Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.01.1998, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 29.01.1998, Blaðsíða 13
ÞORRAÞANKAR Við hjónakomin brugðum undir okkur betri fætinum nú í Þorrabyrjun og gistum m.a. á hóteli í Reykjavík eina nótt. Þar var okkur dreifbýlingun- um boðið upp á sértilboð á „skáldaherbergi“ og gistum þann merka mann Einar Ben. Pistlaskrifari er enn ekki laus við forvitnina og las þvf fróð- leik um skáldið, sem skráður var þar á veggi, og einnig enska þýðingu hótelsins á upplýsingunum. Mér til undr- unar mátti þar lesa að Einar heföi ætlað að reisa „sex power stations" á landinu kalda. Væntanlega bregður túristum eitthvað við þær upp- lýsingar að kynlífsorkustöðv- ar haft átt að rísa hér. Þarf þó ekki að koma á óvart þegar Gullfoss og Geysir hafa ekki aðdráttarafl heldur streyma hingað erlendir karlmenn í leit að ljóshærðum, hispurslaus- um ungmeyjum. Vonandi helst ákveðið kynjajafnvægi í eftirspuminni þegar hin lima- fagra Mel B. hefur tíundað kosti íslensks karlpenings í fjölmiðlutn. Einhvem veginn finnst mér þó það ekki geðs- leg framtíð að taka á móti hópum ferðamanna í leit að sex power stöðvunum. Trúlega er umgjörð míns síð- asta pistils alveg í stíl við þetta. (Ég les alltaf pistlana mína í Víkurfréttum, enda em þeir langbesta efnið sem þar birtist.) Síðasti pistill deildi dálkum með auglýsingu unt símaþjónustu. Þar var boðið upp á að lesnar væm fyrir mann nætursögur. Ég ímynda mér að einhver góð kona lesi fyrir mann Rauðhettu og úlfinn eða Þymirós svo maður nái að sofna á kvöldin. Þetta kostar að vísu nokkuð hver mínúta enda veitir blessuðum konunum ekki af smá pening, þær sem auglýstu þjónustuna höfðu greinilega ekki efni á að kaupa sér skjólgóðar flíkur. Afgangur blaðsíðunnar var lýsing ljósmóður á ágæti þess Hrafnkell Óskarsson pistlahöfundur að fæðjng færi fram í vatni. Blaðsíðan gegnt okkur var síðan lýsing núverandi yfír- læknis Sjúkrahússviðs Heil- brigðtsstofnunar Suðumesja, Reykjanesbæ eða er það HeiIsustofnun...osfrv. ég er ekki alveg viss. Hvað um það, greinin fjallaði um fæðingu í vatni á Fæðingardeild Sjúkra- hússviðs Heilbrigðisstofnunar Suðttmesja í Reykjanesbæ... og greinilegt að enginn sem reynt hefur heldur vatni yfir þessari nýju aðferð. Mér brá síðan lítillega þegar flett var áfram og þar stóð „Vatnaver- öld, nýtt fyrirtæki" eða eitt- hvað í þeim dúr. Mér datt fyrst í hug að hér væri lýsing arkitekts á uppsetningu vatns- fæðingarbúnaðar á Fæðingar- deild Sjúkrahússviðs Heil- briðgisstofnunar Suðumesja Reykjanesbæ eða að hér væri búið að stofna fyrirtæki eða stofu kvenskjúkdómalækna er ætluðu að keppa í einkageir- anum við fæðingardeildina og bjóða upp á vatnsfæðingar „úti í bæ“. Það var ákveðinn léttir að uppgötva að hér var verið að fjalla um nýja gælu- dýrabúð. Nákvæmlega hvem- ig gæludýr tengjast nætursög- um, vatnsfæðingum og Einari Ben, hef ég ekki alveg áttað mig á enn. Reyndar hafa athugulir les- endur spurt mig um skrýtna stafi og og bandstrik í síðustu pistlum. Þar er um að kenna að ég hef skrifað á PC tölvu en Víkurfréttir nota Mac. Því er um að ræða mismun- andi kynþætti talva, sem ekki tala sama tungumál og vill því ýmislegt skolast til líkt og í hinni ensku þýðingu á ævi- starfi Einars Ben. Og þar með erum við mjög snyrtilega búin að tengja pistilinn í hring. Með „sex power“ kveðju, Hrafnkell Opið öl! kvöld frá ki 18:00 Tuðmundur Hermannsson leikur föstudag og laugardag. Opið alla daga kl. 19-23 um helgar ki 19-01 Súpa og salat öll hádegi Sérréttamatseðill OaÍí fctut °p/ð alla daga kL JJ tjj20 SIMI 421 5222 nær: Njóttu lífsins - veldu rétt NICORETTE innsogslyf Reyklaus stáðreynd sem stendur upp úr KYNNING RÁÐGJÖF AFSLÁTTUR föstudaginn 30. janúar Id. 14-18 Apótek Keflavíkur Suðurgötu 2 • Kejlavík • sími 421 3200 Opið virka daga kl. 09-19 Laugardaga kl. 10-13 og 16:30 til 18:30 Sunnudaga kl. 10-12 og 16:30 til 18:30 Helgidaga og aðra frídaga kl. 10-12 FRÍAR HEIMSENDINGAR Víkurfréttir 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.