Víkurfréttir - 02.09.1999, Blaðsíða 7
Grindavíkurskóli:
Auhln áhersla á skála
og menntunarmál
Holtaskóli:
ðtrúlegt
hve miklu
hefur ver-
ið áorkað
Holtaskóli tók á þriðju-
dagsmorgun í fyrsta
sinn á móti nemendum
yngri en 12 ára. Skólinn
er einsetinn þrátt fyrir að ekki
sé frantkvæmdum að fullu
lokið. Nemendur í ár eru 406
talsins, kennarar 35, og nem-
endur í fyrsta bekk 49.
Jónína Guðmundsdóttir, að-
stoðarskólastjóri, sagði Holta-
skóla í raun heppilega hann-
aðan fyrir nýtt hlutverk.
„Holtaskóli hefur stundum
verið stærri en þörf var á og er
það heppilegt á þessum tíma-
mótum. Enn er þó ýmsu ólok-
ið og vantar t.d. heilmikinn
stofnbúnað fyrir yngri nem-
endur en eftir stendur að ótrú-
legt er hve miklu hefur verið
áorkað í sumar á stuttum tíma
til breytingar á skólanum en
ýmsu er þó ólokið enn og
vantar t.d stofnbúnað fyrir
yngri nemendur. Skipulag
hússins veldur því að hægt er
að aldurskipta nemendum í
álmum skólans og byggðir
hafa verið 2 nýir útgangar fyr-
ir yngstu nemenduma, beint
út á skólalóð þeirra. Þá er í
skólanum mjög góð aðstaða
til tónlistarkennslu.“
Hvernig hefur gengið að fá
kennara til starfa?
„Skólinn er að fullu mannaðar
og eru nýir kennarar og leið-
beinendur sjö talsins en auk
þess kemur Álfheiður K.
Jónsdóttir inn aftur eftir hlé.
Nýju kennaramir eru Biyndís
Björk Guðmundsdóttir, Fann-
ar Ólafsson, Henning Magn-
ússon, Hafdís Friðriksdóttir,
Jóhanna Gunnarsdóttir, Lóa
Geirsdóttir og Sigfríður Sig-
urðardóttir, Vigdís Jóhanns-
dóttir.“
Finnur þú fyrir viðhorfsbreyt-
ingu gagnvart menntamálum
hjá bæjaryfirvöldum og bæj-
arbúum?
„Mér finnst áhugi fólks hafi
aukist og bæjaryfirvöld hafa
sýnt metnað í gera aðbúnað
skóla vel úr garði. Tilkoma
Heiðarskóla hefur leitt til
breyttra viðmiða í skólamál-
um. Nú em starfandi 4 sams
konar skólar í Reykjanesbæ.
Það veldur samanburði á rek-
stri og árangri hvers skóla fyr-
ir sig, nokkuð sem ég tel vera
af hinu góða. Starfsfólkið hér
í Holtaskóla er mjög bjartsýnt
og tilbúið til að takast á við ný
verkefni.“
f
Grunnskólanum í Grinda-
vík verða um 385 nemend-
ur í vetur, þar af 40 sem em
að hefja skólagöngu í fyrs-
ta skipti. Að sögn Gunnlaugs
Dan Ölafssonar, skólastjóra,
munu fimm af 20 bekkja-
deildum skólans hefja nám
eftir hádegi. „Á næsta skólaári
er möguleiki á að skólinn
verði einsetinn með því að
tekin verði í notkun efri hæð
nýrrar byggingar við skólann“
sagði Gunnlaugur. „Ráðnir
voru fjórir nýir grunnskóla-
kennarar, Dagný Erla Vil-
bergsdóttir, Ema Lind Rögn-
valdsdóttir, Kristín Björk
Guðbjörnsdóttir, og Páll Er-
lingsson og tveir leiðbeinend-
ur, Sigríður Fjóla Benónýs-
dóttir og Guðrún Guðrúnar-
dóttir. Eg er bjartsýnn á næsta
skólaár, skólinn hefur verið að
eflast með markvissara starfl
og aukin áhersla hefur verið
lögð á skóla og menntunar-
mál af hálfu bæjaryfirvalda.
Fyrir þetta skólaár hefur
námsráðgjafi verið ráðinn að
skólanum í 50 % starf. og
kennsluráðgjafi einnig í hluta-
starf.“
Víkurfréttir 7 j