Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016
MATUR
Það er fólk á öllum aldri að snæða hádegismat ístórum og björtum sal í Mathúsi Garðabæjarþegar blaðamaður bankar upp á og er stemningin
góð. Að Mathúsi Garðabæjar standa tveir reyndir mat-
reiðslumenn, Stefán Magnússon og Þorkell Garðarsson
ásamt framreiðslumanninum Róberti Rafni Óðinssyni.
Staðurinn var opnaður fyrir hálfum mánuði og er Stefán
afar ánægður með móttökurnar en fullt hefur verið út úr
dyrum bæði á kvöldin og í hádeginu.
Fjölskylduvænn staður
Stefán segir að hann hafi viljað opna fjölskylduvænan
veitingastað sem býður upp á vandaðan mat úr fyrsta
flokks hráefnum. Í hádeginu er léttur matseðill og er þá
alltaf boðið upp á fisk dagsins og súpur. „Við erum með
smá ítalskt þema; risotto, carpaccio og tiramisu og sér-
valið kaffi. Gæðin eru númer eitt, tvö og þrjú,“ segir
Stefán en allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Um helgar er boðið upp á alvöru „brunch“-hlaðborð.
Útsýni til Bessastaða
Stefáni, sem hefur búið í Garðabæ í tólf ár, fannst vanta
veitingastað af þessu tagi í bæinn. „Ég var orðinn leiður
á að leita að stöðum og þurfa að fara niður í bæ. Þetta er
búið að vera í bígerð í nokkur ár og við duttum niður á
þessa staðsetningu,“ segir Stefán en úr veitingasalnum
má bæði horfa út á Bessastaði og á Hallgrímskirkju.
„Þetta er bjartur og skemmtilegur staður,“ segir hann.
Að rölta á veitingastaðinn
Garðbæingar geta nú fengið sér kvöldgöngu með fjöl-
skyldunni í Mathúsið. „Það er mikill kostur að geta feng-
ið sér göngutúr á kvöldin á Mathús Garðabæjar og skilið
bílinn eftir heima. Undanfarin kvöld er takmarkinu náð,
að sjá fólkið koma hingað og borða og rölta svo heim,“
segir Stefán.
Matseðillinn er girnilegur og það er ekki úr vegi að
spyrja Stefán um uppáhaldsrétt. Ætli það sé ekki ris-
ottoið. Með andalæri, parmesan og villisveppum. Það er
gríðarlega gott.“
Mathús
í hjarta
Garðabæjar
Loks hafa Garðbæingar fengið alvöru matsölu-
stað í hjarta bæjarins, á Garðatorgi. Þar er fullt
bæði í hádeginu og á kvöldin enda maturinn ekki
af verri endanum. Eigandi og kokkur, Stefán
Magnússon, segir að lögð sé áhersla á heiðarlegan
og góðan mat fyrir alla fjölskylduna.
Myndir og texti:Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Kokkar og þjónar voru á þönum í Mathúsi Garðabæjar.
Í stórum og björtum sal var fólk á öllum aldri að snæða hádegisverð.
Stefán Magnússon er einbeittur í eldhúsinu.
Morgunblaðið/Ásdís
Sjá útsölustaði á www.heggis.is
SILKIMJÚKAR
hendur
Fyrir 4-6
200 g risotto-grjón
25 g skalotlaukur
500 ml kjúklingasoð
100 g flúðasveppir
20 g villisveppir
50 g parmesan-ostur
50 ml rjómi
salt og pipar
Brúnið laukinn létt í potti eða pönnu og setj-
ið grjónin svo út í ásamt kjúklingasoðinu og
sjóðið þar til þau verða léttelduð eða í sirka
10 mín. Brúnið næst sveppina á sér pönnu og
setjið svo út í grjónin ásamt rjómanum og
rifnum parmesan-osti. Kryddið til með salti
og pipar.
Risotto