Víkurfréttir - 04.03.1999, Side 6
ÍSLA NDSBA NKA MÁ LID
,‘Cft' ^<4 .. Reiki - Heilun,
' Aromatherapy.
'Nudd. Næringarraðgjöf.
Electric City Sexwear.
Sjálfstæöur dreifingarabili
á Herbalife og Dermajetics
Ymis tilbod i gangi
'Visa - Euro - Póstlcrafa
Ingibjörg Þorsteinsdóttir
híraunsvegur 25 - 260 Niarðvík
Sími 421 5989-861 2089
A.T.H. Ballið sem átti að veral3. mars
verður haldið 24. apríl í K.K. sal.
Hljómsveitin Grænir vinir
leikur fyrir dansi.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Garðbraut22
Garði
Fallegt hús
í rólegu
umhverfi.
Mikið endurnýjað tvílyft um 215 fm einbýiishús ásamt 38 fm
bílskúr. Á 1. hæð eru tværsaml. stofur, stórteldhús,2herb.
þvottahús o.fl. Á efri hæðinni eru 5 herb. o.fl.
Húsið er allt í mjög ástandi bæði að innan sem utan.
Falleg um 1800 fm lóð m. miklum gróðri. Upplýsingar gefur
ÞorleifurSt. Guðmundsson.
Eignamidlunin
Sídumúla 21 - 108 Reykjavík
S. 588-9090
Sýslumaðurinn
í Kefíavík
Sýslumaður hefur ákvedið að hafa
fasta viðtalstíma vikulega á
lögreglustöðinni í Grindavík á
mánudögum frá 11.00 til 12.00
fyrsta sinn mánudaginn
8. mars 1999.
Jón Eysteinsson
sýslumadur
Hengja bakara fyrir smið
Tékkafals
í síðustu viku bárust fréttir af
því að útlendingi einum hefði
tekizt að leysa út tvær falsaðar
ávísanir með stuttu millibili
hjá Islandsbanka. Við sömu
iðju hefði viðkomandi
útlendingur síðan verið stöðv-
aður hjá Landsbankanum.
Látið var að því liggja að
starfsmenn Islandsbanka
hefðu ekki staðið sig í
stykkinu eins og það var
orðað. En starfsmenn í Lands-
bankanum að sama skapi sýnt
árvekni I starfi. Þannig snéri
fréttin að okkur sem voru
tjarri vettvangi.
Ekki benda á mig segir...
Framkvæmdastjóri Islands-
banka, kemur síðan fram fyrir
alþjóð í ljósvakamiðlum sem
og dagblöðum til að vekja
athygli á því að starfsreglur
bankans hafi verið brotnar. A
sama hátt sagði hann reglur
mjög skýrar um hvernig
svona mál væru meðhöndluð.
Til væru undantekningar um
kaup á erlendum ávísunum af
traustum viðskiptamönnum. I
framhaldi lét hann þess einnig
getið að viðkomandi starfs-
maður íslandsbanka sem
leysti ávísanimar út, hefði að
eigin ósk látið að störfum.
Þannig mun fréttin af þessu
máli eflaust standa stutt í
minni okkar.
Mistök hverra ?
Eftir stendur að aðeins einum
starfsmanna Islandsbanka hafi
orðið á mistök í starfi. En
samkvæmt upplýsingum frá
efnahagsbrotadeild Ríkis-
lögregiustjóra var sagt berum
orðum að það hefði átt að
vekja grun hjá Islandsbanka í
Keflavík að einhver kæmi
með slíkar fjárhæðir inn á
gjaldeyrisreikning fyrirtækis.
Hefðu starfsmenn bankans
sinnt skyldu sinni samkvæmt
lögum um varnir gegn
peningaþvætti og gert aðvart
um færslur sem gætu verið
varasamar, hefði e.t.v. mátt
stöðva viðskiptin og sannrey-
na að þau byggðust á því að
innleysa falsaða tékka. Síðar
kemur fram að sami útlendin-
gur hafi reynt að leysa út
skömmu síðar en þessir
umræddu atburðir gerðust,
mun hærri upphæð í Islands-
banka í Reykjavík. Þá liafi
fyrst vaknað grunur að
ávísanirnar tvær sem málið
snýst um hafi verið falsaðar.
