Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 20.05.1999, Page 18

Víkurfréttir - 20.05.1999, Page 18
Grindvíkingar þurf'tu 77 mínútur til að brjóta vörn Njarðvíkinga á bak aftur og trvggja sér Suðurnesjatitil- inn í knattspvrnu 1999. Grindvíkingum, seni voru sterkari aðilinn í leiknum. gekk erfiðlega að eiga við þétta vörn heimamanna þar til Sinisa Kecic skallaði bolt- ann létt í möskvana 1-0. Hæði lið hefja þátttöku sína í íslandsmótinu í vikunni, Grindvíkingar gegn Safa- mýrarpiltum í kvöld og Njarðvíkingar gegn GG annað kvöld á Njarðvíkur- vellinum. Hart barist á grasinu í Njarövík! ýM§Éj' *.s 400 Á myndinni til vinstri má sjá Óia Þór Magnússon, fyrrverandi Keflvíking, nú íNjarðvíkurbúning í baráttu við einn Brindvíking. Á hinni myndinni vinna Grindvikingar boltann eftir sókn UMFN. Hjálmar Hallgrímsson, fyrirlidi Grindvíkinga tók við Suðurnesjabikarnum úr hendi Leifs Gunnlaugssonar, for- manns knattspyrnudeildar Njarðvíkur. Myndlistarsýning að Hafnargötu 2 Ormur Guðjón Ormsson opnar myndverkasýningu að Hafnar- götu 2 nk. föstudag kl. 14. Um óvenjulega sýningu er að ræða því Guöjón hefur fegnist við uppfinningar í fjölda ára og á því í fórum sínum ógrynni teikninga sem lokaðar höfðu verið ofan í skúffum en koma nú almenningi fyrir sjónir, inn- rammaðar uppi á vegg. Þetta mun ekki hafa verið gert áður og því nú kjörið tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim hug- vitsmanns og berja augum það sem hann hefur dundað við um dagana. Þarna verða einnig til sýnis olíumálverk, pastel- og vatnslitamyndir eftir Guðjón. Guðjón var nýlega gerður að heiðursfélaga Landsambands Islenskra Hugvitsmanna ásamt félaga sínum Jóhannesi Páls- syni. Fulltrúar úr stjóm Lands- sambandsins mæta við opnun- ina og að sjálfsögðu eru allir sem áhuga hafa á að lieiðra ís- lenskt hugvit með nærveru sinni mjög velkontnir. Sýningin verður opin frá kl. 14 til kl. 22 alla daga, nema Hvíta- sunnudag, til 1. júní nk. Falur og Helgi Jónas stiga- hæstir í sigri íslands Islenska landsliðið t körfuknattleik lagði Kýpur 74-69 í fyrsta leik und- ankeppni EM í borginni Spisska Nova Ves í Slóveníu. Okkar menn náðu undirtök- unum um miðjan fyrri hálf- leik og gengu til leikhlés með 8 stiga forystu 38-30. Stiga- hæstir voru Helgi Jónas Guð- finnsson og Falur Harðarson nteðl8 stig hvor og Herbert Amarson skoraði 16. í kvöld er leikið gegn Wales, á morg- un gegn Hvít-Rússum, á laug- ardag gegn Slóvakíu og á sunnudag gegn Rúmenum. Forvitnum er bent á netfang FIBA (http://www.fiba.com) Iþrótta og leikjaskóli KEFLAVÍKUR Óskum eftir starfsfólki frá 31. maí til 16. júlí í hálft starf eftir hádegi. Leitað er að hressu fólki í góðu formi sem á auðvelt með að umgan- gast börn, helst eldri en 20. ára. Nánari upplýsingar veitir Einar í síma 421 3044 og 897 5204 BURflfi önn fædd í maí Það hefur veriö rólegt á fæðinardeild Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja að undanförnu en sjö börn hafa fæðst í maímánuði. ■ Angela Marina Barbedo Amaro og Sigmar Rafnsson, Brekkustíg 29, Njarðvík eignuðust son 4. maí sl. Hann var 3300 gr. og 54 sm. ■ Ragna Dögg Ólafsdóttir og Óli Stefán Floventsson, Heiðarhrauni 30, Grindavík eignuðust son 4. maí sl. Hann var 4460 gr. og 54 sm. ■ Kolbrún Svala Júlíusdóttir og Friðrik Þór Konráðsson, Vesturbraut 6, Keflavík eignuðust son 5. mai sl. Hann var 3100 gr. og 49 sm. ■ Zorica Janicijevic Cherif og Abderaouf Cherif, Víkur- braut 36, Grindavík, eignuð- ust son 8. maí sl. Hann var 3020 gr. og 46 sm. ■ Steinunn Aðalsteinsdóttir og Vikar Karl Sigurjónsson, Vatnsholti 3, Keflavík, eignuðust dóttur 8. maí sl. Hún var 3480 gr. og 52 sm. ■ Halldóra Björk Guðmunds- dóttir og Sveinn Ingi Þórar- insson, Vatnsholti 3, Keflavík, eignuðust stúlkubam 8. maí sl. Hún var 3890 gr. og 54 sm. ■ Helga Jónína Guðmundsdóttir og Magnús Ingi Jónsson, Garðbraut 70, Garði eignuðust son 10. maí. Hann var 2740 gr. og 48 sm. Grindvíkingar Suðurnesjameistarar 18 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.