Víkurfréttir - 28.08.1997, Qupperneq 5
I
‘Sgggr
W'2!“ /„
.....
www.ok.is/visir
ER FÉLAGIÐ
ÞITT MEÐ 1 * ^
HEIMASÍÐU? samskipt.
VEFSIÐULAUSNIR 421-6333
Ilí»| |D Eina vikulega fréttablaðið
VllYUK á Suðurnesjum á Internetinu
FRÉTTIR http://www.ok.is/vIkurf]©
Getum andað léttar!
Margir bæjarbúar höfðu samband við skrifstofur SR mjöls sl.
nránudag og kvörtuðu yfir stækum löðnufnyk sem lagðist yfir
bæinn frá loðnubræðslunni í Helguvík.
Þær upplýsingar fengust hjá SR mjöl að lyktina mætti rekja til
þess að verið væri að hreinsa verksmiðjuna eftir vertíðarlok.
Ekki hefur verið brætt í verksmiðjunni um nokkurt skeið og
var vindrásin opnuð og farið yfir alla hluti. Hreinsun er nú
lokið.
I__________________________________________________I
Leikfálag Keflavíkur:
Vinnuátaks-
helgi hjá LK
Félagar í Leikfélagi Kefla-
víkur Itafa unnið að því
hörðum höndum undanfarna
mánuði að breyta Veslurbraut
17. í leikhús sem jafnframt
mun nýtast annarri menn-
ingarstarfsemi i bæjarfél-
aginu.
Húsnæðið hefur tekið miklum
breytingum og má þar nefna sal
sem tekur 130 manns í sæti og
þegar hefur verið fjárfest í
stólum og pöllum fyrir áhorf-
endur sem og fullkomnum
Ijósabúnaði. Að auki er verið að
koma fyrir búningsaðstöðu fyrir
leikara sem og geymsluplássi
fyrir bæði leikmuni og búninga.
Til garnans má geta að þegar
hafa um 15.000 þúsund vinnu-
stundir verið lagðar í verkið.
Sér nú loksins fyrir endann á
breytingunum þótt enn sé
nokkur vinna eftir og ætla félag-
ar úr LK að efna til vinnu- |
átakshelgi nk. laugardag og J
sunnudag. LK hvetur alla
félagsmem og aðra áhugasama
bæjarbúa til þess að rnæta og
leggja verkinu lið.
Leikfélag Keflavíkur fagnar 30
ára afmæli sínu á árinu og af því
tilefni er fyrirhuguð afmælis-
dagskrá fyrir áramót ef allt
gengur að óskum. Stefnt var að
því að Ijúka breytingunum fyrir
1. september og ef svo á að vera
og hægt verði að hefja félags-
lífið að nýju verða félagmenn
og sjálfboðaliðar að taka hön-
dum saman og leggjast á eitt.
Fólk er einnig boðið velkomið
til þess að skoða húsa-
kynnin.Átakið hefst kl. 13.00
báða dagana.
Síðsumanstónleikar
Hjónin Elín Ósk Óskarsdót-
tir og Kjartan Ólafsson
halda söngtónleika við
undirleik Guðlaugar Hest-
nes í Grindarvíkurkirkju
sunnudagskvöldið 31. ágúst
kl. 20.30 og í Ytri-Njarðvík-
urkirkju mánudagskvöldið
1. september á sama tíma.
Efnisskráin er í léttum dúr,
íslensk og erlend sönglög og
dúettar í sannkallaðri síð-
sumarsstemmningu.
Elínu Ósk þekkja flestir lands-
menn en hún hefur sungið
fyrir Islendinga á óperu-
sviðinu í nokkur ár með
hinum ýmsu kórum auk ein-
söngstónleika hér á landi og
erlendis og í ár hélt Elín tvis-
var til Noregs vegna sýninga á
óperunni Fredkulla eftir M.A.
Udby þar sem hún hlaut góða
dóma fyrir frammistöðu sína.
Elín Ósk er einnig söngken-
nari við söngskólann í
Reykjavík og stjórnandi
Rangæingakórsins í Reyk-
javfk.
Kjartan Ólafsson hefur komið
vfða fram sem söngvari eða
undirleikari við ýmis tækifæri
á tónleikum með konu sinni
Elínu Ósk ásamt því að syngja
einsöng með hinum ýmsu
kórum hérlendis og erlendis.
Guðlaug Hestnes er staifandi
undirleikari hjá Karlakómum
Jökli á Höfn í Hornafirði og
píanókennari við Tónlistar-
skólann þar í bæ.
Samstarf þeirra hefur staðið
yfir í nokkur ár og í sumar
liéldu þau tónleika víða um
austur- og norðauslurland við
góðar undirtektir. Ljúka þau
þessari tónleikaferð með tón-
leikunum í Grindarvíkurkirkju
og Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Við viljum bjóda ykkur hjartanlega velkomnar á námskeid í fatastíl
og förðun, laugardaginn 6. september.
Námskeiðið verður frá kl. 10:00 til 17:00 í Kiwanishúsinu við Iðavelli
Boðið verður upp á hádegisverð.
Förðun:
Kennsla, dag- ogkvöldförðun. Hverog einn fær persónulegar ráðleggingar.
Fatastíll:
Hentugasta snið fyrirþína líkamsbyggingu og hvaða snið þú átt að forðast.
Perónuleg ráðgjöf.
innifalið í námskeiði er fatastílsbók og ráðgjöf um val á undirfatnaði.
Einnig verða námskeið laugardagana 13., 20. og 27. september.
Innritun í símum:
4213035 (Helga) - 4215415 (Smart) - 421 1148 (Stebba)
Dekraðu við þig, þú átt það innilega skilið.
Helga Sigurðardóttir
fatastílisti
Stefanía Björnsdóttír
förðunarfræðingur
sraaRt
HÓLMGARDI 2 • KEFLAVÍK
SÍMI 432 5415
Uið erum búin að fá nokkra
innkaupalista grunnskólanna.
Forðist ösina á mánudaginn.
Sóhabúi Hejfafíkur
Sólvallagötu 2 • Keflavík • sími 421 1102
ir/| r