Víkurfréttir - 20.05.1999, Blaðsíða 17
GEYS1R
VÉlSltDAFERDIR
Holtsgötu 56 Njarðvík
sími 42 7 5622
Sólbaðs- og þrekmið-
stöðin Perlan í Kefla-
vík innleiddi nýja
íþrótt á Suðurnesin sl.
þriðjudag en þá hófst
„Sparkhnefaleikakennsla" í
umsjá Þórarins„Tóta“Inga-
sonar í fyrsta sinn á Suður-
nesjum. Kickbox ersam-
bland af tækni úr bardaga-
list og boxi annars vegar og
þolfimi hins vegar. Kraft-
miklar æfingar undir dvnj-
andi tónlist einkenna æfing-
arnar, snöggar handhreyf-
ingar, spörk og fleiri þekkt-
ar box og bardagalistaæf-
ingar. Æfingarnar krefjast
einbeitingar, tækni, samhæf-
ingar og jafnvægis og er góð
tilbreyting frá hefðbundn-
um þolfimitímum fyrir bæði
kynin. Atökunum og ein-
beitingu fylgir sviti og
brennsla auk liðleika og
styrks. Þórarinn Ingi er 28
ára með margra ára reynslu
í karate og stundaði kickbox
í Englandi í eitt og hálft ár.
Perlan býður upp á frían
prufutíma á þriðjudögum
og fimmtudögum.
Hjóladagur var haldinn hátíðlegur á Leikskólanum Gimli í Njarðvík á dögunum. Þá mættu allir á
leikskólann á sínum farkostum. Skipti engu máli hvort það voru, tví- eða þríhjól, allir \oru hjól-
andi og glaðir. Meðfylgjandi mynd tók Hrólfur Ijósmyndari af börnunum í tilefni dagsins.
GLERAUGNAVERSLUN
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
Víkurfréttir
13