Víkurfréttir - 08.10.1998, Qupperneq 31
Fjarnám í ferðamálafræðum erstundað um alltland.
Nemendur símenntunar á Suðurnesjum fylgjastmeð
lelðbeinanda í nýju sjónvarpsbúnaði sem er einnig á fleiri
stöðum úti á landi. Þetta er ný aðferð í kennslu sem hefur
gefist vel og á án efa eftir að verða meira notuð í
framtíðinni. Að neðan má sjá hópinn á Ijósmynda-
námskeiðinu hjá Mogga-séníunum, Rax og Einari Fal.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum:_______
Um tvöhundruð manns
á haustnámskeiöum
Unclanfarnar vikur hefur Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum staðið fyrir námskeiðum af
ýmsu tagi. Meðfylgjandi niyndir voru teknar á þremur þeirra. Einar Thoroddsen leiðbeindi
áhugafólki og starfsfólki af veitingahúsum um notkun borðvína. Ragnar Axelsson og Einar
Falur Ingólfsson, Ijósmvndarar á Morgunblaðinu, leiðbeindu áhugafólki og atvinnumönn-
um á Ijósmyndanámsekiði og fyrir nokkru hófst fjarkennsla í ferðamálafræðum í samstarfi
við Háskóla Islands og Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Revkjanesbæjar.
„Eg er mjög ánægður með viðtökurnar. Það hafa um tvöhundruð og fimmtíu manns sótt
námskeið okkar en við erum að auglýsa fleiri núna og munum bæta við aftur í nóvember og
svo aftur eftir áramót“, sagði Kjartan Már Kjartansson, forstöðumaður Fleiri námskeið
hefjast á næstu dögum og eru nokkur þeirra kynnt í auglýsingu hérá síöunni.
Námskeið í innra eftirliti
Miðstöð símenntunar á Suð-
umesjum stendur fyrir nám-
skeiði í HACCP eftirlitskerf-
inu (GAMES á ísl.) dagana
26.og 27. okt. n.k. í samstarfi
við Skoðunarstofu Suður-
nesja. Námskeiðið er ætlað
sem starfa við matvæla-
vinnslu. 1 lögum unr meðferð
sjávarafurða er kveðið svo á
um að forsenda fyrir vinnslu-
leyfi hjá fiskvinnsluhúsum sé
að til staðar sé starfsmaður
með sérþekkingu. Fiskistofa
hefur skilgreint þessa grein
laganna þannig að í hverri
vinnslustöð þurfi að vera til
staðar starfsmaður sem sótt
hefur námskeið og staðist
próf í HACCP eftirlitskerfinu.
Brynjar Gunnarsson hjá
Skoðunarstofu Suðurnesja
hefur réttindi til að halda slflct
námskeið. Skráning fer fram í
síma 421-7500 (sjá auglýs-
ingu annars staðar í blaðinu).
MlÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR
ÁSUÐURNESJUM
Námskeið á
næstunni
Exel 97 fyrir fjármálafólk
Fjarnám á Internetinu á vegum
Endurmenntunarstofnunar
Háskóla Islands hefst 19. okt. grun-
nþekking á Exel skilyrði
kennari: Guðmundur Ólafsson,
hagfræðingur.
Islensk listasaga (1008)
12 kennslustundir í lok október
kennari: Sigrid Österby
Ættfræði (1009)
24 kennslustundir, hefst 20.okt.
kennari: Magnús Ó. Ingvarsson
Lög um fjöleignarhús (1011)
6 kennslustundir, 20. og 21. október
kennari: Selma Baldvinsdóttir,
lögfræðingur Húseigendafélagsins
Innritun og allar nánari upplýsingar
í síma 421-7500
Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum
______Http://www. mss. is____
Víkurfréttir
31