Víkurfréttir - 21.04.1999, Side 15
„Nú er kjöt á borðum og þá
koma karlmenn að borð-
Sigurður Ingi-
mundarson þjálf-
ari Keflvíkinga
„Við töpuðum
leiknum og það
verður að hafa
það. Við náðum aldrei takti í
leiknum og því fór sem fór en
tap á útivelli er ekki óalgengt f
úrslitakeppni og þau eiga eftir
að verða fleiri. Síðustu vill-
umar á Damon voru mjög
vafasamar þótt ekki sé meira
sagt en dómaramir töpuðu
ekki leiknum . Nú er karl-
mannsslagur framundan, kjöt
á borðum og þá koma karl-
menn að borðum. Körfuknatt-
leiksunnendur Reykjanesbæj-
ar eiga tvö bestu lið landsins
og fá nú úr því skorið hvort
liðið er betra.“
„Nú ríður á stuðningi úr
stúkunni“
Guðjón Skúlason
fyrirliði Keflvík-
inga sagði sig og
sína slaka að
þessu sinni eins
og Njarðvíkinga í
síðasta leik. „Við gerðum ekki
það sem við eigum að gera og
fyrir okkur var lagt em tap er
bara tap hvort sem stigin eru
mörg eða fá sem skilja liðin
að. Nú er spennan í hámarki
og getur ekki orðið meiri.Nú
ríður á stuðningi úr stúkunni
og við komum ekki til með að
valda þeim vonbrigðum.11
„Ekkert annað í spilunum
en Islandsmeistaratitill"
Friðrik Rúnars-
son þjálfari
Njarðvíkinga var
ánægður í leiks-
lok þótt röddin
væri farin að
gefa sig. „Menn voru allt ann-
að en sáttir eftir sfðasta leik og
skoðuðu sjálfan sig niður í
kjölinn. Sjálfsskoðunin gerði
leikmönnum gott og uppsker-
an eftir því. Nú er ekkert ann-
að í spilunum en að við ætlum
að verða Islandsmeistarar á
fimmtudaginn. Innrásin er frá
Njarðvík og henni er ekki lok-
ið.“
„Skömmin frá síðasta leik í
Keflavík ekki endurtekin
Frikki Ragnars-
son fyrirliði
sagði Njarðvík-
inga koma til
sigra á fimmtu-
daginn.
„Við ætum tilbúnir til leiks og
það verður engin endurtekn-
ing á skömminni um daginn. I
kvöld mættum við tilbúnir
enda með bakið upp við vegg
og sigurinn verðskuldaður.
Staðan hefur ekkert breyst og
nú er þetta er spuming um allt
eða ekkert fyrir bæði liðin.
Fermingarbörn 1959
Takið eftir
Vegna ófyrirsjáanlegra atvika hefur
dagskrá 40 ára fermingarhátíðar
1945 kynslódarinnar tekið eftir-
farandi breytingum. Að lokinni helgi-
stund í Keflavíkurkirkju
verður haldið f
Safnaðarheimilið í Innri-Njardvík
í stað golfskálans í Leiru og þar fag-
nað þessum tímamótum. Nánari
upplýsingar má nálgast hjá Oddnýju
Mattadóttur í síma 421 2474.
Atvinna
Óskum eftir að ráða starfsfólk til
sumarafleysinga (með möguleika á
áframhaldandi vinnu) hjá
Kynnisferðum í Leifsstöð, undir
20 ára kemur ekki til greina.
Viðkomandi þarf að hafa góða
samkiptahæfileika og þjónustulund
ásamt góðri tungumálakunnáttu.
Umsóknir sem tilgreina aldur,
tungumálakunnáttu og fyrri störf
leggist inn á skrifstofu Víkurfrétta
fyrir 28. apríl merkt „Kynnisferðir"
íþrottahúsið í Keflavík?
Hreinn úrslitaleikur um íslandsbikarinn á morgun
uppáhellingarskylda vinnustaðarins
verður lögð á vogarskálarnar því
aðeins eitt lið stendur uppi sem sig-
urvegari, aöeins eitt lið stendur eftir
sem sigurvegari.
Bestu liðum landsins í körfuknatt-
leik hefur nú tekist að skapa aðstæð-
ur fyrir eftirminnilegasta úrslitaleik
Islandsmóts í langan tíma. Bæði lið
unnu stórsigra á heimavelli í vik-
unni og annað kvöld kemur í Ijós
hvort liðið verður skráð í sögubæk-
urnar við ártalið 2000. Staðan í ein-
víginu er nú 2-2 og ekkert svigrúm
til einbeitingarleysis og taugaó-
styrks. Nú veröur engum stætt í
skugganum lengur og yfirlýsingum
um að aðalatriðið sé að titillinn endi
í Reykjanesbæ tekið sem hugleysi til
afstöðu. íbúar bæjarins mæta loks
til leiks með hjartað á réttum stað
og skal þakinu lyft af íþróttahúsinu
á Sunnubraut með ópum, öskrum
og fagnaðarlátum. Innanbæjargor-
geirinn, sigurvissan fyrir hönd síns
liðs, montréttur sumarsins og kaffi-
Leikirnir í
hnotskurn
Leikur 1: Bæði lið tilbúin til
leiks en einbeiting Njarðvík-
inga í allar 40 mínúturnar
tryggði 79-89 sigur á útivelli.
Ovænt forysta fengin á úti-
velli 0-1
Leikur 2: Mest spennandi
leikur úrslitanna hingað til.
Keflvíkingar höfðu undirtök-
in en þrautseigja Njarðvík-
inga fleytti leiknum í fram-
lengingu en þar stöðvuðu
Keflvíkingar þá og jöfnuðu
metin 1-1 með 90-98 sigri.
Leikur 3: Keflvíkingar rass-
skelltu Njarðvíkinga frá
fyrstu mínútu til þeirra síð-
ustu og margir töldu Keflvík-
inga hafa brotið vilja Njarð-
víkinga á bak aftur 108-90.
Staðan 2-1.
Leikur 4: Vangaveltur um
hjarta Njarðvíkingar settar
upp í hillu því þeir svöruðu
rassskellinum með öruggum
sigri 91-72 fyrir gjörsamlega
yfirfullu húsi í Njarðvíkun-
um. Jafnt 2-2.
Y íkurfréttir
15