Víkurfréttir - 29.04.1999, Síða 22
Sandkassaslagur í bœjarstjóm
Fundur bœjarstjórnar þriðjudaginn 20.
apríl feerði bœinn ósköp lítið fram á við
og líkari skœtingi ungbarna í leikskóla-
sandkassa. Minnihlutinn barðist gegn
sandkastalabyggingu meirihlutans.
Sandi var kastað svo einliverjum sveið í
augu sem svaraði í sömu mynt þar til
allir höfðu sandinn bragðað og stígvél
sumra full. Minnihlutinn gróf stríðsexi,
sagðist í samstarfi við leikskólakennar-
ana og einn úr þeirra hópi sagði hluta
sandhrúgunnar stolinn úr öðrum sand-
kassa og varaði meirihlutann við, sagði
val á skóflum til byggingar kastalans
svindl, hinir leikskólarnir liefðu ekki
fengið að vera með. Meirihlutinn varði
sinn liluta sandkassans og var stoltur af
því að hafa verið fyrstur til að gera
sandkastala, sandi liejði verið reddað til
að auðvelda skóflukostnaðinn, sand-
kassareglur virtar. Hann sagði minni-
lilutann hafa vœlt öllu í leikskólakenn-
arana og spurði hvort öllum fyndist ekki
höllin flott en að lokum þegar Ijóst varð
að slagurinn varð ekki sigraður með
sandkasti einu saman þá stóð einn upp
og sagði bara...
ananana, þið ráðið engu því þið entð
fœrri.
Að loknum þessum lágkúrulega sand-
kassaslag, sem stóð í eina klst. og 45
mínútur, voru fundargerðir barnavernd-
arnefndar, fjölskyldu- og félagsmála-
ráðs, framkvcemda- og tœkniráðs,
markaðs- og atvinnuráðs, menningar-
og safnaráðs, skipulags- og byggingar-
nefndar, skóla- og frœðsluráðs, sögu-
nefndar Hafna, sögunefndar Keflavíkur,
Brunavarna Suðurnesja, Dvalarheimil-
is aldraðra á Suðurnesjum, Hitaveitu
Suðurnesja og Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja samþykktar á næstu 13 mín-
útum - ellefu núll á öllum vígstöðvum.
jak.
■ Ólafur Björnsson útgerðarmaður á Sandvíkingi GK:
7 7
FER EKKIA GRA-
SLEPPUVEIÐAR í ÁR
ikiö hefur verið rætt uni grá-
sleppuvertíðina þetta árið eftir
afar treglega sölu á síöasta ári
og lág verð. Veiðin hefur geng-
ið vonuni framar, það sem af er, þó
vafi sé á uin markaði. VF ræddu við
Olaf Björnsson, útgerðarmann og
skipstjóra á Sandvíkingur GK 312, um
stöðu grásleppuveiðanna og framtíð
grásleppuhrognasölu.
„Eg hef aðeins verið í þessu í 5 ár svo
varla get ég talist alfróður um grásleppu-
hrognasölu. Heimsmarkaður er ekki flók-
inn, hann þolir aðeins um 35 þúsund
tunnur á ári. Síðan er þetta einfaldlega
spurning um framboð, eftirspurn og
birgðastöðu á hverju ári. 1996 var grá-
sleppan u.þ.b. 25% af ársveltunni hjá mér
og verð á tunnu milli 76 þúsund krónur
en í ár ætla ég einfaldlega að pakka sam-
an veiðarfærunum og bíða breytts ástands
enda viðmiðunarverð Landssambandsins
aðeins 41 þúsund og tölum eins og 35
þúsund per tunnu kastað fram manna í
millum. Þetta er áhættusöm útgerð og
alltaf hætta á því að tapa lagningunni því
lagt er svo nærri landi. Grásleppuleyfi
sem ég greiddi hartnær hálfa milljón fyrir
1994 gæti ég í líklegast ekki gefið í dag.“
Er þetta tapaður atvinnuvegur fyrir okk-
ur Islendinga?
„Ekki segi ég það nú. Markaðurinn virð-
ist þó hrynja reglulega, liggja síðan niðri í
nokkur ár og rísa svo upp að nýju. Nú eru
nýjar fiskveiði-
þjóðir að koma
inn, Grænlend-
ingar í fyrra og
Rússar eru að
koma inn núna.
