Víkurfréttir - 26.03.1997, Qupperneq 10
Gleðilega
páska!
Föriuu varlega í
umferðiiuii mti
páskaua og
kouuun lieil Iteim
Sjónvarpspésinn
í HÓLMGARÐI
-foicciýuday eýtfo fzóA&i.
Úrval af bætiefnum, heilsuvörum
og íslenskum jurtateum.
Bætt heilsa - Betra
Ver/'ð velkomin!
... hamstrað!
Landsbankinn semur við UMFG
Landsbanki Islands, útibúið í
Grindavík, og knattspymudeild
U.M.F.G. hafa undinitað styrkt-
ar- og auglýsingasamning er
gildir keppnistímabilið 1997 og
keppnistímabilið 1998.
Þó Landsbankinn haft um árabil
verið einn styrktaraðila knatt-
spyrnudeildar Grindavíkur er
hér gengið nokkuð lengra og
gerður ítarlegur samningur sem
tekur á nokkrum veigamiklum
þáttum.
Auk ýmissa hefðbundinna
atriða s.s. auglýsingaskilta
o.þ.h. er félögum í Gengis- og
Leifsklúbbi Landsbankans
boðið frítt inná heimaleiki
Grindavíkurliðsins. Félagar í
Námunni fá hins vegar 50%
afslátt.
UMFG tekur við þessi tímamót
í notkun nýjan upphitunnargalla
sem verður merktur Lands-
bankanum á baki og læri, en
félagsmerki Grindavíkur á
brjósti.
Samningurinn kveður á um
samstarf bankans og U.M.F.G.
þar sem leikmenn meistara-
flokks taki þátt í hugsanlegum
uppákomum á vegum bankans,
t.d. Landsbankahlaupi.
UMFG fær með samningi |ress-
um aukna þjónustu og betri kjör
í Landsbankanum og stendur til
boða að nýta sér alla valkosti
félagaþjónustu bankans sem völ
erá.
Samningur þessi kveður jafn-
framt á um þátttöku Lands-
bankans í útnefningu á leik-
manni ársins í knattspymu karla
hjá meistaraflokki U.M.F.G.
Landsbankinn veitir leikmanni
ársins af þessu tilefni viðurken-
ningu og innlegg á kjörbók.
Leikmaður ársins skal nefn-
dur Landsbankaleikmaður
ársins.
Samningurinn kveður ennfrem-
ur á um að Landsbankinn veiti
viðurkenningu einum leikmanni
knattspyrnudeildar U.M.F.G.
frá 4. flokki til og með 1. flokki.
Viðurkenningin. Landsbanka-
leikntaður ársins 1.-4. fl. er
veitt fyrir góðan dugnað,
ástundun og prúðmennsku á
keppnistímabili. Viðurkenn-
ingin er veitt bæði karla- og
kvennaflokkum.
Loks kveður samningur þessi á
um sérstakar bónusgreiðslur
tilhanda meistaraflokki karla í
fótbolta.
♦ Bjarni Andrésson og Fridgeir Baldursson handsala samninginn.
Það var heldur betur fjör
á bensínstöðvunum á
Suðumesjum þegar ljóst
var að stefndi í bensín-
verkfall. Suðurnesja-
menn hópuðust á allar
bensínstöðvar með
blikkbeljur sínar og
brúsa og ekkert til spar-
að í bensíninnkaupum.
Meðfylgjandi ntyndir
tóku Ijósmyndarar
blaðsins í Keflavík og
Garði sl. fimmtudag.
VF-mvndir: hbb og væf
íbúðir
Húsnæðisnefnd Reykjanesbæjar
auglýsir til úthlutunar eftirtaldar
félagslegar eignaríbúðir.
Heiðarholt 32, 0301, 3ja herbergja
78,0 ferm. laus í apríl.
Heiðarholt 24, 0301, 3ja herbergja
90,0 ferm. laus í júní.
Heiðarholt 40, 0201, 3ja herbergja
90,0 ferm. laus í júní.
Heiðarbraut 29, 0101, 3ja herbergja
98,0 ferm. laus í maí.
Umsóknir skulu berast
Húsnæðisnefnd fyrir 10. apríl 1997.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar
á skrifstofu Húsnæðisnefndar
Tjarnargötu 12, 230 Keflavík,
simi 421-6700.
Húsnæðisnefnd Reykjanesbæjar.
10
Víkurfréttir