Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Qupperneq 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Qupperneq 25
Guðrún segist sækja innblástur á Pinterest og einnigúr vinnunni þar sem hún vinnur í kringum margtskapandi fólk. Hún segir heimilisstílinn fremur mínimalískan en heillast þó af litum. „Ég vil ekki safna of mörgum hlutum og er ekki heldur að eltast mikið við tísku og strauma. Ég gef mér góðan tíma til að velja hluti inn í íbúðina,“ segir Guðrún og bætir við að hún heillist oft af litríkum hlutum og kýs hún því að hafa hús- gögnin í frekar einföldum stíl, annaðhvort í svörtu eða hvítu þannig að hægt sé að bæta við litríkum smáhlutum. Guðrún segir jafnframt mikilvægast að huga að praktískum notum áður en maður innréttar heimilið. „Uppáhaldsstaðurinn minn er eldhúsið, mér finnst gaman að elda þegar ég hef tíma og svo finnst mér líka svo notalegt að sitja við eldhúsborðið með kaffibolla, hlusta á tónlist, lesa blað eða horfa út um gluggann á fallegu göturnar í kringum okkur,“ segir Guðrún og bætir janframt við að eldhúsborðið sé einskonar griðastaður mæðgnanna. „Þar eyðum við oft mikl- um tíma, t.d. að búa til pitsur, baka, teikna, mála eða spjalla.“ Aðspurð hvort eitthvað sé á óskalistanum inn á heimilið svarar Guðrún: „Það væri kannski aðallega að eignast góðar hljómflutningsgræjur einhverntíma í framtíðinni en ég er frekar með stóran „óskalista“ yfir lönd sem mig langar að ferðast til.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Kollurinn sem rifblaðkan er á er útskriftarverkefni Guðrúnar úr Listaháskóla Íslands. Verkið á veggnum er eftir Sigríði Rún. Borðstofan er björt og skemmtileg. Fallegt heimili við Framnesveg Guðrún Björk Jónsdóttir vöruhönnuður, sem starfar við grafík í útstillingadeild Ikea, býr ásamt fjögurra ára dóttur sinni í bjartri, fallega innréttaðri íbúð. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is 22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 HELGAR SPRENGJA LA-Z-BOY hægindastóll. Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði. Stærð: 80 × 70 × 102 cm AFSLÁTTUR 20% 69.990 kr. 89.990 kr. EMPIRE Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.