Víkurfréttir - 21.04.1999, Blaðsíða 13
Saga Keflavíkur
prentut í Slóvenfu!
Sögunefnd Keflavíkur
ákváð á fundi þann 12.
apríl sl. að mæla með
því að tilboði I’jaxa
ehf. að upphæð kr.
1.867.500 í prentun 3. bindis
Sögu Keflavíkur verði tekið.
Pjaxi ehf. var lægstbjóðandi
í verkið en í tilboði fvrirtæk-
isins er gert ráð fyrir að
prentun og frágangur bók-
arinnar fari fram í Slóveníu.
Næstlægsta tilboðið kom frá
Odda hf. að upphæð kr.
2.465.100.
Duus húsið í gagn-
ið á þessu áni
Menningar- og safnaðarráð Reykjanesbæjar vill hefja
framkvæmdir við Duus húsið sem fvrst og koma hluta húss-
ins í notkun á þessu ári. A fundi ráðsins þann 13. apríl sl. er
lögð áhersla á að unnin verði framkvæmdaáætlun. kostnað-
aráætlun og að ákveðinni lágmarksupphæð renni á hverju
ári til enduruppbvggingar hússins. A sama fundi voru veitt-
ir stvrkir til fjögurra aðila, samtals að upphæð kr. 450 þús-
und, en þremur stvrktarbeiðnum hafnað.
Bjami Kjartansson ráðinn skip-
stjóri á Vesturborg GK 195
Eins og VF greindi frá í síð-
ustu viku kom Vesturborg GK
195 til landsins í síðustu viku
en Valdimar hf. í Voguni
keypti bátinn frá Noregi. Ráð-
in hefur verið áhötn og verður
Bjami Kjartansson skipstjóri,
Kristgeir Arnar Olafsson 1.
stýrimaður og Guðmundur I.
Ágústsson yfirvélstjóri en alls
verður 14 manna áhöfn á
Vesturborginni sem er útbúin
til veiða með Mustad Iínu-
beitningarvéi (40 þúsund
krókar) og Rapp línuspiii.
Frystilestarrými er 470
rúmmetrar og frystigetan 8
tonn á sólarhring.
‘ Samfvlkingin á Revkjkanesi kíkti við hjá okkur VF-
fólki í síðustu viku. Við gáfum öllum nýja tímaritið
I okkar og sögðum það liolla lesningu í kosningabarát-
I tunni. Hér eru þau Jón Gunnarsson, Rannveig Guð-
I mundsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Sigríður
I Jóhannesdóttir.
I________________________________________________________I
|d° b>'in9
5® , -j | Slri* Unglingatímabil:
ckrc»nin9 , aO 12-14ára
5* c. 191 28/7-4/8
^ - nl -7^ ■karaoke
gg-191 -diskótek
Tímabil: 6-12 ára
2/'6-9./6, 9/6-16/6, 16/6-23/6,
23/6-30/6, 30/6-7/7, 7/7-14/7,
14/7-21/7, 21/7-28/7, 4/8-11/8
NámsUeid:
-grímugerð
-leildist
-myndlist
■varðeldur -íþróttir
■grillveisla og m.fl. ■reidnámsUeid
Allir finna eitthvad við sitt hæfi:
föndur, flugdrekar, borðtennis, parís, stíflugerð, fótbolti,
teygjó, körfubolti, kofasmíði, fuglafit, fjöruferð, vinabönd,
hópleikir, sippó, boltaleikir, tilraunir, púsl, kassabílar, spil,
______________búleikir, bátsferðir, snú-snú, sund._________________
■N
Landssími Islands hf er eitt stœrsta þjónustufyrirtœki
landsins og er hlutafélag í samkeppni á markaði þar sem
stöðugar nýjungar eru og verða allsráðandi á komandi
árum. Fyrirtcekið stefnir að þvíað vera áfram ífararbroddi
á sínu svið. Landssíminn leitast við að veita bestu mögulegu
fjarskiptaþjónustu sem völ er á hverju sinni og rekur eitt
fullkomnasta fjarskiptakerfi heimsins.
ÞJONUSTUFULLTRUAR
KEFLAVÍK
Landssíminn óskar eftir að ráða tvo þjónustufulltrúa
í framtídarstörf og einn þjónustufulltrúa í sumarafleysingu.
Starfid felst í ráðgjöf, sölu og afgreiðslu á fjarskiptaþjónustu og
notendaþúnaði Símans, auk annarrar notendaþjónustu og verkefna.
Við leitum að duglegu fólki, sem hefur til að bera framúrskarandi
þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af
þjónustustörfum ásamt góðri grunnmenntun og tölvuþekking er
æskileg.
I þoði eru krefjandi og áhugaverð verkefni og
endurmenntun í starfi hjá framsæknu fyrirtæki.
Ofangreind störfhenta jafnt konum sem körlum.
Nánari upplýsingar veita Helga Jóhanna Oddsdóttir og Auður
Bjarnadóttir hjá Ráðgarði hf. frá kl. 9-12 í síma 533-1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs
fyrir 28. apríl nk. merktar:
„Landssíminn - þjónustufulltrúar Keflavík"
LANDSSIMI ISLANDS HF
Víkurfréttir
13