Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016 „Allir vilja góða kennara!“ Menntavísindasvið HáskólaÍslands stendur nú öðrusinni fyrir átakinu „Hafðu áhrif“ en fyrst var farið af stað með það fyrir tveimur árum. Að sögn Jó- hönnu Einarsdóttur, forseta Menntavísindasviðs, var kveikjan að átakinu neikvæð umræða um kenn- arastarfið í samfélaginu á þeim tíma, ekki síst í fjölmiðlum. „Und- anfarin ár og misseri hefur umræð- an alltof mikið snúist um það hvað þetta sé illa launað og vanþakklátt starf. Því viljum við breyta,“ segir Jóhanna. Tilgangurinn er sumsé að draga upp jákvæðari mynd af starfinu og auka áhugann á því. „Þetta tókst ótrúlega vel fyrir tveimur árum og við fengum mjög jákvæð viðbrögð frá almenningi,“ segir Jóhanna. „Þess vegna ákváðum við að gera þetta aftur núna. Viðbrögðin koma okkur ekki á óvart enda vilja allir góða kennara!“ Umræðan hefur breyst Hún segir umræðuna klárlega hafa breyst til hins betra á þessum tveimur árum og við fáum nú í ríkari mæli jákvæðar fréttir af skólastarfi í landinu og jákvæðum þáttum kennarastarfsins. „Kennarastarfið er skemmtilegt, skapandi og gefandi starf sem er til þess fallið að hafa mikil áhrif á einstaklinga og sam- félagið í heild,“ segir Jóhanna. Meðal þess sem fólk er hvatt til að gera er að hugsa um kennarana sína gegnum tíðina og meta á hvern hátt þeir hafi haft jákvæð og hvetj- andi áhrif á líf þess. Fólk er beðið að tilnefna kennara á heimasíðu átaks- ins. Síðast bárust um tvö þúsund til- nefningar. Fimm kennarar hlutu viðurkenningu Menntavísindasviðs fyrir tveimur árum og Jóhanna reiknar með að svipaður fjöldi verði fyrir valinu að þessu sinni. Öruggt framtíðarstarf Hvort sem það er átakinu eða ein- hverju öðru að þakka þá fjölgaði kennaranemum við Háskóla Íslands nokkuð á síðasta ári. Jóhanna segir námið greinilega vera farið að trekkja meira að en áður og vonar að sú þróun haldi áfram næstu árin. Möguleikar háskólamenntaðs fólks á atvinnu eftir útskrift hefur verið talsvert til umræðu að und- anförnu og því miður eru horfurnar ekki alls staðar góðar. Jóhanna seg- ir þetta sem betur fer ekki eiga við um kennara. Ný útskrifaðir kenn- arar geti yfirleitt gengið að vinnu vísri. „Það skiptir auðvitað miklu máli þegar fólk velur sér nám og þróunin er sú að þessi þáttur vegur alltaf þyngra þegar fólk velur sér háskólagrein,“ segir hún. Að sögn Jóhönnu eru kenn- aranemar upp til hópa mjög meðvit- aðir um umræðuna um starfið og hafa þeir verið óþreytandi við að vekja athygli á kostum þess; svo sem með því að koma fram í fjöl- miðlum. Hún fagnar þessu frum- kvæði. Umræðan um launamál kennara hefur áratugum saman verið á nei- kvæðum nótum. Jóhanna segir mik- ið hafa áunnist í þeim málum und- anfarin ár, ekki síst varðandi leikskólakennara sem sjáist best á því að rúmlega 50% aukning hafi orðið í grunnnámið milli ára. Að sögn Jóhönnu er það ánægju- leg þróun að fólki með BA-gráðu í öðrum fögum, svo sem tungumálum, sálarfræði og fleiru, fjölgar jafnt og þétt í kennaranáminu. Þetta fólk vill þá bæta við sig tveimur árum og fá kennararéttindi. „Það bendir til þess að starfið sé að verða eftirsókn- arverðara en það hefur verið.“ Fækkun karla áhyggjuefni Körlum hefur fækkað jafnt og þétt í faginu og Jóhanna telur að sú þróun sé áhyggjuefni. „Þetta er þróunin í löndunum í kringnum okkur og við höfum ekki ennþá fundið leiðir til að sporna við henni. Finnar eru þó undantekning, enda er kenn- arastarfið þar mjög hátt metið. Auð- vitað viljum við að börn hafi fjöl- breyttar fyrirmyndir til að samsama sig við. Bæði kynin þurfa að eiga samskipti við karl- og kvenkennara sem hafa jafnrétti að leiðarljósi.“ Hún segir þetta sérstakt áhyggju- efni á leikskólastiginu og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Afar fáir karl- menn starfi sem leikskólakennarar og sæki í það nám. Körlunum fjölgi eftir því sem ofar í skólakerfið dreg- ur og þeir séu flestir á efstu stigum námsins. „Við höfum markvisst reynt að vekja athygli á þessu og karlkyns kennararanemar hafa verið mjög duglegir við það sjálfir. Karlahópur innan leikskólakennarafélagsins hefur einnig verið mjög dugmikill. En betur má ef duga skal!“ Kennslustund í Flataskóla. Morgunblaðið/Styrmir Kári Átakinu „Hafðu áhrif“ er ætlað að vekja athygli þjóðarinnar á kennarastarfinu; hversu áhugavert og skemmtilegt það er og hversu mikil áhrif kennarar hafa á einstaklinga og samfélagið. Aðstandendur segja átakið hafa skilað tilætluðum árangri. Íslenska skólasamfélagið hefur breyst mikið á tiltölulega skömm- um tíma; er orðið mun fjölbreyttara og fjölmenningarlegra en áð- ur. „Ég lít á þetta sem tækifæri fyrir skólakerfið og spennandi við- fangsefni,“ segir Jóhanna. Mikil vinna hefur verið lögð í að bregðast við þessari fjölmenn- ingarþróun, bæði hér heima og í samvinnu við hin Norðurlöndin enda getum við lært margt af reynslu þeirra. Ný samnorræn rann- sókn sýnir að góður árangur skólastarfs sem byggir á fjölbreytni og fjölmenningu veltur á hæfni einstakra kennara. Jóhanna bendir líka á að nú byrji öll börn tveggja ára gömul á leikskóla sem þýðir að þau eru búin að vera fjögur ár í skólakerfinu áður en þau hefja nám í grunnskóla. „Við leggjum mikla áherslu á að líta á námsferil barna sem eina heild og byggja á sterku hliðum barnanna og því sem þau hafa verið að vinna að í leikskólanum.“ Umhverfið fjölbreyttara og fjölmenningarlegra Í nýrri skýrslu OECD er því haldið fram að menntakerfi geti aldrei orðið betra en kennararnir sem í því starfa. Leitað er svara við því hvaða þættir það eru sem einkenna góða kennara og farið er yfir rannsóknir á því efni. Þekking á námsgreininni sem kenna skal er einn þeirra þátta sem nefndir eru sem mikilvægir. Menntunarfræðileg þekking er annar þáttur, en þar er m.a. átt við þekkingu á kennsluað- ferðum og leiðum til að skipu- leggja og meta nám og kennslu. Góðir kennarar hafa einlægan áhuga á nemendum sínum, bera virðingu fyrir þeim og hvetja þá til dáða. Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ. Morgunblaðið/Kristinn Kerfið aldrei betra en kennararnir ’Það er hlutskipti okkar flestra að aðeins fimm eða sex mannsmuna eftir okkur. Þúsundir manna muna eftir kennurunumsínum það sem eftir er ævinnar. Fjölmiðlamaðurinn Andy Rooney. INNLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.