Víkurfréttir - 22.05.1997, Page 10
Aðalskipulag Sandgerðisbæjar:
Ahersla a umferöanmal
Aðalskipulag Sandgerðis-
bæjar var kynnt á opnum
fundi í Sandgerði fyrir sköm-
mu þar sem að Guðni Pálson
arkitekt fór yfir skipu-
lagshugnivndir ásamt bæjar-
fulltrúum og íbúum.
I aðalskipulaginu hefur
höfuðáhersla verið lögð á
umferð í bæjarfélaginu og þá
sérstaklega á þungaflutninga frá
höfninni í gegnum byggð eins
og verið hefur. Aætlað er að
þjóðvegurinn liggi eftir
strandgötu og tengist inn á
Garðveg til þess að skilja að
athafiiasvæði og íbúasvæði sem
liggur fyrir aftan. Ný gata
verður lögð vestan við
Strandgötu niður á hafnar-
svæðið sem tekur alla þunga-
umferð. Sandgerðisvegur klýfur
nú í sundur íþróttasvæðið og
skólasvæðið. Verður hann því
lagður sunnan við íþróttasvæðið
sem er áhættuminna og laust
við umferð unglinga sem eiga
erindi á þau svæði. Austan við
bæinn er gert ráð fyrir svoköl-
luðum ofanvegi og frá honum
verður tenging í þau hverfi sem
fyrir eru og byggð aukin frá
honum. Tilgangurinn er að leiða
umferð út úr íbúabyggð í
bænum og minnka slysahættu.
Sandgerðishöfn stækkar til
suðurs þar sem smábátahöfnin
er staðsett en áður voru uppi
hugmyndir um að staðsetja
hana í grynningunum. Frá þvf
var horfið vegna ábendingar frá
Fræðasetrinu þar sem kom í ljós
að Sanderlan á sér það svæði en
hún lifir á mjög sérhæfðu fæði í
fjöruborðinu. Vonir eru um að
fiskvinnsla aukist með stækkun
haftiarinnar og reynt verður að
fá meiri vinnslu í bæinn þ.á.m.
að koma af stað fiskrækt
meðfram ströndinni.
Stofnanir Sandgerðisbæjar eru á
víð og dreif og er lögð áhersla á
það í skipulaginu að þær flytjist
miðsvæðis. Áætlað er að
þjónustukjarni rísi á næstu 20
árum þar sent yrðu staðsett ver-
slanir, læknaþjónusta, apótek,
bankar og fleira.
Reynt verður að halda grænu
yfirbragði í bænum með stí-
gatengingum og útivistar-
svæðum. Að auki er gert ráð
fyrir gerð gróðurbeltis í
Sandgerði sem nú er notað á
nokkrum stöðum á landinu. Slík
gróðurbelti eru skjólmyndandi
og hækka smám saman hitastig
í bænum og auðvelda þar með
gróðurrækt fyrir aðra.
Ferðaþjónusta hefur aukist
gífurlega á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu og sá möguleiki
skoðaður að nýta sér nálægðina
við Keflavíkurflugvöl! til þess
draga ferðamenn til Sandgerðis.
I því sambandi er litið til
Fræðasetursins og veitinga-
hússins Vitans sem eru fyrir
hendi í bæjarfélaginu en
ráðstefnuaðstöðu vantar og
gistingu á svæðið.
Gert er ráð fyrir því að þegar að
skipulagstfma lýkur árið 2017
verði íbúafjöldi Sandgerðis-
bæjarl840.
Aðalskipulag Sandgerðisbæjar
bíður eftir samþykki skipulags-
deildar ríkisins og verður það
tekið fyrir á fundi bæjarstjómar
þann 28. maí n.k.
Kigenclur Njarðar hf. sem reka loðnubrteðsluna í
Sandgerði hafa ciskað eftir því að stækka húsnæði
verksmiðjunnar.
Fyrirtækið hefur keypt nýja verksmiðju í Danmörku
og hyggst það taka liana niður og flytja til landsins.
Byggingin er 900 fermetrar að stærð og á Inin að vera í
sama gæðaflokki og loðnubræðslan sem fyrir er. Fngin
lykt á að fylgja rekstri hennar en mikill styr hefur
staðið unt bræðsluna í Sandgerði vegna lyktar sem
leggur yfir bæinn i ákveðinni vindátt.
Málið er til kynningar hjá byggingarnefnd og á eftir að
afgreiða það í bæjarstjórn.
