Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Blaðsíða 37
aðarráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnartíma fyrir nokkrum dögum og vildi vita hvort að hann teldi það ekki „réttlætismál“ að ríkið heimti hærri skatta af sjávarútveginum. Gunnar Bragi sagði meðal annars í svari sínu: „Ég hef gjarnan litið þannig á að veiðigjöldin séu fyrst og fremst aukaskattur á ákveðna landshluta, sér í lagi landsbyggðina. Þetta er gjald sem leggst hvað þyngst á fyrirtæki sem eru úti á landi.“ Gunnar Bragi benti einnig á að það væri „engin sanngirni í því að taka sérstakt gjald af einni atvinnugrein“ og nefndi í því sambandi orku og vatn, auk ferðaþjónustu. Oddný var ekki sátt við þessi svör og bætti um bet- ur með því að spyrja ráðherra hvernig honum litist á að úthluta mögulegri kvótaaukningu næsta haust með öðrum hætti en nú er gert, og nefndi sérstaklega að halda uppboð á aukningunni og færa hana hæst- bjóðanda. Ráðherra var sem betur fer ekki ginnkeyptur fyrir þessari hugmynd og benti á að með henni gætu þeir sem mesta fjármuni eiga safnað til sín aflaheimildum. „Ég hefði áhyggjur af því að stærstu fyrirtækin gætu boðið hæsta verðið og þar af leiðandi haldið þeim minni sem hafa minna fé milli handanna frá því að fá aflaheimildir. Ég held því að við hljótum að úthluta á hefðbundinn hátt.“ Furðuleg hugmynd Þetta er mikilvæg yfirlýsing og afstaða ráðherrans skiljanleg um að yrði farið í útboð myndu þeir sem mest fé hefðu handa á milli geta keypt mest. Þetta er þó ekki meginástæða þess að hugmynd Oddnýjar er afleit. Meginástæðan er sú að með því að fara þessa leið væri verið að vega enn frekar að stjórnkerfi fisk- veiða og skera af því einn helsta þáttinn í því að það er jafn hagkvæmt og raun ber vitni. Því miður hafa andstæðingar kerfisins átt erfitt með að skilja þetta, en sá varanleiki sem felst í úthlutununum er ein helsta forsenda þess að kerfið skili árangri. Væri tek- ið upp á því að bjóða upp alla aukningu en láta útgerðirnar taka á sig allar skerðingar, væri búið að leggja af það kerfi sem við þekkjum og hefur reynst svo vel og verið fyrirmynd annarra ríkja. Þá væri óhjákvæmileg afleiðing að hagkvæmni í sjávarútvegi myndi hrapa með tilheyrandi lífskjaraskerðingu almennings. Sjávarútvegur hefur vaxið og dafnað á Íslandi eftir að skynsamlegt stjórnkerfi fiskveiða var tekið upp fyrir rúmum aldarfjórðungi. Stöðugleikinn sem fylgt hefur stjórnkerfinu, þrátt fyrir að reynt hafi verið ítrekað að vega að því, ekki síst í tíð vinstri stjórn- arinnar á síðasta kjörtímabili, hefur orðið til þess að útgerðin hefur getað byggt upp tæki og tól í veiðum og vinnslu og það hefur einnig ýtt undir nýsköpun hér á landi á öðrum sviðum og skapað sjálfstæðan út- flutning í tækni og iðnaði. Stöðugleikinn hefur einnig orðið til þess að sjávarútvegurinn hefur getað farið út í margvíslega nýsköpun og bætt nýtingu hráefn- isins, sem er skynsamlegt og hagkvæmt á allan hátt. Þá hefur stöðugleikinn og hagkvæmnin orðið til þess að fyrirtækin hafa getað byggt upp sterka stöðu á markaði erlendis, sem er sá þáttur í starfi sjávar- útvegsins sem sennilega er hvað mest vanmetinn og misskilinn í almennri umræðu. Það er ekki sjálfsagt að íslenskum fyrirtækjum hafi tekist að byggja upp öfluga markaði og tryggja sér gott verð þegar þau standa frammi fyrir samkeppni við niðurgreiddan sjávarútveg annarra ríkja. Þetta er engu að síður staðreynd og það er furðuleg hugmynd, ekki síst við þessar ósanngjörnu alþjóðlegu samkeppnisaðstæður, að vilja skattleggja þennan atvinnuveg umfram alla aðra. Lögmálið er alltaf hið sama Dapurlegt er að horfa upp á það þegar fólk vill ekkert læra af sögunni en kýs þess í stað að láta kreddur og fordóma ráða afstöðu sinni. Ísland nú á tímum lýtur ekki öðrum lögmálum en önnur ríki gera og hafa gert í gegnum tíðina um víða veröld. Þegar vel tekst til og hugviti er leyft að njóta sín eru fólki allir vegir færir og farsæld nánast vís. Ef menn á hinn bóginn líta svo á að það að hafa aðgang að auðlind sé eina forsenda velmegunar, og að ríkið geti lagt á þá atvinnugrein sem auðlind nýtir klyfjar langt umfram aðrar at- vinnugreinar, er voðinn vís. Íslendingar geta verið auðug þjóð með þær auðlindir sem þeir hafa en þeir geta einnig komið sér á vonarvöl þrátt fyrir auðlind- irnar ef þeir ráðstafa þeim óskynsamlega, halda fyr- irtækjum sem nýta þær í óvissu og skattleggja þau langt umfram önnur fyrirtæki. Morgunblaðið/RAX ’ Hlutdeild í aflamarki var gerð varanleg, sem var afar mikilvæg ráðstöfun og einn helsti grunnurinn að því að hægt var að vinna að þeirri hagræðingu og hagkvæmni sem náðst hefur í íslenskum sjávarútvegi. 22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.