Víkurfréttir - 08.10.1998, Qupperneq 10
Agætu Suðurnesjamenn. Skólastarf hér í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja er nú komið á fullt.
Kennarar skólans eru frískir og ferskir eftir
námskeið sumarsins og nemendur mættir
kappsfullir og metnaðargjarnir til leiks. Því þykir
okkur við hæfi að taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið síðastliðið vor og kynna fyrir ykkur skólastarf-
ið, félagslífíð og annað markvert í FS. FS - fréttir eru
aftur komnar á kreik.
Spunningakeppni
Framhaldsskólanna
Undirbúningur fyrir Spumingakeppni Framhaldsskólanna er nú
hafinn í FS. A undirbúningsfundi sem haldinn var á dögunum
mætti góður hópur nemenda sem hyggst leggja metnað sinn í að
keppa fyrir hönd skólans. Þorvaldur Sigurðsson kennari hefur
yfimmsjón með undirbúningi. Óskum við þeim góðs gengis.
Framtíðarlid FS í spurningakeppninni.
>eiðafærasýningu Netagerðarbrautar 1997
Sérgreinar netagerðar
kenndar á vorönn
Sérgreinar námsbrautar í neta-
gerð verða kenndar í FS á
vorönn 1999. Áfangamir sem
um er að ræða em efnisfræði
netagerðar, enska fyrir neta-
gerð, fagleg netagerð (iðn-
reikningur netagerðar), haf-
og fiskifræði, lög og reglu-
gerðir um gerð og umbúnað
veiðarfæra, veiðar og veiðar-
færi sem skiptist í 3 einingar
bóklegt nám og tvær í líkana-
gerð og iðnteikning sem
skiptist í fimm einingar í
handteikningu og tvær í tölvu-
teikningu. Nám í netagerð
(veiðarfæragerð) er 3ja ára
samningsbundið nám hjá
meistara sem lýkur með
sveinsprófi. Náminu er skipt-
ist í tvo hluta, verklegan þátt
sem svarar 2ja ára vinnu á
netagerðarverkstæði undir
handleiðslu meistara og bók-
legan þátt sem saman stendur
af almennum bóknámi og
námi í sérgreinum brautarinn-
ar.
Fjölbrautaskóli Suðumesja er
eini skólinn á landinu sem
býður upp á menntun til
sveinsprófs í netagerð. Nem-
endur geta þó tekið verklega
þátt námsins og almennu
námsgreinarnar heima í hér-
aði en nám í sérgreinum
brautarinnar þurfa þeir að
sækja til F.S. Netagerð hefur
verið löggilt iðngrein hér á
landi síðan 1928. Aðeins í
einu öðru landi, Japan, er
þessi iðn er löggilt en þeir
hafa einnig komið á fót námi í
verkfræði veiðarfæra.
Starf netagerðarmanns felst í
hönnun veiðarfæra svo og
uppsetningu þeirra. Atvinnu-
möguleikar hafa verið nokkuð
góðir undanfarin ár bæði hér
heima sem og erlendis.
VERSLUIXIIIXI VEIÐISLOÐ
Aðeinðá i
Hau ttW-
25-50%
afsláttur af etangveiðivörum
20-40%
afðláttur af reiðvörum
50%
afðláttur af gönguekóm
15%
afðláttur af gæðaekotum
haustdagar
í Rafbúó RÓ
10% afsláttur
af nýjum vörum
og allt aó
70% afsláttur
af eldri vörum
OPIÐ LAUGARDAG
TIL KL. 14
RAFBÚÐ.
HAFNARGOTU 52
K.E F LAV í K.
SÍMI 421 3337
10
Víkurfréttir