Víkurfréttir - 20.05.1999, Síða 10
Dreymir um
að fá frið með
börnunum
mínum
Svala Bréiðfjörð Arn-
ardóttir, húsmóðirin
að Háseylu 11, segir
enga spurningu að
hún eigi að baki shemt líf-
erni. „Eg á erfitt líf að baki
og ber þess ör bæði á
hjarta og líkama. Börnin
mín eru númer 1-2 og 3 í
lífi mínu og vildi ég veita
þeim frið og öryggi á nýj-
um stað. Mér leið mjög vel
á Grund í Garðinum og
var farin að líta á það sem
framtíðarheimili þegar
mér var gefinn innan við
niánaðarfrestur til að
koma mér út, sania dag og
ég borgaði mánuðinn fyrir-
fram. Við höfum, í þessum
viðskiptum, verið kölluð
hyski af yfirvöldum og
komið Jþannig fram við
okkur. Eg er 32 ára gömul
kona, þriggja barna móðir,
sem óttast um framtíð
barnanna minna. Eg neita
að þurfa að flytja til út-
landa til að fá frið. Það
hlýtur að vera möguleiki
að losna við glæpamanna-
stimpilinn einhvers staðar.
Þessi síðasti slagur er bú-
inn að eyðileggja samband
okkar Róberts. Kannski á
ég meiri möguleika á því
að fá frið sem einstæð móð-
ir.“
VF haföi samband við hús-
eiganda Grundar í Garði en
þar bjó fjölskyldan áður.
Vildi hann ekki tjá sig að
öðru leyti en að málinu þessu
væri lokið gagnvart sér og
hann helði ekki áhuga á að
blanda sér frekar í málið.
Karl Hermannsson, aðstoðar-
ytirlögregluþjónn í Keflavík,
kvaðst í samtali við VF ekki
vera í aðstöðu til að tjá sig
opinberlega um þessi mál-
efrti. „Ég get þó sagt þér að
einn aðili sem við höfðum af-
skipti af vegna útkalls að
þessu húsnæði liafði með-
ferðis ólöglegt vopn og er
það mál á leiðinni í gegnum
forrnið."
Samkvæmt heimildum VF
eiga bæði Róbert og Svava
að baki afbrotaferil. Gögn
Héraðsdóms Reykjavíkur og
Héraðsdóms Reykjaness
sýna að á árinu 1997 var
Svava dæmd fyrir fíkniefna-
brot og 5 tilvik þjófnaðar
1998. Róbert hefur átta sinn-
um verið dæmdur til sektar-
greiðslu eða refsivistar. Með-
al sakarefna eru þjófnaðir,
greiðslukortasvik, innbrot
auk fíkniefna. Einn dómurinn
er vegna vanrækslu á að hafa
ökuskírteini meðferðis, mál
sem auðveldlega hefði mátt
komast hjá með sektar-
greiðslu.
Otruley raunasaga leigusala í Innri-Njarðvík:
/ / / /
ITREKAÐ HOTAÐ LIFLATI
- segir Guðmundur Georg Jónsson í samtali við I/F
„Hjón með 3 börn óska eftir 3-4 lierb.
íbúð eða einbýlishúsi til leigu strax á Suð-
urnesjum. Reglusemi og skilvísum
greiðslum heitið. Uppl í síma xxx-xxxx
eða xxx-xxxx. Róbert. Allt að 3 mán. fvr-
irfram ef óskað er.“ Þessi auglýsing
birtist í VF í lok mars á þessu ári.
Martröðin er liatin!
Guðmundur Georg Jónsson, 24 ára Njarð-
víkingur, svaraði auglýsingunni. „Ég var
nýlega skilinn við konuna rnína, Hafdísi
Kjartansdóttur, og hugðist leigja út tveggja
hæða hús sem við eigum í Háseylunni í
Innri Njarðvík. I húsinu em tvær íbúðir og
efri hæðin gat losnað strax. Þegar ég sá aug-
lýsinguna í Víkuifréttum ákvað ég að hring-
ja í fólkið, enda hljómaði auglýsingin vel.
Ég ræddi við manninn sem var skrifaður
fyrir auglýsingunni. Hann kom vel fyrir í
síma og einnig þegar ég hitti þau fyrst í
Innri Njarðvík. Þau höfðu verið að leigja í
Garðinum en sögðust vera á götunni. Ró-
bert kynnti sig sem byggingaverktaka í
Reykjavík og peningar væm ekki vanda-
málið. Raunin var önnur og hann reyndist
vera 70% öryrki. Ég lét hann hafa lyklana
strax að íbúðinni svo þau gætu byrjað að
flytja inn, enda fólkið á götunni. Okkur varð
sfðan að samkomulagi að ég færi og útveg-
aði tilheyrandi pappíra, þ.e. húsaleigusamn-
ing og tryggingavíxla", sagði Guðmundur
Georg í samtali við VF. Raunasaga hans er
ótrúleg og [regar her er komið við sögu er
hún rétt að byrja.
