Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 04.03.1999, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 04.03.1999, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI & ATVIIMNULIF Eignamiðlun með fasteignir á netinu Eignamiðlun Suðurnesja hef'ur fyrst fasteignasala á Suðurnesjum komiö upp fasteignavef á alnetinu. Sigurður Ragnarsson, eigandi E.S., sagði hug- myndina hafa fæðst fyrir rúmlega ári. Vefurinn hefði verið settur upp á netinu í júlí-ágúst á síðasta ári en ekki verið haldið hátt á lofti á meðan verið var að þrúa hann, berjast við ýmsa hnökra og safna myndum. Sigurður sagði að í dag væru á vefnum myndir af flest- um þeim eignum setn skráðar væru hjá fvrirtækinu og hvatti viðskiptavini til að nýta sér þessa nýju þjónustu en vægi hennar ætti eftir að stóraukast í framtíðinni. Veffang Eignamiðlunar Suðurnesja er: www.es.is Besta afkoma Spari- sjóðsins síðan 1982 Á rið 1998 var eitt það besta í sögu Spari- sjóðsins í Keflavík. Hagnaður Sparisjóðs- ins nam 111,2 milljón króna fyrir skatta á síðasta ári. Að teknu tilliti til skatta var hagnaðurinn 80,3 milljónir króna. Reiknaður tekju- skattur var 28,5 milljónir kr. og eignaskattur 2,4 milljónir kr. Til samanburðar má nefna að tap var á rekstri fvrirtækisins árið 1997 sem nam 77,1 milljón króna fvrir skatta og 55,2 ntilljón kr. eftir reiknaða skatta. Kætta afkoniu má fyrst of frenist rekja til hagræðingar í rekstri og skipulagsntálum auk ntinna framlags í afskriftareiknings útlána. Arðsemi eigin fjár var 16% og hefur ekki mælst svo há síðan 1982. í rek- straráætlun fyrirárið 1999 er gert ráð fvrir góðri rek- strarafkomu. Þetta kentur fram í frétt frá Spari- sjóðnunt í Keflavík. Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu á árinu 871.1 milljónum króna og vaxtagjöld Spari- sjóðsins urðu 500,1 milljón króna á árinu. Hreinar vaxta- tekjur námu því á árinu 371,0 milljónum króna samanborið við 333,7 milljónum króna Hitaveita Suðurnesja Brekkustíg 36 - Sími 422 5200 ÚTBOÐ árið 1997. Vaxtamunur. þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðufjármagns var 4,18%. Aðrar rekstrartekjur voru 215,1 milljón króna á árinu og önnur rekstrargjöld 422,7 milljónir króna. Stærstu liðir annatra rekstrargjalda eru laun og launatengd gjöld sem námu 197,9 milljónum króna og annar almennur rekstr- arkostnaður sem nam 208,5 milljónum króna. Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna námu 14,7 milljónum króna. Framlag í afskriftareikning útlána var 52,3 milljónir króna en var 185,7 milljónir króna á síðasta ári. Sem hlut- fall af niðurstöðu efnahags- reiknings var framlagið 0,56% en var 2,20% árið áður. Heildarinnlán í Sparisjóðnum í árslok 1998 ásamt lántöku námu um síðustu áramót 7,9 milljarði króna. Þannig jukust innlán um 753,8 milljónir króna eða um 10,5% frá árinu 1997. Útlán Sparisjóðsins ásamt markaðsskuldabréfum námu 7,6 milljörðum króna í árslok 1998 og höfðu aukist um 990,4 milljónir króna frá árinu áðureðaum 14,9%. Breyting varð á fullnustueignum frá árinu á undan. Sá liður lækk- aði um 30,4% og nam verðgildi þeirra 121,5 mill- jónum króna. Þessi liður hefur farið stiglækkandi undanfarin ár. I árslok var niðurstöðutala efnahagsreiknings 9,3 mill- jarðar króna og hafði hún hækkað á árinu um 898,8 milljónireða 10,6%. Eigið fé Sparisjóðsins í árslok nain 603,9 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 9,71% en var 8,82% árið áður. Sparisjóðurinn í Keflavík er alhliða fjármálafyrirtæki sem hefur starfað á í rúm 90 ár. Sparisjóðurinn var stofnaður 1907 og byggir á traustum grunni. Sparisjóðurinn rekur fjórar afgreiðslur sem starf- ræktar eru í Keflavík. Njarð- vík, Garði og Grindavík en höfuðstöðvar Sparisjóðsins em í Keflavík. Starfssemi Sparisjóðsins er fjölbreytt og hann býður uppá mismunandi vömr og þjónustu sem henta breiðum hópi viðskiptavina hans. Hjá fyrirtækinu starfa um 75 starfsmenn. Sparisjóðsstjóri er Geirmundur Kristinsson. Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík verður haldinn föstu- daginn 12. niars n.k. Hitaveita Sudurnesja óskar eftir tilbodum í verkið „Stofnæð að Innri-Njarðvík HS 98001". Verkid felst í lagningu stofnædar frá Fitjum að dælustöð í Innri- Njarðvík. Helstu magntölur: Lengd hitaveitulagna í plastkápu; pípustærð 300mm um 1640m, pípustærð 250mm um 350m pípustærð 200mm um lOOm Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarðvík, gegn W.OOO kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11, fimmtudaginn 25. mars 1999. Hitaveita Suðurnesja A tvinna Duglegt starfsfólk vantar í Hagkaup Njardvík Vinnutími frá 10-18 eda 20 Umsóknareydublöð á staðnum. Ekki yngri en 18 ára. HAGKAUP • Njarðvík • • Njarðvík • 16 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.