Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Síða 41
22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Kór Neskirkju og Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna flytja Sálu-
messu Wolfgangs Amadeusar
Mozarts í Neskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 17. Meðal einsöngv-
ara eru Hallveig Rúnarsdóttir.
Stjórnandi er Oliver Kentish.
Í tengslum við alþjóðadag safna efn-
ir Listasafn Árnesinga til dagskrár á
morgun, sunnudag, kl. 15
með listamannaspjalli Pét-
urs Thomsen og Rúríar
um verk þeirra á sýning-
unum Tíð / Hvörf og Tíma
– Tal sem nýlega voru opn-
aðar í safninu. Kanadíski tónlistarmaðurinn
Jom Comyn heldur tónleika í
kvöld, laugardag, kl. 20 á
Reykjavík Roasters í Braut-
arholti 2. Einnig koma fram
Árni V og Markús.
Amabadama og RVK Soundsys-
tem koma fram í Bæjarbíói í kvöld,
laugardag, kl. 21. Samkvæmt upp-
lýsingum frá forsvarsmönnum Bæj-
arbíós mun reggíið hljóma reglu-
lega þar í húsi í allt sumar.
Síðasti sýningardagur sýningarinnar
Vinnandi fólk – ASÍ í 100 ár er
á morgun, sunnudag. Þar getur að
líta ljósmyndir sem veita innsýn í
starfsemi ASÍ sem fagnar 100 ára
afmæli sínu um þessar mundir.
Viðfangsefni ljósmyndarans Þor-
valds Arnar Kristmundssonar í
verkunum á sýningunni Hverfandi
menning – Djúpið er mannlíf í Ísa-
fjarðardjúpi, heimi sem hefur tekið
miklum breytingum á síðustu árum.
Sýningin á svarthvítum ljósmynd-
unum sem Þorvaldur hefur tekið á
undanförnum tólf árum verður opn-
uð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á
sjöttu hæð Grófarhússins kl. 16.
Þarna má sjá bændur, búskap,
landslag og allmörg eyðibýli.
„Ég ólst upp í Djúpinu, móð-
urættin er þaðan og frá Bolung-
arvík,“ segir hann. „Þegar ég var
strákur var búið á nánast hverjum
sveitabæ og ég var vitni að blómlegu
bændalífi. Svo fluttist ég til Reykja-
víkur, mörg ár liðu og þótt ég væri
reglulega gestur í Djúpinu þá áttaði
ég mig allt í einu á því að bæirnir
væru allir að fara í eyði. Þetta er á
vissan hátt uppgjör við fortíð mína.
Ég er að minnast alls þess fólks og
stemninga sem ég minnist síðan ég
var lítill og ég reyndi nú að fanga
það sem var eftir,“ segir hann.
Þorvaldur segist hafa viljað nota
þetta verkfæri sitt, ljósmyndina, til
að bera vitni um það sem hann upp-
lifði í mörgum ferðum vestur á síð-
ustu árum. „Þetta er staðan nú í
sveitunum, þær verða sífellt fá-
mennari og óhamin náttúran er aft-
ur að ná yfirhöndinni þar sem voru
slegin tún. Breytingin er gríðarleg á
stuttum tíma. Ég er vitni að því.
Þeir ábúendur sem ég kynntist
þegar ég var að taka myndirnar eru
að mestu horfnir. Nú eru bara tvö,
þrjú býli eftir í byggð …“ Hann
bendir á bændur á veggjunum sem
eru látnir.
„Þetta er mín upplifun. Þetta er
mjög persónuleg sýning, því svæðið
stendur mér svo nærri. En þessu
verki lýkur ekki með þessari sýn-
ingu – ég mun halda áfram að
mynda þarna meðan ég hef heilsu.“
Þorvaldur Örn Kristmundsson með ljósmynd af Sigmundi á Látrum, síðasta
kúabóndanum sem var í Djúpinu. „Þetta er mín upplifun.“ segir hann.
Morgunblaðið/Einar Falur
„Þetta er á vissan
hátt uppgjör“
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur opnar sýning á
ljósmyndum sem Þorvaldur Örn Kristmundsson
hefur tekið á tólf ára tímabili í Ísafjarðardjúpi.
Þetta er heimur sem hefur breyst hratt.
MÆLT MEÐ
LANGVIRK
SÓLARVÖRN
ÞOLIR SJÓ, SUND
OG LEIK.
BARNIÐ ÞITT Á SKILIÐ 5 STJÖRNUR
SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ
Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð.
Engin paraben, engin nanótækni, ilm- eða litarefni.
Sölustaðir | Öll apótek, Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup, Fríhöfninni og víðar | www.proderm.is
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af
öryggisvörum