Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Qupperneq 29
22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
40 ára
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Stýrðu birtunni heima hjá þér
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA EFTIR MÁLI
Sendum frítt hvert á land sem er
gegn staðgreiðslu
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Fyrir 4-6.
300 g spínat
1 rauðrófa
50 g pekan-hnetur
1 stk. pera
2 msk. hunang
radísur
kryddjurtir
50 g geitaostur
salt og pipar
Skolið salatið vel í köldu vatni. Sjóðið rauð-
rófurnar í u.þ.b. 30 til 35 mínútur eða þar til
þær eru orðnar mjúkar. Kælið þar næst upp
úr köldu vatni og skrælið og skerið í teninga.
Léttristið pekan-hneturnar á pönnu. Skerið
perurnar í þunnar ræmur. Skerið ostinn í
litlar og fallegar sneiðar. Blandið öllu saman
í skál og hellið smá hunangi yfir. Piprið og
saltið og gott er að setja smá ólífuolíu.
Geitaostasalat
Fyrir 4-6
500 g mascarpone-ostur
6 stk. eggjarauður
200 g sykur
400 g ladyfingers
1 bolli espresso
kakó
Þeytið eggjarauðurnar upp með
sykrinum þar til þær eru orðnar
stífþeyttar. Bætið þar næst mas-
carpone-ostinum saman við en
þetta er þeytt saman rólega.
Setjið ladyfingers í glös og
hellið kaffinu yfir.Setjið þar næst
blönduna í glösin og kælið í ís-
skápnum í einn klukkutíma áð-
ur en það er borið fram. Skreyt-
ið með kakó og ferskum
berjum.
Tíramísú
Fyrir 4-6
1 kg laxaflak,
beinhreinsað og flakað og
skorið í sirka
180 til 200 g steikur.
200 g bankabygg
½ gúrka
5 radísur
dill
500 g sellerírót
200 ml rjómi
50 g smjör
salt og pipar
25 g rauðlaukur
30 g engifer
30 g eggjarauður
150 ml olía
kryddjurtir
BYGG
Byggið er skolað upp úr köldu vatni og síðan
soðið í u.þ.b. 30 mínútur eða þar til tilbúið.
Það er síðan kælt, kryddað til og saltað og pipr-
að. Skerið gúrku niður í teninga og blandið
saman með kryddjurtum og blandið saman við
byggið.
SELLERÍRÓTARMAUK
Því næst er sellerírótin skræld og skorin í ten-
inga og sett í pott og brúnuð í olíu. Bætið rjóm-
anum út í og sjóðið þar til rótin er orðin mjúk.
Sigtið svo rjómann frá og setjið í mat-
vinnsluvél. Maukið og kryddið með smjöri, salti
og pipar þar til maukið verður silkimjúkt.
ENGIFERDRESSING
Setjið engifer og rauðlaukinn í matvinnsluvél
með eggjarauðunni, salti og pipar og er þetta
sett rólega saman með olíu eða þar til sósan er
orðin þykk.
LAXINN
Laxinn er steiktur á pönnu upp úr olíu, krydd-
aður til með salti og pipar. Eldið hann í u.þ.b. 3
mínútur á hvorri hlið og setjið svo klípu af
smjöri út á. Raðið þessu svo fallega saman á
disk.
Sumarlax
’Undanfarin kvölder takmarkinunáð, að sjá fólkiðkoma hingað og borða
og rölta svo heim.