Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 12
Níu manns hafa sent inn með- mælendalista vegna framboðs til forseta Íslands. Séu allir frambjóðendur með nægilega margar undirskriftir þýðir það að um 5,8% kjörgengra að lág- marki hafa skrifað undir hjá ein- hverjum frambjóðanda. Hver frambjóðandi þarf að skila inn að minnsta kosti 1.500 undirskriftum til að framboðið teljist gilt. Miðað við að um 235 þúsund manns séu á kjörskrá, sem er fjöldinn frá því í síðustu forsetakosningum, þá jafngilda undirskriftir frá 13.500 ein- staklingum (9x1500) því að alls 5,8% atkvæðabærra setji nafn sitt á einhvern listann. Safna þurfti undirskriftum í réttu hlutfalli við fólksfjölda í hverjum landsfjórðungi. Frambjóðendur mega að há- marki skila inn 3.000 undir- skriftum. Hafi allir skilað há- marksfjölda myndi það þýða að safna hefði þurft undirskriftum frá alls 11,5% fólks á kjörskrá. Frestur til að skila inn undir- skriftalistum vegna framboðs til forseta Íslands rann út á mið- nætti föstudaginn 20. maí. Ferfætlingar munu ekki vera gjaldgengir sem meðmælendur framboða. Morgunblaðið/Golli ÞURFA 13.500 MEÐMÆLENDUR Söfnun undirskrifta lokið FORSETAVAKTIN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016 Laugavegi 52 | 101 Reykjavík Sími 552 0620 | gullogsilfur.is SÖLUAÐILAR Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588 | Gullúrið Mjódd s: 587-410 | Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900 Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150 Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 | Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333 Nú þegar aðeins um mán-uður er til forsetakosn-inga hefur aukinn þungi færst í baráttuna. Í upphafi síðustu viku dró til tíðinda þegar sitjandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, tilkynnti að hann hefði ákveðið að draga framboð sitt til baka. Ákvörðun forseta mæltist misvel fyrir, enda hafði hann tilkynnt óvænt um framboð sitt aðeins þremur vikum fyrr á sérstökum blaðamannafundi á Bessastöðum. Áður hafði hann sem kunnugt er sagt í nýársávarpi að hann færi ekki fram. Áhrif Ólafs Ragnars Þegar Ólafur Ragnar ákvað að bjóða sig fram aftur hættu nokkrir frambjóðendur við sitt framboð. Því má segja að forsetinn fráfar- andi hafi sannarlega haft töluverð áhrif á það hverjir verða endanlega á kjörseðlinum 25. júní næstkom- andi. Vigfús Bjarni Albertsson, Hrannar Pétursson og Bæring Ólafsson hættu allir við áður til- kynnt framboð sín í kjölfar til- kynngar Ólafs á sínum tíma um framboð. Víst er að fleiri sem höfðu verið undir feldi hættu við að skoða framboð frekar í kjölfar fregnanna af því að Ólafur ætlaði fram á ný. Því má telja afar líklegt að ein- hverjir fleiri hefðu bæst í hóp for- setaframbjóðenda ef Ólafur hefði einfaldlega staðið við sína upp- haflegu tilkynningu í nýársávarp- inu. En ef og hefði skiptir víst litlu núna. Staðan nú er sú að níu nöfn birtast að líkindum á kjörseðlinum 25. júní næstkomandi. Fimm karl- ar og fjórar konur höfðu á föstu- dag skilað inn gögnum vegna fram- boðs. Reyndar verður ekki staðfest endanlega fyrr en eftir um það bil viku hverjir verða örugglega í kjöri, eða ekki fyrr en Hæstiréttur hefur staðfest að öll gögn fram- bjóðenda séu nægjanleg. Alltént er útlit fyrir að þetta verði lengsti kjörseðill í sögu ís- lenskra forsetakosninga, jafnvel þótt einn eða tveir detti úr á loka- metrunum. Mest hafa verið sex í framboði, það var í kosningunum árið 2012. Í öðrum kosningum hafa frambjóðendur verið tveir til fjórir. Guðni Th. Jóhannesson hefur mælst með mest fylgi allra fram- bjóðenda frá því hann tilkynnti sitt framboð, í kringum tvo þriðju at- kvæða. Það er svipað fylgi og Kristján Eldjárn hlaut í kosningum til forseta árið 1968, en hann fékk 65,6% atkvæða. Enginn forseti hef- ur verið kjörinn með hærra hlutfall atkvæða á bak við sig. Baráttan löngu hafin Björn Þór Sig- björnsson, blaðamaður og dagskrárgerð- armaður, hefur undanfarið unn- ið að þáttum um forsetana, embættið og fyrri kosningar fyrir Rás 1. Þættirnir verða á dagskrá Rásar 1 næstu laugardaga. Eitt og annað úr sögunni er rifjað upp, s.s. kosn- ingaúrslit, embættistökur og átakamál. Í undirbúningi fyrir þættina hef- ur hann kafað ofan í fyrri kosn- ingar og skoðað hvernig baráttan í aðdraganda forsetakosninga hefur þróast fyrr og nú. „Kosningabaráttan er í raun löngu hafin. Hún hófst hjá hverjum og einum frambjóðanda þegar hann tilkynnti um framboð. Jafnvel má segja að hún hafi byrjað fyrr í einhverjum tilvikum; sumir tóku að sá fræjum áður en þeir gáfu út formlega framboðsyfirlýsingu. En í hönd fer massíf fjölmiðla- umfjöllun; viðtöl, umræður, úttekt- ir, kappræður og skoðanakannanir og að auki auglýsingar, stuðnings- greinaskrif, fundir og uppákomur. Eflaust fagna því einhverjir að þátttaka Íslands á EM í fótbolta fleygi þetta. Það er öllum hollt að fólk hafi um eitthvað annað að tala líka,“ segir Björn Þór. Hann telur að niðurstöður kann- ana sem birst hafa gefi vísbend- ingu um fylgi í kosningum. „Niðurstöður þeirra kannana sem ég hef séð benda allar í eina átt; til sigurs Guðna Th. Jóhann- essonar. Og það verða að teljast líklegustu úrslitin. Ekki bara vegna þeirra yfirburða sem hann hefur notið í þessum könnunum heldur líka í ljósi sögunnar. Fimm vikum fyrir kosningarnar 2012 mældist fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar mjög áþekkt því sem á endanum varð. Fimm vikum fyrir kosningarnar 1996 var löngu ljóst í hvað stefndi þótt heldur ætti eftir að draga saman með þeim Ólafi og Pétri Kr. Hafstein. Fimm vikum fyrir kosningarnar 1980 munaði rúmu prósenti á fylgi Vigdísar Finnbogadóttur og Guðlaugs Þor- valdssonar, eins og varð svo raun- in,“ segir Björn Þór. Lengsti kjörseðill sögunnar Fimm karlar og fjórar konur verða að lík- indum á kjörseðlinum í forsetakosningum. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Davíð Oddsson Guðrún Margrét Pálsdóttir Hildur Þórðardóttir Elísabet Kristín Jökulsdóttir Halla Tómasdóttir Sturla Jónsson Guðni Th. Jóhannesson Andri Snær Magnason Ástþór Magnússon Björn Þór Sigbjörnsson 5 vikur TIL KOSNINGA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.