Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.10.1998, Síða 26

Víkurfréttir - 08.10.1998, Síða 26
-Sjóbirtingurinn lætur bíða eftir sér en menn vóna að hann mæti eftir mikla rigningu undanfarna daga aö var ekkert líf en ég á von á góðum kipp næstu daga eftir þessa miklu rigningu“, sagði Magnús Haraldsson, stór- veiðimaður úr Sparisjóðn- um í Keflavík en hann og félagar hans komu heim í gær tómhentir úr Fossálum á Síðu en þessar síðsum- arsár fvrir austan hafa ekkert gefið að undanförnu. Sama saga var af hollinu á undan í Fossálum og lítið hefur heyrst af veiði í Vatna- mótum og Geirlandsá. Þær eru reyndar nú eftir hressilega haustrigningu bakkafuilar og komi ekki gott skot næstu daga verður þetta rannsókn- arefni, þessi litla veiði. Kannski sjóbirtingurinn sé bara að stríða veiðimönnum. Páll bóndi á Síðu sagði við síðustu veiðimenn að hann skyldi ekkert í þessu ástandi. Veiðisögur frá sumrinu em kræsilegri en úr haustveiðinni. Meðal stórfiska sumarsins má nefna 21 punda hæng sem Öm Bergsteinsson úr Kefia- vík veiddi í Hafralónsá fyrstu vikuna í september. Hann er í virðulegu veiðifélagi sem heitir því skemmtilega nafni Laxfiskar. Hollið veiddi 37 laxa frá 5 pundum upp í 21 pund. Öm fékk hænginn myndarlega á veiðistaö Tung- árhyl (nr. 15). Einn veiðifé- laga hans, Eiríkur Reynisson fékk 18 punda hæng í Pott- inum (veiðist. nr.4). Öm sagði að sá stóri hefði tekið nokkrar rokur, lagt síðan og gefist upp eftir 50 mín. Öm veiddi stærsta fiskinn í Hrollleifs- dalsá sem Stangveiðifélag Keflavíkur er með, 16 punda fisk. Allir þessir stórfiskar fengust á maðk. Frændahollið úr Höfnum gerði góða ferð í Langá síðustu dagana í ágúst. Þeir tóku að vísu við ánni eftir 400 fiska veiði fyrsta maðka- hollsins sem reyndar svindlaði 140 fiskum sem þeir skráðu ekki í veiðibækur. I ofanálag var fyrsti dagurinn í „kakói“ ' vegna stómgningar. Hafna- frændur voru með 8 stangir af 12 og veiddu 53 fiska, frá 2 til 15 punda, nánast alla á maðk. Tveir tóku flugu. Stærsta fiskinn fékk Ólafur Bjöms- son, 15 punda Langár-hæng á svæði 51. Geysifallegan fisk. Nokkur umræða hefur verið að undanfömu með svokölluð fyrstu maðkaholl. Ingvi Hrafn Jónsson Langárbóndi sagði á Kiwanisfundi íKeflavík í vikunni að það kæmi til greina að róterta fyrstu holl- unum milli ára. Góð hug- mynd, ekki síst í Ijósi ofsa- veiði þessara holla en hún varð tilefni viðtals við stór- veiðimanninn, Þórarinn Sig- þórsson í Degi nýlega þar sem hann segir nauðsynlegt að setja kvóta. Hætta sér liein- lega á því að eyðleggja ár með þessum mokstri segir veiðimaður sem kallar ekki allt ömmu sína þegar mokstur er annars vegar. Sælirog glaðir Á myndinni til vinstri má sjá þrjá sæla veiðimenn úr Hafnahollinu sem veiddi í Langá nýlega., Valur Ketilsson held- urá 5 punda laxi sem hann veiddi við laxastigann á svædi 90. Med honum eru frændi hans Gardar K. Vilhjálmsson og stórveiði-tollarinn Andrés Ari Ottósson. Að ofan má sjá inn í setustofuna í glæsilegu og splunkunýju veiðihúsi við Langá. 26

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.