Víkurfréttir - 22.05.1997, Qupperneq 15
Ársmiðasöu
Keflvíkinga
verður
framhaldið
vegna eftir-
spumar nk.
sunnudag í
K-video
kl. 18-20.
Sölustjórini
er Einar
Helgi í s.
421 4535.
,JÞetta var góður sigur sem hefði
getað orðið stærri. Strákarnir
léku vel. sérstaklega í síðari
hálfleik“, sagði Sigurður
Björgvinsson, þjálfari Keflvík-
inga sem sigruðu Frarn 1:0 í
fyrstu umferð Sjóvá-Almennra
deildinni í knattspyrnu sem
hófst á annan í hvítasunnu.
Fyrri hálfleikur var tíðindaminni
en sá seinni og jafnræði var með
liðunum. Keflvíkingar skoruðu
eina mark leiksins á 29. mínútu.
Jóhann Guðmundsson gaf inn á
Hauk Inga Guðnason sem kom
á ferðinni rétt inn í vítateiginn
hægra megin og lyfti boltanum
snyrtilega yfir Keflvíkinginn í
Frammarkinu, Olaf Pétursson.
Framarar sóttu aðeins í sig
veðrið eftir markið án Jtess þó
að skapa sér færi. I síðari
hálfleik tóku heimamenn öll
völd á vellinum og sóttu nær án
afláts. Mörg færi litu dagsins
ljós en það besta átti Haukur
Ingi þegar hann var einn á móti
Óla Pé í Frammarkinu en hitti
ekki boltann og skaut framhjá.
Með smá heppni hefðu
Keflvíkingar átt að skora tvö til
þrjú mörk.
„Við lékum hreinlega illa í
síðari hálfleik og vorum heppnir
að tapa ekki stærra", sagði
Ásgeir Elíasson, þjálfari
Framara sem hefur verið spáð
nokkurri velgengni í sumar.
Allt Keflavíkurliðið lék vel.
Vömin var mjög traust og fóru
fáir boltar framhjá þeim Kristni
Guðbrandssyni. Guðmundi
Oddssyni og Karli Finnboga-
syni. Fyrir aftan þá var Ólafur
óottskálksson traustur í mark-
inu þó ekki hafi reynt mikið á
hann í þessum leik. Haukur Ingi
Guðnason er landsliðsefni
framtíðarinnar og með Jóhanni
Guðmundssyni á hægri kantin-
um em þeir stórhættulegur dúett
fyrir hvaða vörn sem er, eld-
fljótir og duglegir. Þá vakti
Snorri Már Jónsson, nýliði í
Keflavíkurliðinu athygli fyrir
góða frammistöðu og var ekki
að sjá að þar væri nýliði á ferð.
Gunnar Oddsson annar þjálfari
liðsins var öryggið uppmálað og
hefur litlu tapað. Nokkuð ljóst
er að tilkoma hans mun hafa
góð áhrif á liðið inn á vellinum.
„Við bíðum spenntir eftir næsta
leik. Það er gott að byrja á sigri
og byrjunin í mótinu mun
auðvitað hafa verulega mikið að
segja fyrir framhaldið", sagði
Sigurður Björgvinsson og sagði
alla leiki erfiða. Liðið mætir
Stjömunni á útivelli í kvöld og
svo verður nágrannaslagur í
Keflavík á sunnudaginn þegar
Keflavík og Grindavlk mætast.
femmSS»ss**"'
Stefán Jankovic var
traustur í vörninni gegn
Val. VF-mynd/pket.
„Það er alltaf hrollur fyrsta leik
sumarsins og ekki síst á útivelli.
Þó ég sé ekki sáttur við leikinn
sem slíkan unnum við vamar-
vinnuna okkar vel. Annað stigið
úr þessari viðureign er ásættan-
legt“, sagði Guðmundur Torfa-
son, þjálfari Grindvíkinga sem
gerðu jafntefli við Valsmenn á
Hlíðarenda í fyrstu umferð
Sjóvá-AImennra deildinni í
knattspymu.
Leikurinn var ekki tíðindamikill
og knattspyman ntun lakari en
sást síðar um kvöldið í Keflavík.
Jafnræði var með liðunum en
Valsmenn áttu á heildina litið
hættulegri tækifæri.
„Það var svolítill spennustimpill
yfir þessu hjá okkur enda höfum
við lítið leikið að undanfömu.
Eitt stig þarf ekki að vera slæmt
í fyrstu umferð. Nú er bara að
standa sig gegn KR-ingum
heima og við erum ákveðnir í
því“, sagði Ólafur Ingólfsson,
leikmaður Grindvíkinga.