Ef þessar þjóðir
eru tilbúnar að
sætta sig við
lægra verð en við,
til frambúðar,
hverfum við ein-
faldlega af mark-
aðnum í einhvem
tíma.“
Eru ekki einhverj-
ir sem hafa sína
aðalatvinnu af
grásleppunni?
„Það er rétt, tjöldi
eldri trillueigenda
hefur ekki að
öðru að snúa og
ástandið þeim
afar erfitt. Lands-
samband smá-
bátaeiganda sendi okkur vinsamleg til-
mæli um að leggja ekki upp í veiðar
nema að hafa vilyrði fyrir afurðakaupum.
Sams konar tilmæli hafa borist frá sölu-
aðilunum sjálfum."
Sérðu enga von fyrir grásleppukarlana í
framtíðinni?
„Nú þegar hafa 450 bátar leyfi til grá-
sleppuveiða og í ár munu maigir þessara
báta ekki nýta sér veiðiheimildina. Veiði-
þjóðimar em orðnar sex og heimsmark-
aðurinn tekur aðeins ákveðið magn. Mér
finnst að þegar svona árar ætti að láta þá
sem sækja árstekjumar að öllu leyti í grá-
sleppuna um veiðina en það eru að mestu
eldri menn. Sé það gert er möguleiki að
ná því jafnvægi sem þarf á markaðinn.
Grásleppuveiði verður alltaf stunduð en
menn þurfa að gera sér grein fyrir því að
markaðurinn er ekki ótakmarkaður og
miklar sveiflur öllum í óhag.“
Nú hefur það heyrst meðal sjómanna að
þetta séu aðeins samantekin ráð kaup-
enda til að hulda niðri verðinu?
„Eg hef ekki trú á því. Það er einfaldlega
lögmálið um framboð og eftirspum sem
ræður þessu. Verðið sem er gefið upp
núna, 41 þúsund, er aðeins viðmiðunar-
verð og í raun engin verð í gildi.
Stína stöny hét þessi bátur og hefði verið fínn á grásleppu í fjörunum í Darði.
Aldrei fékkst grásleppuleyfið og útgerðin lagði upp laupana...!
jak.
Á móti öllu
en með samt
Jóhann Geirdal, oddviti
minnihlutans, skammtaði sér
ekki mínútumar í umræðunni
um væntanlegt íþróttahús en
eftir að hann hafði svarað
beinskeittri fyrirspum Kjart-
ans Más Kjartanssonar um
hvort minnihlutinn væri al-
mennt séð með eða á móti
byggingu fjölnota íþróttahúss
á þann veg að bygging slíks
húss væri sjálfsagt mál, að
gefnum réttum forsendum,
fékk Böðvar Jónsson orðið
og var ekkert að skafa utan af
hlutunum. Sagði hann mein-
tan skátasvip Jóhanns óþol-
andi, hann væri á móti öllum
þáttum ffamkvæmdanna, fjár-
mögnuninni, tímasetningunni.
staðsetningunni en nú segðist
hann vera til í byggingu húss-
ins sjálfs.
Dómsdagsspá
Kristmundar
Kristimmdur Asmundsson
sagði meirihlutann vera að
kasta milljarði út um glugg-
ann. Hluti fjármögnunarinnar
væri bókhaldsfals og meiri-
hlutinn myndi að lokum gjal-
da þess að álit lögmanns, í
hreinni andstöðu við ákvörð-
un meirihlutans, lá fyrir áður
en ákvörðun um byggingu
hússins var tekin. Endurtók
hann í sífellu „Það var búið að
vara ykkur við“ og beið blm.
þess að dmngaleg tónlist bær-
ist unt sali og ganga bæjar-
skrifstofuhallarinnar, svona til
að undirstrika stemninguna.
Minnihlutinn eða
Biskupsstofa
Olafi Thordersen fannst
ílialdsmenn í meira lagi við-
kvæntir fyrir gagnrýni og
væri minnihlutinn ekki ábyrg-
ur fyrir réðust þeir að starfs-
mönnum Biskupsstofu. Eins
og kunnugt er kvartaði Davíð
Oddsson sáran yfir smásögu
um sölu Esjunnar sem starfs-
maður biskupsstofu skrifaði.
Víkurfréttir