Víkurfréttir - 26.03.1997, Side 8
Fyrsti mjölfarmurinn frá verksmiðju SR-mjöls hf. í Helgu-
vík fór í skip um þar síðustu helgi. I*að voru um 800 tonn af
mjöli sem var skipað út í gegnum Njarö\ íkurhofn.
Það hefur gengið vel að bræða Ioðnuna í Helguvík og unnið
dag og nótt. Loðna hefur einnig verið að veiðast í töluverðu
magni síðustu daga. Meðfvlgjandi invnd var tekin í Njarð-
víkurhöfn þegar megnið af mjölinu var komið um borð í
tlutningaskip. VF-mvnd: Hilmar Bragi
íslenskt amerískt í Stapanum!
Guðmundur Ingvar
Jónsson skoðaði
kvikmyndalífið í FS
og ræddi við forkólfa
kvikmyndafélagsins
HAMAGU.
Stórbruninn senr átti sér stað
aðfararnótt laugardagsins 1. mars í
frystihúsinu Maris átti ekki aðeins
eftir að hafa áhrif á starf fyrirtækisins.
Kvikmyndafélagið HAMAGU, sem
samanstendur af þremur ungum
mönnum, þeim Halldóri Jóni Björg-
vinssyni, Marteini Ibsen og
Guðmundi Ingvari Jónssyni, lenti
einnig í vandræðum vegna þess að
tökur á næstu stórmynd þeirra
„Þorskur á þurru landi" töfðust útaf
brutianum. HAMAGU hafði fengið
leyfi til að taka upp hluta af myndinni
þann 2.mars í Marís en nú verður
ekkert af því. Víkurfréttir fór á stúf-
anna og náði tali af strákunum.
Strákar, þetta hlvtur að vera mikið
áfall?
. Jú, auðvitað er þetta mikið áfall og
þetta atvik á eftir að tefja tökur á
myndinni um tvær vikur þar sem það
tekur tíma að fínna annað húsnæði".
Hvert ætlið þið að snúa ykkur nú
þegar Ijóst er að þið getið ekki
tekið atriðið í Marís?
„Við emnr þegar búnir að tala við
aðilann sem útvegaði okkur Marís og
hefur hann útvegað okkur húsnæði
sem við getunr notað daganna 13-15.
mars næstkomandi.“
Hafið þið einhverjar hugmyndir
um hvar þetta húsnæði er?
„Við vitum ekki nákvæmlega hvar
það er en það er einhvers staðar í
nágrenni við Marís.“
Ef við snúum okkur að myndinni,
hvað niun hún fjalla um?
„Þetta er hált'gerð steypa en hún hefur
samt sinn boðskap sem er græðgi
mannsins og aðrir gallar í hans fari.“
Hvenær áætlið þið að mvndin verði
fullgerð?
„Hún verður líklega tilbúin fyrir 20.
mars en við lofum engu.“
Hefur ykkur dottið í hug að senda
þessa mynd í stuttmyndakeppni?
„Já, við ætlum að senda myndina í
stuttmyndakeppni á vegum Stöðvar
tvö.“
Hafið þið tekið þátt í
Stuttmvndakeppni áður?
„Já, við tókunr þátt í stuttmyndamara-
jxini á vegum Hins Hússins og
fyrirkomulagið var þannig að við
áttum að búa til mynd á einunr degi
og skila henni inn um kvöldið og það
mátti ekki klippa hana og hún mátti
ekki vera yfir 5 mínútur og þemað
átti að vera „Ferðalag”. Við náðum
því miður ekki verðlaunasæti en það |
var mjög gaman að taka þátt í keppn- i
inni.“
Strákar, hvað ætlið þið svo að gera
þegar þið eruð búnir að gera
„Þorskur á þurru landi"?
„Við ætlum að gera stómiynd sem
mun heita „Attundi maðurinn" og á |
m.a. að gerast á Vatnajökli en meira
ætlum við ekki að segja frá henni."
Einhver lokaorð?
Já, ef fólk vill sjá myndimar okkar þá !
er það ekken mál. Það getur haft
samband við einhvem af okkur."
Þakka vkkur fvrir spjallið strákar. |
„Takk sömuleiðis."
Viðlal:
Guðmundur lngvar Jónsson
_____________________________________I
8
Víkurfréttir