Lið Grindavíkur er skipað
heimamönnum að undanskild-
um þremur Júgóslövum. Einn
þeirra, Stefán Jankovic er reynd-
ar orðinn íslenskur ríkisborgari
og er jafnframt fyrirliði liðsins.
Hann var gríðarlega sterkur í
vörninni á Hlíðarenda og var
besti maður liðsins og vallarins.
Hans bíður erfitt verkefni í
kvöld og á sunnudag.
Framherjar KR-inga eru
beinskeittir og munu reyna á
þolrif hans í kvöld. Haukur Ingi,
Jóhann og Co. í Keflavík munu
sækja á Jankó og félaga á sun-
nudaginn.
Kirkja
Keflavíkurkirkja:
Þriðjudagur 27. maí:
Starfshópur um kristniboð og
hjálparstarf á vegum
Kjalamesprófastsdæmis boðar
til fundar í Kirkjulundi kl.
20:30. Fundarefni: Hvernig
verður kristniboð og hjálparstarf
gert að eðlilegum þætti í starfi
safnaðanna? Allt áhugafólk
velkomið.
Fimmtudagur 29. maí:
Vorferðir á vegum Keflavíkur-
sóknar: Vorferð fermingarbama
að Skógum verður farin frá
Kirkjulundi kl. 8 árd. Komið til
baka urn kvöldmatarleytið.
Kirkjuferð eldri borgara verður
farin frá SBK kl. 13 e.h.
Skráning fer fram hjá SBK í
síma 421 -5551. Allir velkomnir.
Starfsfólk Keflavíkurkirkju.
Grindavíkurkirkja
Fimmtudagur 22. maí:
Spiladagur eldri borgara kl. 14-
17.
Laugardagur 24. maí:
Vortónleikar Tónlistarskólans í
Grindavík kl. 16. Athugið kl. 16
en ekki kl. 14 eins og áður var
auglýst.
Þriðjudagur 27. maí:
Foreldramorgunn kl. 10-12.
Sóknarnefndin, sóknarprestur
og samstarfsfólk í safnaðarstarfi.
Kirkjuvogskirkja Höfnum:
Sunnudagur 25. maí: Helgi-
stund - Aðalsafnaðarfundur.
Helgistund í kirkjunni kl. 20.
Aðalsafnaðarfundur í safn-
aðarheimilinu í framhaldinu.
Söfnuðurinn er hvattur til að
fjölmenna.
Sóknarnefndin.
Kálfatjarnarkirkja
Sunnudagur 25. maí: Messa
kl. 14. Prestur séra Öm Bárður
Jónsson annar umsækjenda
Garðaprestakalls. Kirkjukórinn
syngur. Organisti Frank
Herlufsen.
Sóknarnefnd.
Sundmiðstöð Keflavíkur:
Sundgestir áugið!
Sundmiðstöðin verður lokuð
iaugardaginn 24. maí vegna
sundmóts.
Forstöðumaður.
GROÐURMOLD
Höfum til sölu:
Harpada og blandaða gróðurmold, einnig
fyllingarefni, toppefni, sand og steypuefni.
LAVA hf. Sími 852-5078
Stapafelli, Súlum.
21
LAVA
Sundnámskeið
fyrir börn fædd
1992 og eldri
Sundnámskeið verða haldin í
Sundhöll Keflavíkur 2.-20. júní og
23. júní -11. júlí. Boðið verður upp
á byrjenda og framhaldskennslu.
Kennari verður Ragnheiður Runólfs-
dóttir sundþjálfari.
Skráning og greiðsla fer fram í
Sundhöllinni dagana 28. og 29. maí
milli kl. 16 og 18. Verð kr. 2.500.-
Sunddeild Keflavíkur.
Körfuknattleiksdeild UMFN
Aðalfundur
Körfuknattleiksdeild UMFN heldur
aðalfund sinn miðvikudaginn 28.
maí kl. 20:00 í Njarðvíkurskóla.
Hefðbundin aðalfundarstörf
Félagar fjölmennið.
Stjórn kkd. UMFN.
Körfuknattleiksdeild UMFN
langar að koma fram þakklæti til
allra þeirra er gerðu okkur kleift að
eiga saman frábært herrakvöld
þann 30. apríl síðastliðinn.
Sérstakar þakkir færum við
Glóðinni fyrir
þeirra frábæra ¥//fl(l/Z/. )
framlag. '
121
Víkurfréttir
15