gegn gjaldtök-
unni heldur teldi hann það
óeðlilegt að nota prósentur af
fasteignamati til þess að
reikna út fyrrgreindan skatt
vegna fráveitugjalda. Hann
sagði þetta valda mismunun
sem bitni á þeim tekjuminni.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja:
Tunnup í
stað poka
Stjórn Sorpeyðingarstöðvar
Suðumesja hefur lagt til við
sveitarstjórnirnar að þær
breyti sophirðunni þannig að
tunnur verði notaðar í stað
poka.
Kom þetta fram á síðasta
fundi stjómarinnar 23. nóv-
ember sl.
Leggur hún til að ráðist verði
í þessa breytingu um mitt J
næsta ár og að fjárhagsnefnd J
Sambands sveitarfélaga á
Suðumesjum verði falin nán-
ari útfærsla en gengið verður
út frá því að hvert sveitarfélag
kaupi tunnurnar og dreifi I
þeim líkt og gert var í Grinda-
vík.
Ráðstefna um verktöku og útboðsmál á Suðumesjum var haldin á vegum Markaðs- og atvinnumálaskrif-
stofu Reykjanesbæjar nýlega á Flug Hóteli. Meðal umræðuefna var staða verktaka og útboða árin 2000-
2005 og var yfirlit núverandi stöðu skoðað. Frummælendur voru Kristófer Oliversson frá Hagvangi hf.,
Árni Jóhannsson frá Samtökum iðnaðarins, Jóhann Bergmann frá Reykjanesbæ, Halldór Ragnarsson frá
Húsanesi og Sigurjón Einarsson frá Samiðn.
Vinscelustu skíða- og sólgleraugun
frd framleiðanda Ray Ban:
Killer Loop og Ray Ban Classic
Pnu gerast ekki behi Vtrd jrá kr. 6S00.
GUERAUGNRVeRSlUN K6FLAVÍKUR
Hafnargötu 45 • Keflavík • sími 4213811
Víkurfréttir