Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016
„Allir vilja góða kennara!“
Menntavísindasvið HáskólaÍslands stendur nú öðrusinni fyrir átakinu „Hafðu
áhrif“ en fyrst var farið af stað með
það fyrir tveimur árum. Að sögn Jó-
hönnu Einarsdóttur, forseta
Menntavísindasviðs, var kveikjan að
átakinu neikvæð umræða um kenn-
arastarfið í samfélaginu á þeim
tíma, ekki síst í fjölmiðlum. „Und-
anfarin ár og misseri hefur umræð-
an alltof mikið snúist um það hvað
þetta sé illa launað og vanþakklátt
starf. Því viljum við breyta,“ segir
Jóhanna.
Tilgangurinn er sumsé að draga
upp jákvæðari mynd af starfinu og
auka áhugann á því. „Þetta tókst
ótrúlega vel fyrir tveimur árum og
við fengum mjög jákvæð viðbrögð
frá almenningi,“ segir Jóhanna.
„Þess vegna ákváðum við að gera
þetta aftur núna. Viðbrögðin koma
okkur ekki á óvart enda vilja allir
góða kennara!“
Umræðan hefur breyst
Hún segir umræðuna klárlega hafa
breyst til hins betra á þessum
tveimur árum og við fáum nú í ríkari
mæli jákvæðar fréttir af skólastarfi
í landinu og jákvæðum þáttum
kennarastarfsins. „Kennarastarfið
er skemmtilegt, skapandi og gefandi
starf sem er til þess fallið að hafa
mikil áhrif á einstaklinga og sam-
félagið í heild,“ segir Jóhanna.
Meðal þess sem fólk er hvatt til
að gera er að hugsa um kennarana
sína gegnum tíðina og meta á hvern
hátt þeir hafi haft jákvæð og hvetj-
andi áhrif á líf þess. Fólk er beðið að
tilnefna kennara á heimasíðu átaks-
ins. Síðast bárust um tvö þúsund til-
nefningar. Fimm kennarar hlutu
viðurkenningu Menntavísindasviðs
fyrir tveimur árum og Jóhanna
reiknar með að svipaður fjöldi verði
fyrir valinu að þessu sinni.
Öruggt framtíðarstarf
Hvort sem það er átakinu eða ein-
hverju öðru að þakka þá fjölgaði
kennaranemum við Háskóla Íslands
nokkuð á síðasta ári. Jóhanna segir
námið greinilega vera farið að
trekkja meira að en áður og vonar
að sú þróun haldi áfram næstu árin.
Möguleikar háskólamenntaðs
fólks á atvinnu eftir útskrift hefur
verið talsvert til umræðu að und-
anförnu og því miður eru horfurnar
ekki alls staðar góðar. Jóhanna seg-
ir þetta sem betur fer ekki eiga við
um kennara. Ný útskrifaðir kenn-
arar geti yfirleitt gengið að vinnu
vísri. „Það skiptir auðvitað miklu
máli þegar fólk velur sér nám og
þróunin er sú að þessi þáttur vegur
alltaf þyngra þegar fólk velur sér
háskólagrein,“ segir hún.
Að sögn Jóhönnu eru kenn-
aranemar upp til hópa mjög meðvit-
aðir um umræðuna um starfið og
hafa þeir verið óþreytandi við að
vekja athygli á kostum þess; svo
sem með því að koma fram í fjöl-
miðlum. Hún fagnar þessu frum-
kvæði.
Umræðan um launamál kennara
hefur áratugum saman verið á nei-
kvæðum nótum. Jóhanna segir mik-
ið hafa áunnist í þeim málum und-
anfarin ár, ekki síst varðandi
leikskólakennara sem sjáist best á
því að rúmlega 50% aukning hafi
orðið í grunnnámið milli ára.