Það hafði þá ekki verið kann-
að í Islandbanka. En stað-
festinguna um falsaða tékka
þurftu þeir að fá frá Banda-
ríkjunum. Þannig fengum við
fréttimar og áttum erfitt með
að skilja.
Leitað að blóraböggli
Islandsbanki gat ekki staðið
frammi fyrir alþjóð og
viðurkennt að mannleg mis-
tök væm gerð innan bankans,
þau einfaldlega hafa aldrei
verið gerð þar. íslandsbanki
hefur aldrei tapað peningum í
viðskiptum, þar hefur alltaf
verið gróði, þar hafa allir
bankastjórar borið fulla
ábyrgð á gerðum sínum og
aldrei gert mistök.
Keppinauturinn Landshanki
...íslandsbanki gat ekki
staðið frammi fyrir alþjðð
og viðurkennt að mannleg
mistök væru gerð innan
bankans, þau einfaldlega
hafa aldrei verið gerð þar.
íslandsbanki hefur aldrei
tapað peningum í viðskip-
tum, þar hefur alltaf verið
gróði, þar hafa allir
bankastjórar borið fulla
ábyrgð á gerðum sínum og
aldrei gert mistök...
mátti með engu móti græða á
óláni íslandsbanka vegna
áfellisdómisins sem af hlytist,
með skjótum hætti varð að
finna blóraböggul. Þannig fær
alþjóð að sjá hvernig reka
skuli banka.
Hver er staða starfsmanna
Islandsbanka?
Hver er ábyrgur innan
bankans, þegar mistök verða
við hin ólíkustu mál? Til
hvers eru tryggingar keyptar
fyrir bankann? Verða í'leiri
starfsmenn bankans látnir taka
pokann sinn? Allténd getur
ffamkvæmdastjórinn þess að
þeir. innan bankans. fari yfir
málið eins og alltaf er gert
þegar eitthvað fer úrskeiðis og
leitast verði við að koma í veg
fyrir að slíkt gerist aftur.
Þannig sjáum við sem heyrum
fréttirnar að málið er ekki
alveg búið.
Starfsmaður ársins
Starfsmaðurinn sem lét af
störfum málsins vegna, verður
greinilega starfsmaður ársins
öðru sinni. Hann verður
öðrum minni spámönnum
góð fyrirmynd, þegar þeim
verða á mistök. Þeir niðri á
gólfinu verða að sjá hvemig
yfirstjóm bankans þjálfar fólk
sitt í að taka ákvarðanir fljótt
og vel. íslandsbanki mun ekki
fara fram á uppsögn við mis-
tök í starfi, en áskilur sér allan
rétt til að verða við ósk starfs-
manna þegar þeim verða eigin
mistök ljós. Þannig er bank-
inn vinur þinn og minn.
Farsæll starfsferill
Hverju og einu okkar verður
einhvern tímann á að gera
mistök. A þeim er tekið með
misjöfnum hætti hjá hinum
ýmsu fyrirtækjum. í þessu
máli er ljóst með augum leik-
manns er hér tekið á starfs-
manninum með ólíkindum.
Um er að ræða starfsmann
bankans með 15 ára farsælan
starfsferil, nákvæman, sam-
vizkusaman, tryggan, sam-
vinnuþýðan, þjónustulipran.
greiðvikinn og vinsælan jafnt j
meðal starfsfólks sem við-
skiptavina. Starfsmaður sem
hefur óflekkað mannorð og
má vamm sitt ekki vita. Hér
situr hann eftir með áhyrgðina
á bakinu, svert mannorð. van-
sældina og sorgina sem fylgir
því að vera sviptur ærunni
með brottvikningu úr starfi.
Fyrir mistök í starfi sem ekki
einungis hann, heldur og
íslandsbanki ber ábyrgð á.
Stjórnendur íslandsbanka
ættu að taka þetta mál upp og
breyta afstöðu og afgreiðslu
sinni með mannsæmandi
hætti. Til þess að aðrir starfs-
menn geti og vilji starfa innan
fyrirtækisins án daglegarar
áhættu um mistök, sem geta
liaft alvarlegar afleiðingar og
þeir einir beri ábyrgðina.
Þannig lítum við á niður-
stöðuna sem stöndum utan
bankans og teljum okkur hala
eitthvað til málanna að leggja.
Vilhjálmur Ketilsson.
6
Víkurfréttir