Onothæfur pappír og á svörtum lista
„Róbert var fljótur að flytja inn með konuna
og bömin. Eftir að hann var fluttur inn
breyttist viðhoif hans fljótt til mín. Hann
lagði þunga áherslu á að fá húsaleigusamn-
ing í hendumar sem ég fyllti út í vikunni
fyrir páska á samt tryggingarvíxlum. Ég
komst með víxlana í banka fyrsta virka dag
eftir páska og þá kom í ljós að víxillinn var
ónothæfur pappír og öll nöfnin á honum
voru ekki tekin gild í bankanum. Þetta kom
mér á óvart - hvemig gat staðið á því að
byggingaverktaki í Reykjavík væri á „svört-
um lista“ með allt sitt fólk. Ég ákvað því að
fara og tala við manninn.
Þegarég mæti á svæðið kallaði aðili úr
hveifinu til mín og bað mig að tala við sig.
Viðkomandi spyr hvort ég jiekki fólkið. Ég
segi það ekki vera. Viðkomandi aðili segir
mér þá að fara varlega því hann hafi heyrt
ljótar sögur. Mér brá við jvetta en fer og
banka uppá og segist muni koma með
leigusamninginn á morgun þar sem ég þuifi
að útvega votta.
Daginn eftir hringir hann snemma um
morguninn og Hafdís svarar. Róbert sagðist
verða að fá leigusamninginn strax. Hún
sagði samninginn vera á leiðinni en hann
var öskuillur og skellti á.
Lögregan ákallaði guð!
Ég fór á lögreglustöðina í Keflavík til að
leita mér upplýsinga um fólkið en |i;u var í
fyrstu Iítið að hafa. Þegar ég sagði þeim
hvaða fólki ég væri að leigja húsið sögðu
|xiir „Guð minn almáttugur. Byrjaður b;ua
sfrax að reyna að koma jressu fólki út“.
Ég sagðist ekki vilja leigja fólkinu húsið og
vildi að það færi út. Maðurinn hafði ]3á í
hótunum og sagði „Nú er ég með völdin'*.
Konan hans kom þá fram og flaggaði ógilda
leigusanmingnum ffarnan í mig og sagði
mig ekkert geta gert, þar sent þau væru með
leigusamning. Ég var orðinn hálffúll og
slengdi hendinni til konunnar og náði leigu-
samningnum og gekk síðan í burtu frá hús-
inu. Ég vissi síðan ekki fyrr en maðurinn
stökk aftan á mig og upphófust átök þar
sem Róbert tekur mig hálstaki og reynir að
rífa af mér samninginn en ég reyni að rífa
hann á meðan. Síðan reynir hann að bera
mig inn unt útidymar en mér tókst að grípa
í hurðarkarminn og toga mig út. Svo skellir
hann bara á ntig hurðinni. Ég banka strax
aftur og ég heyri í honum við dymar. Þá er
hann að hringja á lögregluna og segir henni
að ég sé árásarmaðurinn.
Ég hafði samband við lögregluna en ákvað
að kæra ekki því þá væri kannski líklegra að
ég losnaði við fólkið. Hins vegar fór ég á
heilsugæslustöðina og fékk áverkavoirorð,
enda aumur í hálsinum eftir aðfarimar**.
Guðmundur Georg greindi bróður sínum frá
því sem gerst hafði. Hann ákvað að ræða
við „nýju leigenduma" ásamt félaga sínum.
Að sögn Guðmundar Georgs fóm þeir báðir
inn í Háseylu og báðu fólkið að koma sér út
úr íbúðinni. „Það sem þeir gerðu var kanns-
ki ekki rétt af þeim að gera en það vai'ð til
að skvetta olíu á eldinn**.
Húsið varið með vopnuni
„Daginn eftir hringdi maður til mín sem
kynnti sig sem nokkurs konar vemdarengil
fólksins. Hann væri vopnaður og ef stták-
amir kæmu aftur yrðu þeir drepnir. Ég vildi
fá að hitta þennan ntann og keyrði því inn í
Háseylu. A leiðinni hugsaði ég „Hvað er ég
búinn að kalla yfir mig“. Ég varð hins vegar
að sjá jietta því ég gat vart trúað mínum eig-
in eymm. Ég bankaði uppá og maðurinn
kom til dyra og bauð mér inn fyrir. Ég
spurði hann hvort honum væri alvara nteð
hótun sinni og þá leiddi hann mig um húsið.
Þar sá ég svart á hvítu hversu alvarlegt mál-
ið vai'. Hann var með stóiar og miklar
sveðjur við alla innganga í húsið. Ég forð-
aði mér út og á leiðinni heim mætti ég lög-
reglunni. Þeir vom ekki ánægðir með jressa
heimsókn rnína í húsið“.
