Víkurfréttir - 26.03.1997, Síða 2
Golfklúbbur Sandgerðis:
Gánægja með starfs
styrk til íbróttamála
Bæjarstjóm Sandgerðisbæjar
samþykkti nýverið tillögu
íþrótta- og tómstundaráðs um
starfsstyrki til íþróttafélag-
anna og verða þeir gerðir til
þriggja ára. Mun Golfklúbbur
Sandgerðis fá kr. 240.000 og
Reynisfélagið kr. 1.760.000.
Golfklúbbur Sandgerðis hefur
gagnrýnt afgreiðslu íþrótta-
og tómstundaráðs í málinu og
í bréfi sem þeir sendu ráðinu
23. febrúar bendir GSG m.a. á
að skiptaprósenta hafi ekki
verið kynnt fulltrúum
íþróttafélaganna og að gögn
GSG hafi ekki verið lögð til
grundvallar. Segir jafnframt í
bréfínu að svo virtist sem að
annað íþróttafélagið ætti
greiðari aðgang að fjármunum
Sandgerðisbæjar. Oskaði
GSG eftir því að íþrótta- og
tómstundaráð endurskoðaði
ákvörðun sína. fþrótta- og
tómstundaráð taldi gagnrýni
GSG ekki eiga við rök að
styðjast og tók það fram að
verið væri að gera nýjan
samning við íþróttafélögin í
Sandgerði út frá nýjum fors-
endum sem miðast við bama-
og unglingastarf og þvf væri
ekki hægt að líta á tillögur
ráðsins sem lækkun á styrk til
GSG heldur sé hann nokkuð
ríflegur. Telur ráðið sig hafa
staðið faglega að gerð samn-
ingsins og sá því ekki ástæðu
til þess að breyta fyrri
ákvörðun sinni. Ráðið var þó
klofið í afstöðu sinni og sátu
tveir fulltrúar hjá með vísan til
ófaglegra vinnubragða meiri-
hlutans.
HUNDALÍF
Skírdagkl.3-5-9
■m&V ^n| [|a||i llpáskmkl.3-5-9
NVJA E|£) KEFLAVÍK - SÍMI 421 1170
Aðalfiindur Hitaveitu Suðurnesja:
Hagnaður tólfta árið í röð
Rekstfarafgangur Hitaveitu Suðurnesja á
síðasta ári var434 milljónir króna og er þetta
tólfta árið í röð sem rekstrarafkoma er
jákvæð. Þetta kom fram í skýrslu Júlíusar
Jónssonar framkvæmdastjóra á aðalfundi
Hitaveitunnar sl. föstudag.
Rekstrartekjur Hitaveitu Suðurnesja námu
alls 1826 milljónum króna sent er 3,2%
hækkun í krónutölu frá árinu áður og 0.6%
að raungildi. Af þeim voru 1.086 milljónir
króna af vatnssölu, 693 milljónir af
raforkusölu, tengigjöld vom 26 milljónir og
aðrar tekjur 21 milljónir króna.
Fjárfestingar vom ívið meiri en árið áður og
voru alls 247 milljónir króna í orkuveri og
veitukerfúm og 297 milljónir í heild sem er
13% meira en árið áður.
Rekstrargjöld vom 1.392 milljónir króna og
voru þar af afskriftir 532 milljónir en tjár-
magnsliðir voru aðallega vegna gengis-
þróunar jákvæðir um 77,5 milljónir króna.
Heildareign fyrirtækisins var 6.699 milljónir
króna þar af eru fastafjármunir 4.878
milljónir. Eigið fé var 5.862 milljónir eða
87,5% heildarfjármagns.
Raforkunotkunin í heild jókst unt 10%
samkvæmt heimilistaxta sem er umtalsvert
og jókst raforkusalan í heild um 4,2% á
árinu. Sala á heitu vatni urn hentla minnkaði
um 0,4% og sala unt mæla var rúmlega 0,9
milljón tonn seni er 8% minnkun.
Hitaveita Suðumesja hefur á síðustu árum
látið til sín taka í atvinnumálum á svæðinu.
A síðasta ári ber þar hæst undirbúningur
vegna könnunar á byggingu magnesíum-
verksmiðju á Reykjanesi. HS er stærsti
hluthafinn í undirbúningsfélagi sem stofnað
hefur verið vcgna hagkvæmniskönnunar um
byggingu verksmiðjunnar en hún er á
lokastigi.
.q;vRSA4^_
Lokaundirbúningur fyrir
Fegurðarsamkeppni Suð-
umesja er hafinn. Keppnin
fer ffam í veitingahúsinu
Stapa laugardaginn 5. apríl
nk. Stúlkumar hafa æft að
kappi síðustu vikur. M.a.
hafa verið gönguæfingar í
Stapa þar sem æfðar hafa
verið innkomur og
stúlkumar hafa æft göngu á
háum hælum. Við kynnumst
undirbúningi keppninnar
betur í næsta blaði í máli og
myndum.
5S
ADAL■
FUNDUR
£C3
Ungmennafélags Njarðvíkur verður
haldinn miðvikudaginn 2. apríl
kl. 20:30 í sal Njarðvíkurskóla.
Dagskrá:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf.
••
2. Onnur mál.
Stjórnin.
Ráttur matseðill!
Fyrir mistök var rangur mut.seðill settur inn í auglýsingu um
Fegurðarsainkeppni Suðurnesja 1997 sem er á blaðsíðu 5 í
Víkurfréttum í dag. Réttur matseðill er eftirfarandi:
Forréttur:
Reyktur lambavöðvi á salatbeði m/ rósinpiparvínedikolíu.
Fiskiréttur:
Ameriskt risanekjutríó.
Miliiréttur:
Lime sorbet.
Aðalréttur:
Innbakaðar nautalundir „Wellington"
Eftirréttur:
Itölsk sælkeraterta.
< 97k*
T!L SOLU
íii
mmm
i5l
íiö
Rekstur líkamsræktarstöðvar ásamt tækjum. Frábært
tækifæri fvrir áhugafólk um líkamsrækt að skapa sér
sjálfstæða vinnu. Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Fasteigiwþjónusta
Suóurnesja hf.
Fasteigna-
og skipasala
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - sími 4213722 - fax 4213900
Víkurfréttir