Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 04.03.1999, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 04.03.1999, Blaðsíða 9
Langur bæjarstjómarfundur í Reykjanesbæ um byggingu fjölnota íþróttahúss: Reykjanesbær á tímamótum Ummæli bæjarfulltrúa á fundinum: Ellert Eiríksson bæjarstjóri Bygging þessa fjölnota íþróttahúss er fyrst og fremst til góða | handa ungum drengjum og stúlkum, þó vissulega henti það meistai'aflokkum og þeim eldri einnig. Þetta hefur verið draumur Reykjanesbæjar og ég gleðst yfir þvf. Ég verð hins vegar að víkja af fundi vegna þess að ég er hluthafi í íslenskum Aðalverktökum, erfði það reyndar frá foreldrum mínum, en Verkafl er einmitt dótturfyrirtæki Aðalverktaka og því er ég van- hæfur til að greiða atkvæði um þetta mál. Kristmundur Asmundsson (J) Við hreinlega eigum ekki fyrir þessu. Það er verið að semja um eitthvað sem er ekkert í samræmi við útboðsgögnin. I kostn- aðinum emm við ýmist að greiða sem leigjendur og líka eins og eigendur. Við getum sagt okkur það sjálf að kostnaðurinn við þetta endar ekki í 950 milljónum. Böðvar Jónsson (D) Reykjanesbær er á tímamótum og horfir inn í framtíðina. bæði verkefnalega séð og tímalega. Það var líf í bænum áður en Kristmundur kom í bæinn. Ég átti satt að segja ekki von á því að samningurinn yrði svona hagstæður. Það er alltaf hægt að biðja um viðræður vegna kaupa á húsinu. Þetta er stórhuga og þarft verkefni. Nú þarf dáðrakka menn en ekki blundandi þý. Ólafur Thordersen (J) Bylting fyrir knattspymuna en við verðum að passa peninga skattborgaranna. Það myndi enginn vilja skrifa undir svona samning sjálfur, ekki einu sinni Böðvar. Skólamálin þurfa miklu meiri athygli. Jóhann Geirdal (J) Þessu er vel varið í forvamarstarf en ég tek ekki undir allt þetta góða sem menn halda að þeir hafi verið að gera. Það er ekki hægt að bera saman húsaleiguverð á skrifstofuhúsnæði og þess- ari skemmu. Við verðum að fara að lögum. Það er ekki hægt að brjóta umsagnarrétt almennings og segja honum að éta það sem úti frýs. Þessi leigusamningur er eins og kaupsamningur án afsals. Gleymum því ekki að formaður skipulagsnefndar er einn- ig eigandi í ÍAV, alveg eins og bæjarstjórinn. Jónína Sanders (D) Ég vísa á bug fullyrðingum um lagabrot og Reykjanesbær hefur farið í hvívetna að lögum og reglum. Þið verðið að segja hlutina alveg eins og jseir em, ekki fara svona í kringum málið. Þorsteinn Erlingsson (D) Það er stórkostlegt að geta látið þennan stóra draum verða að vemleika. Skúli Skúlason (B) Þetta mun skerpa félagsandann hjá Keflavík og Njarðvík í ljósi þess að húsið er á milli íþróttasvæða félaganna. Þessi bygging er stórt framfaraskref. Björk Guðjónsdóttir (D) Þetta hús gefur okkur möguleika á að koma á kortið í hinum ýmsu stórmótum í íþróttum, listum og menningu. Lifandi tónlist fimmtudaq, föstudaq oq lauqardaq. Rúnar Júl. oq Þórir Baldurs sunnudaq. Bjórinn á hlæqilequ vorði! Sælkeraveislaeða Humarveisla kr. 2.690,- GÖTUGRILLID r í gönguqötu F!uq-H umhelgina! ■ Vervð velkonUtis! Lítill kr. 250,- Stór kr. 350,- Happy Hour milli kl. ZO-ZZ Góu-Baquette Glóðin varð í 1. sa?ti í qær! Tilboð. Kjúklinqa-Baquette ogstór kr. 1.290,- HAFNARGATA 62 • 230 KEFLAVIK • SIMI421 1777 Viðhaldoguppsetning loftnetskerfa, gervihnattadiska, þjófa- og brunaviðvörunarkerfa, tölvulagna, símkerfa ogfleira. N. skydigital gervihnattabúnaður Fljótoggóð þjónusta. Gerum tilboð í stœrri verk. n ið virka daga F Icl.09-18 mMsmmm Baldursgötu 14 ■ Keflavílc ■ sími 4215991 og 897 5232 Víkurfréttir 9

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.