Víkurfréttir - 26.03.1997, Qupperneq 5
I-------------------------------
HRAFNKELL ÓSKARSSON SKIRFAR
Pistlaskrifarinn rumskar aftur eftir
sjálfskipaö lilé frá skriftum. Reynd-
ar hef ég síðustu vikurnar verið
starfandi á Sjúkrahúsi Skagtirðinga
á Sauðárkróki. þar eins og víða er
skortur á skurðlæknum og virðist
sem að í framtíðinni vanti fjölda
skurðlækna til starfa hæði hér á
landi og annars staðar á Norður-
löndum.
Skagatjörðurinn var tágur sem endra-
nær, fönnum prýdd tjöll og eyjum
skrýtt hafið.Til að fullkomna myndina
var svo einn borgarísjaki sem lónaði
inni á firði og um nætur lýsti hala-
stjama himininn í norðri.
Hér áður þóttu halastjörnur örugg
merki um komandi óáran. drepsóttir,
styrjaldir eða eitthvað þaðan af verra.
Sjálfsagt var það bara tilviljun. að dag-
inn eftir að ég sá halastjömuna bar að
garði nefnd frá heilbrigðisráðuneytinu.
Ein spamaðamefndin enn. og gaman
að vita hversu mikið væri hægt að
spara á því að leggja niður allar spam-
aðamefndir, hætta öllum úttektum og
sleppa öllum spamaðarskýrslum.
Norðlendingar eru auðvitað ekki vanir
að láta vaða ofan í sig og þegar fram
kom tillaga um niðurskurð á dreif-
býlissjúkrahúsunum, tóku þeir sig til
og héldu fund undir forustu sinna
stjómarþingmanna og snéru spamað-
arpostulana niður á hornunum.þeir
uppgötvuðu allt í einu að spamaðar-
tillögumar voru auðvitað ekki settar
fram í fúlustu alvöru, heldur meira
svona til gamans og til umræðu.Um
svipað leiti frétti ég að síðasti D álmu
samningurinn hefði verið undirritaður.
Og hvað, vorum við dregin á asna-
eyrunum með þá undirskrift nema frá
þvf í nóvenrber ? Svo má draga að
skipa bygginganefnd í einhvern tíma,
teikna dálítið í nokkra mánuði og taka
svo skóflustungu fyrir næstu kosning-
ar í beinni útsendingu og draga svo
allar framkvæmdir eina ferðina enn að
♦ Hale-Bopp þann 23. mars sl.
loknum kosningum. Svartsyni ?? Ef til
vill, en lítum á staðreyndir...
1. Sjúkrahúsið hér býr við þrengri kost
hvað varðar húsnæði, aðstöðu og tæki
en landsbyggðarsjúkrahúsin sem
þjóna þetta 3-5.000 manns.
2. D álman hefur þegar verið teiknuð
a.m.k. 4 sinnum og lofað oftar en ég
hef tölu á.
3. Þrátt fyrir að margoft sé búið að
sýna fram á að bæta þurfi við fé í
reksturinn ef halda á uppi sæmilegri
þjónustu er sífellt skorið meira niður.
Nú í sumar em sjö ár síðan ég kom til
starfa á Sjúkrahúsi Suðumesja. Sjö ár
stöðugrar baráttu fyrir því að hér fái að
rísa sjúkrahús er sinni flestum þörfum
heimamanna.Ef við fáum að njóta
sannmælis þá er æði margt sem við
leysum vel af hendi fyrir Suður-
nesjamenn, en því rniður er það svo,
að allt of oft er fólk sent til Reykja-
víkur með kvilla sem að réttu lagi ættu
að meðhöndlast í heimahéraði, annað
VF-mynd: CNN
hvort vegna skorts á rými á sjúkrahús-
inu.vegna lokunar skurðstofu eða þar
sem læknisþjónusta varekki til staðar.
Sumir nota þetta sem rök fyrir því. að
leggja eigi stofnunina niður. ” það fer
hvort sem er allt til Reykjavíkur.." er
setning sem stundum heyrist og særir
mig óneitanlega illa. Þetta er ekki
bara ósanngjarnt,heldur ótrúlega
heimskulegt.
Auðvitað á ekki að brjóta niður það
sem hér er gert heldur hlú að því svo
það megi dafna okkur öllum til hags-
bóta. Stöndum nú einu sinni saman og
synurn að Suðumesjamenn sætta sig
ekki við að vera annars flokks borg-
arar hvað varðar heilbrigðisþjónustu í
landinu.
Sjáum til þess að staðið verði við
gerða samninga og rekstur “alvöru
sjúkrahúss “ á Suðurnesjum verði
tryggður.
Hrafnkell Óskarsson.
. equrðardrottmng
Suánrnesjfl 1997
ícrdiir kníiíl í mtmyámm Stnpa laugardaginn 5. arpíl nk
v-9'7^
sport
sport
MATSEÐILL
Forréttir
Reyktur lambavöðvi d sulutbeði
með Rósinpipar og víngratin.
Amerískt risarœkjutríó.
Lime sorpet.
Aðulréttur
Innbukuður nautulundir
„Wellington“
Eftirréttur
ltölsk swlkerutertu.
/förAiin STADINN
Ilntul- tuf
itiufíoshuleo
Siísihmu
flföWASTUWO
é
SOmOSIB LOHhKR
1 .... L
I) A G S K R Á
Húsih opnur kl. 18:30 SYIÐSSTJÓRI - TÓNLIST:
• Gesiirfá Gnnmfreyiivíii • Daríð Jónatansson
KYNNIR: LÝSING:
• Valgeir Gnðjálisson • Magnús llelgi Krhtjánsson
KRÝNDAR VERÐA: BLÓMASKREYTINGAR:
•Fegurbanlrotlning • Blómastofa Guöriinar
Suðumesja 1997 SKÉMMTIATRIDI:
• Ljósmyndafyrirsœta • Andrea Gylfadóltir
Suiurnesju 199 7 • Valgeir Guójónsson
• 1 insœlusta slúlkun • Dinnertónlist
• K-sportstúlkan 1997 • Dansatriði
YFIRMATREIÐSLUMAÐUR: DANSHUÓMSVEIT:
• Jóii Magnús Haróarson Todmobile
YFIRÞJÓNN: MIDAVERD: kr. 5.500,-
• Snorri Snorrason • AUar konur og karlarfá gjajir.
V íkurfréttir