Guðmundur Georg segist vera búinn að fá
margar símhringingar frá fólkinu þar sem
honum sé hótað öllu illu. Bæði sé hringt í
hann í vinnuna og síðan hringir sfminn hjá
honum um miðjar nætur þar sem honum sé
hótað dauða og djöfulgangi. „Ég hef sett
mig í samband við lögregluna sem
nokkmm sinnum hefur haft afskipti af sam-
skiptum mínum og fólksins án jress jx5 að
geta nokkuð aðhafst trek;u' í málinu. Ég hef
eirtnig haft samband við sýslumanninn í
Keflavík og félagsmálaytirvöld í Reykja-
nesbæ. Ég fæ að sjálfsögðu engar upplýs-
ingar hjá félagsmálayfirvöldum þar sem öll
jieirra mál em trúnaðarmál. Sömu sögu er
að segja af Húseigendafélaginu. Þar leið
mér eins og ég væri bara eitt mál af liund-
rað“.
Hundar komnir í húsið
Fljótlega eftir að fólkið flutti inn í hús Guð-
mundai' Georgs fékk það til sín tvo vígalega
Sheffer hunda. Ég tjáði fólkinu strax að ég
væri andvígur því að þau væm með liund-
ana í húsinu og kærði til hundaeftirlitsins.
Ég hafði leigt út íbúð í kjallara hússins til
stúlku. Ég bað hana að veita ekki sitt leyfi
fyrir hundunum. Hún ætlaði ekki að gera
það, enda sagðist hún vera hrædd við dýrin.
Fjórum dögum síðar var stúlkan flutt út úr
húsinu og skilaði mér lyklunum.
Hundaeftirlitið hefur sent nokkur bréf til
fólksins þar sem það er beðið að losa sig við
hundana þ;ir sem Jieir séu þama í leyfis-
leysi. Allir frestir em löngu liðnir. Þau hafa
hring í mig í vinnuna og hótað mér ofbeldi
fyrir það að vem að reyna að hafa af jieim
hundana. Þá hafá þau hringt í hundaeftirlitið
og hótað að nú væri kominn tími á að drepa
mig.“
Tek hótanirnar alvarlega
- Ertu ekkert hræddur við þessar hótanir?
„Það er ekki annað hægt en að taka jiessar
hótanir alvarlega og ég hef beðið um vemd
fyrir fyrrverandi konuna mína eftir að hún
sá konu ganga í kringum bflinn hennar. Hún
kallaði til konunnar hvort hún gæti eitthvað
aðstoðað hana. Þá sagði konan að fyrst við
væmm að angra þau og vildu láta taka
hundana, þá væri komin tími til að þau
myndu skemma fyrir okkur. Síðan sagði
hún að verkefni dagsins væri að rispa bflinn
en að verkefni kvöldsins og helgarinnar
væri að stúta húsinu í Háseylu'*.
Aðspurður hvers vegna hann kæmi allsstað-
ar að lokuðum dymm með aðstoð, sagði
Guðmundur Georg að til jiess að opinberir
aðilar kæmu að málinu yrði fólkið að gera
Guðmundi mein. Það forðast hins vegar að
vinna honum mein þar sem fólkið er á skil-
orði, að sögn Guðmundar Georgs. Hann
vonast samt til jress að þurfa ekki að enda
stórslasaður á sjúkrahúsi til að fá húsið sitt
aftur. „Ég er hinsvegar með morðhótanir á
bakinu sem mér er sagt að taka alvarlega”.
-Veistu eitthvað um ástand íbúðarinnar?
„Ég hef ekki komið inn í húsið lengi en ég
vonast til að allt sé í lagi þama innandyra.
Ég hef hins vegar orðið vitni að því jiegar
Róbert hefur skipt skapi og þá hefur konan
hans látið að því liggja að hún ætli að rústa
íbúðinni**.
Hundarnir fengu frest
Það nýjasta í málinu er að Guðmundur Ge-
org fékk lögfræðing í Keflavík sl. föstudag
til að vinna að málinu fyrir sig. Þá átti lög-
reglan að sækja hundana í íbúðina í vikunni
en hundaeftirlitsmaður gaf frest þar sem
Róbert sagðist vera að flytja út úr húsinu.
Aðspurður sagðist Guðmundur Georg von-
ast til að losna við fólkið fyrr en síðar út úr
sínu húsi. „Ég hef staðið í iniklum leiðind-
um vegna þessa máls. Þetta er þungur baggi
á mér en ég er ekki búinn. Ég vonast til að
fá góðan stuðning og þarf á honum að
halda'*. Guðmundur Georg sagðist í samtali
við blaðið vart hafa trúað því að svona
nokkuð gæti gerst. Það sem hann hafi mátt
jxila séu hlutir sem hann voni að enginn
annar þuifi að reyna og hann hvatti fólk til
að vera á varðbergi jiegar það ætlar sér að
leigja út íbúðir til fólks sem það þekkir ekk-
ert til.
10
Víkurfréttir