Að sögn Jóhönnu er það ánægju-
leg þróun að fólki með BA-gráðu í
öðrum fögum, svo sem tungumálum,
sálarfræði og fleiru, fjölgar jafnt og
þétt í kennaranáminu. Þetta fólk vill
þá bæta við sig tveimur árum og fá
kennararéttindi. „Það bendir til
þess að starfið sé að verða eftirsókn-
arverðara en það hefur verið.“
Fækkun karla áhyggjuefni
Körlum hefur fækkað jafnt og þétt í
faginu og Jóhanna telur að sú þróun
sé áhyggjuefni. „Þetta er þróunin í
löndunum í kringnum okkur og við
höfum ekki ennþá fundið leiðir til að
sporna við henni. Finnar eru þó
undantekning, enda er kenn-
arastarfið þar mjög hátt metið. Auð-
vitað viljum við að börn hafi fjöl-
breyttar fyrirmyndir til að samsama
sig við. Bæði kynin þurfa að eiga
samskipti við karl- og kvenkennara
sem hafa jafnrétti að leiðarljósi.“
Hún segir þetta sérstakt áhyggju-
efni á leikskólastiginu og í fyrstu
bekkjum grunnskóla. Afar fáir karl-
menn starfi sem leikskólakennarar
og sæki í það nám. Körlunum fjölgi
eftir því sem ofar í skólakerfið dreg-
ur og þeir séu flestir á efstu stigum
námsins.
„Við höfum markvisst reynt að
vekja athygli á þessu og karlkyns
kennararanemar hafa verið mjög
duglegir við það sjálfir. Karlahópur
innan leikskólakennarafélagsins
hefur einnig verið mjög dugmikill.
En betur má ef duga skal!“
Kennslustund
í Flataskóla.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Átakinu „Hafðu áhrif“ er ætlað að vekja athygli þjóðarinnar á kennarastarfinu; hversu áhugavert og skemmtilegt það er og
hversu mikil áhrif kennarar hafa á einstaklinga og samfélagið. Aðstandendur segja átakið hafa skilað tilætluðum árangri.
Íslenska skólasamfélagið hefur breyst mikið á tiltölulega skömm-
um tíma; er orðið mun fjölbreyttara og fjölmenningarlegra en áð-
ur. „Ég lít á þetta sem tækifæri fyrir skólakerfið og spennandi við-
fangsefni,“ segir Jóhanna.
Mikil vinna hefur verið lögð í að bregðast við þessari fjölmenn-
ingarþróun, bæði hér heima og í samvinnu við hin Norðurlöndin
enda getum við lært margt af reynslu þeirra. Ný samnorræn rann-
sókn sýnir að góður árangur skólastarfs sem byggir á fjölbreytni og
fjölmenningu veltur á hæfni einstakra kennara.
Jóhanna bendir líka á að nú byrji öll börn tveggja ára gömul á
leikskóla sem þýðir að þau eru búin að vera fjögur ár í skólakerfinu
áður en þau hefja nám í grunnskóla. „Við leggjum mikla áherslu á
að líta á námsferil barna sem eina heild og byggja á sterku hliðum
barnanna og því sem þau hafa verið að vinna að í leikskólanum.“
Umhverfið fjölbreyttara
og fjölmenningarlegra
Í nýrri skýrslu OECD er því
haldið fram að menntakerfi
geti aldrei orðið betra en
kennararnir sem í því starfa.
Leitað er svara við því hvaða
þættir það eru sem einkenna
góða kennara og farið er yfir
rannsóknir á því efni. Þekking
á námsgreininni sem kenna
skal er einn þeirra þátta sem
nefndir eru sem mikilvægir.
Menntunarfræðileg þekking
er annar þáttur, en þar er m.a.
átt við þekkingu á kennsluað-
ferðum og leiðum til að skipu-
leggja og meta nám og
kennslu. Góðir kennarar hafa
einlægan áhuga á nemendum
sínum, bera virðingu fyrir
þeim og hvetja þá til dáða.
Jóhanna Einarsdóttir, forseti
Menntavísindasviðs HÍ.
Morgunblaðið/Kristinn
Kerfið aldrei
betra en
kennararnir
’Það er hlutskipti okkar flestra að aðeins fimm eða sex mannsmuna eftir okkur. Þúsundir manna muna eftir kennurunumsínum það sem eftir er ævinnar. Fjölmiðlamaðurinn Andy Rooney.
INNLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is