Iþróttamiðstöðin í Sandgerði
\y LAUST STARF
Laust er til umsóknar starf bad- og sundlaugarvardar í
íþróttamidstöðinni í Sandgerði. Um er ad ræða 80%
stöðu. Starfsmenn íþróttamiðstöðvarinnar þurfa ad
standast þær kröfur sem eru gerðar til sundvarða í
reglum um öryggi á sundstöðum og við kennslulaugar.
Kvenmenn eru hvattir til að sækja um þar sem
einstakling vantar í baðvörslu í kvennaklefa.
Viðkomandi verður að geta hafið störf 7. september n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Sandgerðisbæjar og er umsóknarfrestur til 10. júní n.k.
Upplýsingar veitir undirritaður í síma 423-7966 á
skrifstofutíma.
íþrótta- og tómstundafulltrúi Sandgerdisbæjar.
/ullir iiUj/j/-/•'/;<á\ iii
r - --
ÉSý:
Tgto&MSffiaté sffimp
Vinnur loðdýrafóðun
úr íslensku hráefni
Fyrirtækið Danske Pels hyg-
gst hefja vinnslu á loðdýra-
fóðri í Árnablokkinni í
Sandgerði í santvinnu við
eigendur hússins og áttu for-
ráðamenn fyrirtækisins
viðræður við bæjaryfirvöld í
Sandgerði í síðustu viku.
Árnablokkin eins og hús-
næðið er kallað hefur staðið
tóm um langt skeið en nýverið
festi Sigurður Ingimundarson
kaup á eigninni en hann rekur
fyrirtæki á austfjörðum.
Danska fyrirtækið mun leigja
húsnæðið til vinnslunnar og
verður að öllunt líkindum
stofnað nýtt fyrirtæki utan um
reksturinn.
I húsinu ereinn stærsti frystik-
legi landsins alls 700 ferme-
trar en húsið sjálft er um 5000
fermetrar. Hráefni til vinnsl-
unnar verður fengið af Suður-
nesjum og er búist við því að
ársframleiðsla nemi tugi
þúsunda tonna. Að sögn Sig-
urðar Vals Ásbjarnarsonar
bæjarstjóra Sandgerðisbæjar
mun vinnslan skapa störf fyrir
30 manns.
Sandgerðis-smælki
Atvinnulífið risið uppúr öskustónni
Atvinnulífið blómstrar í Sandgerði um þessar ntundir og er
stöðugleiki á atvinnumarkaðinum meiri eftir að fyrirtækið Ný
Fiskur hóf vinnslu á fullum krafti í nýju húsi. Fiskmarkaðshúsið
er nú að komast í notkun og verður það opnað nteð pompi og
prakt laugardaginn 24. maí. í húsinu verður fiskntarkaður
Suðumesja með alla sína starfsemi og til viðbótar fiytur öll
hafnaraðstaðan þar inn sem þykir bylting og verður ný vigt sett
niður í mánaðarmótin maí, júní.
Hreint hjá fiskvinnsluhúsum
I sumar verður gert stórátak í umhverfismálum í kringum
fiskvinnslufyrirtæki við höfnina og ætla Ný Fiskur og
Fiskmarkaður Suðumesja að ganga alveg frá sínum lóðum.
Auk jtess mun Haraldur Böðvarsson ganga frá sinni baklóð.
Átak þetta kemur í kjólfar vinnu á aðalskipulagi
Sandgerðisbæjar þar sem rík áhersla er lögð á umhverfismál.
Sandgerði styrkir fegurð
Sandgerðisbær styrkir hin ýntsu málefni og ákvað bæjarstjóm
Sandgerðisbæjar á fundi sínum þann 7. maí sl. að styrkja
Sigurbjörgu Jónsdóttur, Sandgerðismær, sem varð í öðru sæti í
fegurðarsamkeppni Suðumesja unt kr. 50 þúsund til þátttöku í
fegurðarsamkeppni Islands sem fram fer á motgun. Það er því
ekki í kot vísað á þeim bænum en þess má geta að bæjarstjóm
Reykjanesbæjar samþykkti nýverið að styrkja íslandsdrottn-
inguna úr Njarðvíkunum, Sólveigu Lilju Guðmundsdóttur, um
kr. 40.000 vegna þátttöku í keppninni Ungfrú Alheimur.
Þórður Árelíusson hefur
verið ráðinn nýr hafnarstjóri t'
Sandgerði en hann starfaði
áður hjá Fiskistofu. Hann
mun taka við stöðunni af
Sigurði Bjamasyni sem lést á
síðasta ári.
10
Víkurfréttir